Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Blaðsíða 12
480 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS sömu tilfinningu og þau væru upp- vaxandi börn. Og nú skulum vér reyna að skyggn- ast eitthvað örlítið inn í „blik“-skóg- inn. Þú hefur ef til vill furðað þig á inum sama uppruna sígrænna trjáa. Um það er eftirfarandi saga sögð, en á þó ekk- ert skylt við skógræktarfræði eða jurtafræði yfirleitt: Vængbrotinn smáfugl flögraði og barðist einn saman gegnum skóginn, grátandi og biðjandi um hjálp frá trjánum. „Ég hef nóg með mín eigin akorn“, sagði Eikin. „Ég get ekkert hjálpað þér“. — Birkið var svo yfir- upplyft af sjálfu sér eftir vetrarþung- ann og allt of hreykið til að tala við annan eins aumingja. Grátviðurinn (víðirinn) var of niðurbeygður af rambi sínu og raunum til að hlusta á vandræði annarra. En Furan sagði við vesalinginn litla: „Þú mátt búa í greinum mínum“. Grenið bætti við: „Fyrst Furan er svona góð við pig að gera þetta, skal ég vernda hana fyir köldum vindum". Einirinn mælti er hann heyrði þetta: „Fyrst stóru trén, Furan og Grenið, eru svona góð við litla fuglinn særða, skal ég gefa honum fögur ber sem fæðu“. Fyrr en varði kom Vetur konungur. Norðanvindurinn spurði, hvort hann ætti ekki að taka öll laufin af trjánum og feykja þeim víðsvegar eins og væri þegar Vetur konungur gengi í garð? Móðir-Náttúra svaraði og sagði: „Þú mátt taka öll laufin, nema af þeim trjám, sem gáfu vesalings litla, særða, fuglinum rainum skjól“. — Þessvegna er það, að við höfum sigræn tré. Litli, særði fuglinn gréri og eignað- ist marga afkomendur. Og allir syngja þeir sígrænum skóginum lof og dýrð: Grenið vetrargræna, góða tréð á jörð; krónan vaxtar-væna vermir kaldan svörð. Og Furan fagra, eina, í fínum, grænum kjól, móðirin milda, hreina mér gaf líkn og skjól. Lát oss lifa, Faðir, líkt og Greni-tré, er um aldaraðir öllum gefur hlé. Og Furan, sem oss sjúkum samdi yl — og skjól, hana mildum, mjúkum mundum vefji sól. Gef oss grænan Eini, gef oss Hlyn og Þin, gef oss góðan Reyni og glæsta Björk að vin. Faðir, ger mig Greni, ger mig Ösp og mann, Rós og vænan Víði, sem vaxa í skógi kann. Ég stend við sólarsteininn, ið forna altari papanna í skóginum. Veðrið er eins stillt og fagurt sem fegurst má verða, og næturdaggirnar drjúpa og anga. Sólin er enn ekki risin, en bjarmi hennar og gullin-geislandi bros boða komu hennar. Um þetta leyti sumars svifar henni fyrst upp um óttuskeið akandi upp í heiðarskarðið, beint i norðurátt, og birtist þar öll. Sólarkross- inn, sem höggvinn er í altarið, segir manni hvar uppkomu hennar er að vænta á þessum árstíma. Sólin birtist í heiðarskarðinu í allri sinni dýrð og dásemdum, en hefur skamma viðdvöl og gengur aftur undir og fer bak við fjallið til austuráttar. Heil eykt fer jafnan í fjallbaksförina því bunguvax- inn barmur fjallsins fer hækkandi svipað sólarganginum. En er sólin gætir upp yfir hæstu hæðina, falla fyrstu geislar hennar beint á Krists- krossinn, sem einnig er markaður á altari Papanna, sem voru hérna að verki á undan landnámi norrænna manna. Sennilega hafa þeir þá séð áru skógarins, sem er ólýsanleg öðruvísi en í söng fuglanna hér að framan, er ég reyndi að skýra í lítilli frásögn og litlu ljóði. Það var í einhverjum gullnema- bæ, að vasaþjófur var leiddur fyrir rétt og dómarinn sektaði hann um 15 dollara. —Eg get ekki borgað þá, sagði vasaþjófurinn, eg hefi ekki nema tíu dollara á mér. Þá sneri dómarinn sér til mann- fjöldans, sem þar var saman kom- inn til að hlýða á, og sagði: — Rétturinn tekur sér nú fimm mínútna hvíld. Á meðan gengur ákærði um salinn og kemur svo til mín aftur. Eitraðir fiskar AMERÍSKUR sérfræðingur, dr. Bruce W. Halstead, hefir nýlega ritað grein í tímaritið „Scope Weekly“ og segir þar að mönnum sé hætta búin af eitruðum fiskum. Telur hann upp 350 tegundir fiska, sem fram að þessu hafi verið hafðir til manneldis, en hafi nú tekið í sig einhverja ókunna eitrun. Hinum eirtuðu fiskum fari stöðugt fjölg- andi og þeir dreifist yfir æ stærra svæði. Aðallega beri á þessu í Kyrrahafinu frá 45 gr. norður- breiddar til 45 gr. suðurbreiddar. Menn veikist af því að eta hina eitruðu fiska, og jafnvel geti eitrið orðið mönnum að bana. Þetta fyrir ■ bæri sé mjög alvarlegt, einkum fyrir Japana og íbúa á mörgum Kyrrahafseyjum, svo sem Hawaii og Filipseyum. Hann segir enn fremur: „Eitrið í fiskunum er alveg nýtt og óþekkt. Vér vitum engin deili á því. Það þolir suðu og þess vegna er niðursoðinn fiskur jafn hættu- legur og nýr fiskur. Vér kunnum engin ráð til þess að lækna þá, sem orðið hafa fyrir þessari eitrun. Og ekki verður heldur skjótlega skor- ið úr því hvort fiskur er eitraður eða ekki“. Þegar menn eta þennan eitraða fisk, koma ýmis sjúkdómseinkenni í ljós, svo sem sviði í munni, snögg- ir og breytilegir verkir í vöðvum, meltingartruflanir, lömun og stundum mikill sinadráttur. Af þeim sem veikjast deyr 20. hver maður. Vísindamaðurinn segir að svo virðist sem eitrið geri fiskunum sjálfum ekkert til.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.