Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Síða 15
dollara tekjur á ári þykir hátt
kaup, en þegar skattar eru dregnir
frá, þá er það þó ekki nema tífalt
kaup lægst launuðu verkamanna,
og aðeins fimmfalt meðalkaup
þeirra, sem vinna við iðnað.-----
Það er ekkert undarlegt þótt auð-
valdsskipulag leiði til jafnaðar á
kjörum manna. Skýringin liggur í
augum uppi. Stórframleiðsla bygg-
ist á stóreyðslu, en hún er óhugs-
andi nema því aðeins að almenn-
ingur hafi mikið fé handa á milli.
Karl Marx krafðist eignanáms til
þess að jafna kjör mannanna. Hann
þekkti ekki og skildi ekki lög við-
skipcalífsins. Hann hélt því fram,
að aukinn vélakostur vegna auk-
innar framleiðslu, mundi eingöngu
notaður til þess að auðga eigend-
urna, en alþýða manna sökkva
dýpra og dýpra niður í vesaldóm,
eftir því sem afköstin yrði meiri.
Nú vitum vér að þetta er fals-
kenning. Reynslan hefir sýnt að
þróunin hefir orðið öll önnur. í
Bandaríkjunum afkasta vélar nú
95% af framleiðslu verksmiðjanna,
en handafl verkamanna aðeins 5%.
En kaup þeirra manna, sem við vél-
arnar vinna, er tíu sinnum hærra
en hagnaður sá, er eigendur vél-
anna hafa af þeim.
Marx hélt því fram, að jöfnuður
á þjóðartekjunum fengist ekki
nema með „socialisma". Þess vegna
vildi hann afmá samkeppnis-
skipulagið. En nú er það einmitt
hin frjálsa samkeppni auðvalds-
skipulagsins, sem hefir skapað
þann jöfnuð, sem hann barðist
fyrir.
Hagfræðingur nokkur sagði einu
sinni:
— Sú stórþjóð, sem haldið hefir
fastast við einkaframtakið, hefir
komist lengst í lýðfrelsisátt: að
skapa stéttalaust þjóðfélag, þar
sem allir hafa nóg fvrir sig að
leggja. —
(Economic Facts of Life)
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 483
HEILBRIGÐISTÍÐIIMDI
GERFIFÆÐA
Vísindamenn í Chicago hafa
fundið upp nýa fæðublöndu. Er
það duft, sem hrært skal út í vatni.
Þar er blandað saman í réttum
hlutföllum eggjahvítuefni, kol-
vetm, fitu, fjörefnum og malmsölt-
um. Þarf ekki nema nokkrar mat-
skeiðar í eitt vatnsglas til þess að
þetta jafngildi máltíð, og annan
mat þarf ekki. Þetta duft var fund-
ið upp vegna þeirra sjúklinga, sem
ekki þola að snæða algengan mat,
einnig handa þeim, sem hafa of
háan blóðþrýsting, hjartaveilu eða
krabbamein. Þetta er og talin ágæt
fæða handa heilbrigðum mönnum,
sem vilja megra sig eða forðast of-
fitu. Læknar segja að þetta sé
betri fæða en nokkur önnur, vegna
þess að með henni sé tryggt að
sjúklingar fái öll þau efni, sem
líkami þeirra þarfnast. En ekki
fæst þessi fæða nema með læknis-
ráði.
RÁÐ VIÐ RISTLI
Ristill er slæmur og kvalafullur
húðsjúkdómur, sem menn ætla að
stafi frá vírum. Nú hefir fundizt
einkennilegt ráð við þessari veiki.
Sjúkling er tekið blóð og svo er um
15 dropum af því spýtt inn í vöðva.
Dr. Fred J. Ensfield í Glidden í
Wisconsin, sem fundið hefir upp
þetta ráð kallar það „autohemot-
herapy“. Segir hann að 52 sjúkling-
ar hafi fengið góðan bata af því
og telur að ástæðan sé sú, að við
þetta aukist efnið „gamma globul-
in“ í líkamanum (blóðinu), en
þetta efni er bezta vörn líkamans
gegn sýklum.
HJUKRUN HEIMA
Læknar hafa komizt að þeirri
niðurstöðu, að sjúklingar sem hafa
gengið undir lítilfjörlegan upp-
skurð, sé látnir liggja of lengi f
sjúkrahúsum. Þeir geti farið heim
á þriðja degi, þar líði þeim betur og
þar batni þeim fyr. Auk þess losni
þeir við kostnað, en fleiri sjúkling-
ar komist að í sjúkrahúsunum.
Ekki má þó senda sjúkling heim
nema því aðeins: að hann geti rölt
um, að einhver sé heima til þess að
líta eftir honum, að heimilislækn-
ir skifti um umbúðir fyrst í stað,
og að ekki sé neinn vottur af ígerð
í skurðinum.
HJARTVEIKI
í „Connecticut Medical Journal“
er þess nýlega getið, að hjartveiki
aukist nú meðal manna undir fer-
tugsaldri. Þeim sé hættast við
henni sem vasast í mörgu, eru feit-
ir og þrekvaxnir, reykja mikið og
eru mjög loðnir á brjósti og fingr-
um. Sagt er frá 20 sjúklingum, ung-
um karlmönnum. Níu þeirra höfðu
orðið varir við óþægindi af krón-
æðastíflu (angina pectoris) um
mörg ár í hvert skifti sem þeir
reyndu mikið á sig. Hinir 11 höfðu
ekki kennt sér neins meins fyr en
áfallið kom. Enginn þessara sjúk-
linga lézt, og flestir voru orðnir
vinnufærir eftir 2—3 mánuði, og
kenndu sér þá einkis meins. Til
þess að forðast annað áfall, var
þeim ráðlagt að borða ekki mikla
fitu, reykja lítið og reyna ekki of
mikið á sig.
IONIAZID
heitir meðal, sem notað hefir
verið með góðum árangri til að
eyða berklaveiki á byrjunarstigi.
Það er mjög ódýrt og er tekið inn.
í Bandaríkjunum á nú að gefa það
öllu heimilisfólki, þar sem einhver
hefir sýkzt af berklum, í von um að
með því megi takast að hefta
smitun.
f