Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1956, Qupperneq 8
156
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
ÞETTA GERÐIST í FEBRÚAR
AÐ TILHLUTAN OKEC komu
fulltrúar íslenzkra og brezkra
útgerðarmanna saman a fund í París
til þess að ræða væntaniegt at'nám
fisklöndunarbannsins í Bretlandi.
Fulltrúar íslendinga voru þeir
Kíartaa Thors, Jon Axel Pétursson
og Loftur Bjarnason. Þeir komu
heim um miðjan mánuðinn og höfðu
þær fréttir að færa að ekkert hefði
verið minnst á landhelgismálið á
þessum fundi og samkomulag um
fisklöndun í Englandi hefði heldur
ekki náðst en gert ráð fyrir að ann-
ar íundur yrði haldinn bráðlega.
Af frásögnum enskra blaða er þó
svo að sjá, að löndunarbanninu muni
brátt af létt, því að Hull og Grimsby
eru komnar í hár saman út af því,
hverjir eigi að sitja að islenzka fisk-
inum þegar þar að kemur (24.)
VEÐRÁTTAN
Að kvöldi ins 1. skall á sunnan stór-
viðri um land allt, með ofsalegri rign-
ir.gu. Olli veður þetta stórkostlegu
tjóni víðsvega. Varð viða flóð á götum
í Reykjavlk og fyllti kjallara húsa.
Oísavöxtur hljóp í allar ár. Tók af
brúna á Skálm á Mýrdalssandi, en brú-
in á Klifanda laskaðist mikið. Aur-
skriða fell í Vík í Mýrdal og urðu eftir $
berar klappir þar sem áður hafði verið
þykkur jarðvegur. Steinbrú tók af milli
Reynivalla og Vindáss í Kjós og brúna
tók af Svartá í Lýtingsstaðahreppi i
Skagafirði. Sjógangur fylgdi mikill og
brotnuðu bryggjur í Keflavík, Hofsósi
og Grímsey. Símalínur slitnuðu viða
og símastaurar brotnuðu unnvörpum.
Loftnetið reif af loftskeytastöðinni á
Rjúpnahæð og trufluðust skeytasend-
ingar. Fiskhjallar bæarútgerðarinnar i
Neskaupstað brotnuðu niður, en i þeim
voru 200 smal. af fiski. Flóðlækir hlupu
iim i fjárhús á þremur stöðum og
drápu kindur, 4 á Efri Mýrum í Húna-
vatnssýslu, 20 á Skeggjastöðum í Svarl-
arda! í Hunavatnssýslu og 50 a Brenni-
stöðum í Flókadal í Borgarfjarðarsýslu.
Þök tók af fjölda húsa í flestum sýslum
landsins og heytjon varð gífurlegt, og
mun allt það tjori seint verða metrð.
Svo mikil var veðurhæðjn sums stað-
ar að bílar og bátar fuku og komu
niður víðs fjarri. — Upp úr þessu fór
hitabylgja yfir landið og varð hitinn
norðanlands 9—12 stig. Leysti nú snjó
alls staðar og var orðið bílfært frá
Reykjavik til Akureyrar inn 8. Helzt
svo veðurblíða allan mánuðinn, en oft
var nokkuð hvasst framan af. Var
engu líkara en komið væri vor. Blóm
sprungu ut í húsagörðum, barr á trjám
fór að þrútna og tún að grænka.
ÚTGERÐIN
Nýir samningar voru gerðir um
kaup og kjör hjá útgerðinni og varð
nokkur tregða á því sums staðar, svo
að bátar hófu ekki róðra almennt fyr
en komið var fram í mánuðinn. Gæftir
voru heldur stopular vegna vinda
framan af, en fiskur nægur og mátti
heita uppgripaafli í mörgum veiði-
stöðvum, en í-ýrnaði þó undir lok mán-
aðarins. — Hjá togurum varð afli frem-
ur tregur allan mánuðinn.
mannalAt
2. Gunnar Sigurðsson kaupmaður,
Reykjavík.
2. Magnús Arnbjarnarson lögfræð-
ingur, Selfossi.
2. Hallur Helgason yfirvélstjóri,
Akureyri.
3. Friðrik Kristófersson læknir (dó
vestan hafs).
5. Frú Málmfríður Valentinusdóttir
frá Stykkishólmi.
8. Guðmundur Jóhannsson (pr. Þor-
kelssonar), Reykjavík.
9. Magnús Guðmundsson trésmiður,
Grindavík.