Lesbók Morgunblaðsins - 30.06.1957, Qupperneq 8
364
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
dæminu en þegar öll kurl eru kom-
in til grafar, nemur þó sparifjár-
upphæð þeirra nákvæmlega jafn
miklu og hinna fyrri. En veltufé
atvinnulífsins varð helmingi
minna.
Af þessu leiðir, að þegar atvinnu-
leysi er mikið, þá hvetja yfirvöld
menn til að spara minna en eyða
meira, því að það eykur atvinnu.
En þegar allir hafa vinnu og kapp-
hlaup hefst milli kaupgjalds og
vöruverðs, þá hvetja yfirvöldin
menn mjög eindregið til þess að
spara. Það hjálpar til að draga úr
verðþenslunni.
(Úr Essential Knowledge to All).
— Iþaka
Frh. af bls. 360
skomar af gljúfrum mörgum og
kynlegum með undarlegum berg-
lögum og fossandi lækjum. Skoð-
uðum við þessi náttúruundur, sem
gefa staðnum sérkennilegan svip.
Skuggalegir og snarbrattir hamra-
veggir skera skógivaxnar hlíðar,
og þeir veita íslendingnum nokkra
uppbót fyrir hrjóstrin, sem hann
saknar alltaf öðmm þræði í gróð-
ursæld hlýrri landa.
Um kvöldið gengum við út í
garðinn í Brekkukoti. Klukkan var
tíu, loft kyrrt og þungbúið, niða-
myrkur. Ekkert ljós nema eldflug-
umar, sem gneistuðu í myrkrinu.
Þetta var 21. júní, lengsti dagur
ársins. Við vorum að tala um land-
ið í norðri, sem við vissum, að nú
mundi glóa í skarti fegurstu lita.
Sú hugsun greip mig, hversu
víða og með hve undarlegu móti
íslenzk menning reynir að skjóta
rótiun, stundum, að því er virðist
í fyrstu, af einskærri tilviljun eins
og hér, og hve nauðsynlegt væri,
að við hér heima misstum ekki
sjónar á eða gleymdum þeim
gróðri.
FRÁ IÞÖKU
Eitt af gljúfrunum í grennd við fþökn. Foss þessi er hinn hæsti í Bandaríkjun-
um austan Klettafjalla.
BENEDIKT SKALD ÞÓRÐABSON
bjó lengi í eyðibýli, er kallast Herj-
úlfsstaðasel, upp frá Álftaveri, fyrir
austan svokallaða Skálm. Er býli þetta
rétt andspænis Kötlugjá. Greip hann
þar kvíði og áhyggja svo stór, að Katla
mundi bráðum hlaupa og granda vam-
aði sinum, en ómögulegt þaöan að kom-
ast, ef bráðan að bæri, vegna vatna
á allar síður, að hann með engu móti
eirði þar lengur, fekk sér húsmennsku
uppi í Skaftártungu og var þetta hans
2. eða 3. ár þar. Og samt réði Kötlu-
vatn honum skapadægur! Hann var
fenginn til að fylgja þeim Þórarni
Öefjord sýslumanni og séra Páli Ólafs-
syni úr Tungunni út yfir sandvötnin
sunnudaginn 14. sept. 1823, en þeir
drukknuðu þrír, eða réttar aur og
sandkæfðust í nýorðnu vatnsfalli fyrir
austan Hafursey, er nú heitir Kötlu-
kvisl. (Sveinn Pálsson).