Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Blaðsíða 1
33. tbl.
Sunnudagur 22. sept. 1957
xxxii árf.
Kraftaverk hefir skeð /
malum V.-Þýzkalands
TVISVAR SINNUM á þessari öld
hefir Þýzkaland verið lagt í rústir.
Og þegar seinni heimsstyrjöldinni
lauk, heldu menn að það ætti sér
ekkí viðreisnar von. Borgir þess
voru rjúkandi rústir, iðnaðurinn
var í kalda koli, vöruskortur, hung-
ur og atvinnuleysi þjakaði þjóðina,
verslun var engin, bankar gjald-
þrota. Ofan á þetta var landið svo
limað sundur og Rússar lögðu und-
ir sig austurhlutann, beztu land-
búnaðarhéruðin.
En þó hefir Vestur-Þýzkaland
rétt við svo glæsilega, að menn
segja að þar hafi kraftaverk gerzt.
Nú er þar allt í uppgangi, þjóðin
græðir á tá og fingri, og helzta á-
hyggjuefni hennar er það, hve mik-
ið hrúgast þar upp af gulli.
Þetta kraftaverk skeði vegna
þess, að Bandaríkin veittu Þýzka-
landi Marshall-aðstoð til þess að
koma undir sig fótunum. En aðal-
lega er það þó einum manni að
þakka, og sá maður er Ludwig Er-
hard.
Erhard er fæddur í Bayern 1897.
Þegar hann var 17 ára hófst heims-
styrjöldin fyrri, þrengingar, hung-
ur og síðan ósigur og gengishrun.
Erhard stundaði þó nám og varð
viðskiptafræðingur. Með lærdómi
sínum og reynslu komst hann að
þeirri niðurstöðu, að heilbrigt við-
skiptalíf gæti því aðeins þróast, að
gjaldmiðill væri öruggur og fram-
boð og eftirspurn réðu vöruverði.
Svo komst Hitler til valda. Er-
hard vildi ekki ganga í flokk hans,
og þar með var það útilokað oð
hann yrði háskólakennari, eins og
hann hafði gert sér vonir um. En
hann varð forstjóri Nationalökono-
misk Institut í Nurnberg. Þeirri
stöðu fekk hann þó ekki haldið,
vegna þess að hann vildi ekki
ganga í Arbeitsfront Hitlers. Hon-
um var vikið frá starfi 1942.
Þessi afstaða hans gagnvart
Hitlersstjórninni var meðmæli með
honum í augum bandamanna, og
þegar á árinu 1945 var hann gerður
að viðskiptamálaráðherra í Bayern.
Þremur árum seinna var hann svo
gerður að viðskiptamálaráðunaut á
hernámssvæðum Bandaríkjanna og
Bretlands og var honum falið að
koma efnahag Þýzkalands á rétt-
viðskipta-
Erhard
an kjöl. Hafði hann til þess fulltingi
Lucius D. Clay hernámsstjóra
Bandaríkjanna. Og þar með hófst
nýsköpunin og gekk Erhard rögg-
samlega til verks. Hann byrjaði á
því að afnema hina þýzku mynt,
sem þá var fallin niður úr öllu
valdi. og gefa út nýa mynt. Þetta
kom yfir alla sem reiðarslag, en svo
kom annað rétt á eftir: „Öll
skömmtun er afnumin. Frá degin-
um i dag mega menn kaupa hverja
þá vöru, sem í búðum er — ef þeir
hafa peninga“. í einu vetfangi var
skömmtun og verðlagseftirlit af-
numið, en við það höfðu Þjóðverj-
ar átt að búa í níu ár.
»