Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.1957, Side 4
440
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
ÞETTA GERÐISTIÁGÚSTMÁNUÐI
FINNSKU forsetahjónin, Urho o?
Sylvi Kekkonen, komu hingað í
opinbera heimsókn, ásamt utanrik-
isráðherra Finna. Stóð sú heimsókn
i þrjá daga. Siðan var forsetanum
boðið á laxveiðar einn dag, og svo
norður að Akureyri og Mývatni.
tslenzka ríkisstjórnin sneri sér til
dönsku ríkisstjórnarinnar með ósk
um að skipuð yrði nefnd Dana og
lslendinga til að ræða um handrita-
málið. Forsætisráðherra Dana tók
þeirri málaleitan vel. Var þetta síðan
borið undir þingfiokkana dönsku, og
þar við sat í lok mánaðarins.
VEÐRÁTTA
mátti kallast góð í þessum mánuði
drepsóttin gekk 1918—19 var á
ýmsum stöðum tilfinnanlegur
skortur á matvælum, hjúkrunar-
fólk komst ekki yfir það sem þurfti
að gera, og flutningar tepptust. Nú
er þjóðfélagskerfið miklu flóknara
en þá var, og ef einn hlekkur bil-
ar er allri keðjunni hætt. Þess
vegna verða allir að njálpa, hvar
sem þeir geta.
----o----
Enda þótt þessi nýa inflúensa
kunni að reynast hættuleg, þá
stöndum vér miklu betur að vígi
en 1918. Nú eigum vér ýmis varn-
arlyf sem voru óþekkt þá. Nýu
fúkkalyfin munu áreiðanlega
bjarga fjölda manna, þótt menn
fái lungnabólgu. Bólusetning, enda
þótt bóluefni yrði af skornum
skammti, ætti að geta varið þá,
sem nauðsynlegustum störfum
hafa að gegna, og þá sem veikir
eru fyrir. Betri skipan heilbrigðis-
mála og betri stjórn bæarfélaga
ætti og að tryggja að öll varnar-
ráð komi að gagni.
og var þó meira um rigningar en í
júlí. Heyskapur hefir yfirleitt gengið
ágætlega um land allt, og höfðu bænd-
ur fengið meiri og betri hey en dæmi
munu um. Þó hröktust hey nokkuS
í Skaftafellssýslu og Austfjörðum
vegna skúraleiðinga.
AFLABRÖGÐ
Vertíð herpinóta og hringnótaskip-
anna lauk 19. og hafði þá lítið sein
ekkert veiðzt í 5 daga. Hæstan afla
fekk Snæfell frá Akureyri, 10.059 mal
og tunnur, og næstur var Víðir II. ur
Garði með 9056 mál og tunnur. Síðar
stunduðu nokkrir bátar reknetjaveið-
ar fyrir norðan og austan, og var salt-
síldaraflinn orðinn 149.000 tunnur um
mánaðarlok. Upp úr miðjan mánuði
voru hafnar reknetjaveiðar vestan
lands, en gengu fremur illa og var
síldin horuð.
Togarar veiddu sæmilega. Karlsefni
seldi fyrstur togara ísfisk í Þýzkalandi,
139 tonn fyrir 103.700 mörk, sem var
gott verð (31.)
Það var talið til tiðinda að háhyrn-
ingur veiddist inni á Akureyrarpolli,
5 metra langur og vóg 3 tonn (14.)
ELDSVOÐAR
Stórbruni varð í heyhlöðu á Stökk-
um á Rauðasandi og brunnu tvö kýr-
fóður af töðu (10.)
Eldur kom upp í húsinu Staðarhó'.i
á Akureyri og brann þar inni ungur
maður, Ragnar Ástráðsson frá ísa-
firði (20.)
Eldur kom upp í seglasaumastofu i
Reykjavík og varð þar talsvert tjón
(24.)
BÍLSLYS
Þrír bílar lentu saman í árekstri hjá
Hamrahlíð í Mosfellssveit, skemmdust
allir meira og minna og einn bílstjór-
inn slasaðist (3.)
Bíll ók á fleygiferð niður í opið ræsi
á þjóðveginum í Lundarreykjadal. Sex
menn meiddust (13.)
Drengur varð fyrir bíl í Reykjavik,
meiddist nokkuð en þó ekki hættu-
lega (17.)
Bíll rakst á ljósastaur í Reykjavik
og slasaðist bílstjórinn allmjög (22.)
Átta ára telpa varð fyrir bíl í Rvík
og meiddist nokkuð á höfði (22.)
Bíll bilaði í Vatnsskarðsbrekku á
Krýsivíkurvegi, hrapaði og fór þrjár
veltur. Tveir menn í framsæti slösuð-
ust mikið, en 3 börn í aftursæti sluppu
ómeidd (27.)
Þriggja ára drengur varð undir bí!
í Reykjavík og fótbrotnaði illilega. —
Annar drengur 9 ára varð fyrir bíl i
Hafnarfirði og handleggsbrotnaði (30. i
AÐRAR SLYSFARIR
Jón Ingvar Árnason, maður á bezta
aldri, varð fyrir árás á götu og beið
bana af meiðslum (2.)
Norskt síldveiðiskip, Bövik frá
Haugasundi, strandaði við Unaós. —
Mannbjörg (10.)
Tíu ára drengur slasaðist til bana i
Borgarfirði. Var að flytja mjólk á hest-
vagni, en hesturinn fældist (10.)
Guðmundur K. Guðmundsson, Siglu-
firði, drukknaði í fiskiróðri, var einn
á báti. Rak lík hans og bátinn í Héð-
insfirði (28.)
Norskt heimskautsfar, Polarbjörn,
fórst í ís við austurströnd Grænlands.
Amerískur kopti frá Thule bjargaði
skipshöfninni, en flugvél frá Keflavík-
urflugvelli sótti hana norður (31.)
MANNALAT
Frú Guðbjörg Skúladóttir Sigurz,
Reykjavik (31. júlí).
4. Frú Jensina Guðmundsdóttir,
Óspakseyri.
5. Frú Sigríður Sveinsdóttir, Skarði,
Gönguskörðum.
5. Ragnhildur Magnúsdóttir, Hafnar-
firði.
8. Geir Marino Vestmann sjómaður,
Akranesi.
11. Ingibjörg Sigríður Jensdóttir,
Magnússkógum, Dal.
12. Barði Guðmundsson þjóðskjala-
vörður, Reykjavík.
12. Friðrik Magnússon frá Látrum I
Aðalvík.
12. Axel Sveinsson verkfræðingur,
Reykjavík.
13. Guðmundur Guðmundsson, tré-
smíðameistari, Reykjavík.