Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1956, Side 6
r 202
* LBSBÓK MORGU NBLAÐ6INS
Man^
af timbrinu hér, og var þá afráðið
að halda til íslands.
Sunnudaginn 3. maí lögðu þeir
á stað. Var þá versta veður, storm-
ur og dimmviðri. Inn 8. maí sáu
þeir fyrst glóra í ísland, en vissu
ekki hvar þeir voru komnir að því.
Gekk nú vmist með stormum eða
logni og á þriðjudaginn 12. maí
sóu þeir Rrimnestanga í norð-
austri.
Svo stendur í dagbókinni 14.
maí: ..Klukkan 1 (um nóttina)
sigldum við rétt fram hjá Papev,
drógum upp fána til að biðja um
hafnsögumann, en enginn kom.
Klukkan 4 um morguninn vörp-
uðum við akkerum hiá verslunar-
staðnum Djúpavogi. Pramminn var
settur út og skipstjóri fór í land
við annan mann.“ En ekki lítur
út fyrir að þeir hafi getað selt
neitt þarna og á laugardagsmorg-
un 16. maí fóru þeir þaðan.
Simnudagsmorgun kl. 4 voru
þeir komnir alveg að Bjarnarskeri.
Rétt á eftir lygndi og urðu þeir að
setja út prammann og róa skipið
frá landi, svo að það strandaði ekki.
Þegar þeir þóttust úr hættu, var
festum kastað, en litlu síðar kom
á byr og drógu þeir þá upp segl
aftur. Þá stendur í dagbókinni 19.
maí: „Kl. 4 komum við inn á
Eskifjarðarhöfn, var þar kastað
bakborðsakkeri og gefnir út 40
faðmar af keðju. Seglin voru fest
og frá öllu gengið á þilfari. Skip-
stjóri fór í land. Klukkan 8 var
bátur sendur í land með nokkuð
af timbri og allt vkr undirbúið að
losa skipið". — Miðvikudaginn 20.
maí: „Dálítil gola. Bvrjaði að losa
og flutti f land nokkuð af timbri,
sem selt var. Síðan hvessti og varð
þá að hætta uppskipun. Renndi út
akkerfesti á enda“.
Þama lágu þeir f viku og voru
stöðugir stormar og hríðarel og
sama sem e. ^-i var skfpað á land.
Sigldu þeir sfðan inn 6 Reyðar-
fjðrð, og komu við á Breiðavík og
Karlsskála. En mánudaginn 22.
júní vörpuðu þeir akkerum í Seyð-
isfirði, og var það seinasti viðkomu-
staður. Þar seldu þeir það sem eftir
var af farminum, og nokkuð af
því á uppboði, eins og hér má sjá:
ÚTDRÁTTUR ÚR UPPBOÐSBÓK
NORÐUR-MÚLASÝSLU
No. Hið selda Kr. au.
1. 162 sty. 6 fóta borð ....
á 3.50 pr. 12 sty. ... 47.25
2. 4 tylftir 7 fóta borð.
á 4.50 pr. 12 sty..... 18.25
4. 49 sty. 6 fóta flettingar ....
á 2.50 pr. 12 sty...... 10.21
Samtals kr. 756.77
Fleira kom eigi til uppboðs. Upp-
boðsþingi slitið.
Einar Thorlacius.
Vitni: Teitur Ólafsson. Thomsen.
Laugardaginn 27. júnf: „Skip-
stjóri fór í land um morguninn til
þess að afgreiða skipið, er nú siglir
heðan til Mandal með seglfestu og
lítils háttar af vörum (10 tunnum
af lýsi, 20 tunnum af kjöti og nokk-
uð af ull. Auk þess eru tveir far-
þegar til Mandal)“, segir að Iok-
um í dagbókinni. Sunnudaglnn 28.
júní lögðu þeir á stað og komu til
Mandal eftir neer þriggja mánaða
útivist
w
Þannig var saga smáskipanna
sem ferðuðust með ströndum fs-
lands á vorin. En ekki tókst öllum
jafn giftusamlega, því að annálar
siglinganna geta um mörg hörmu-
leg slys á þeim árum.
Flest skipin tóku aðeins kjalfestu
til heimferðar, en sum fengu þó
eitthvað af vörum, einsog hér er
sagt, kjöt, ull, lýsi og fisk. Einstaka
sinnum fluttu þau lifandi hesta til
Skotlands, keyptu svo kol þar og
sigldu aftur til íslands með þau.
En þegar kom fram um 1890 var
það ekki svo sjaldgæft, að stærri
skipin tæki fiskfarm til Miðjarðar-
hafs hafna, og kæmi svo með salt-
farm þaðan, annaðhvort til íslands
eða Noregs.
Af kunnum kaupmönnum, skip-
stjórum og timbursölum í Mandal,
sem áttu mikil skifti við íslend-
inga, má nefna þá Albert Jacobsen
og Carl Lund; þeir gerðu og út
marga síldarleiðangra þangað á
árunum 1870—80. Otto Wathne
6kipstjóri settist að í Ssyðisfirði og
rak þar umfangsmikil viðekiftt
Hann kom m a, á föstum gufu-