Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1957, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
589
Brunarústirnar
í Svartagili
hjá Rauðavatni, fór í loftköstum en
menn sakaði ekki (3.)
SvoKÖlluð umferðarvika í Reykjavík.
Þá fengu bílstjórar ókeypis athugun á
ljósum bílanna og kom upp úr kaíinu
að einungis fáir bílab voru með rétt
ljós (3.)
Kona í Reykjavík ók jeppa á vörubíl
og meiddist talsvert (11.)
Piltur í Reykjavík var dæmdur 1
1000 kr. sekt fyrir of hraðan akstur á
götunum (13.)
I einni viku voru 16 bílstjórar teknir
og dæmdir fyrir að vera ölvaðir við
stýri (12.)
Harður bílaárekstur varð í Reykja-
vík, en menn sakaði ekki (16.)
Guðni Jónsson vélstjóri í Keflavík,
varð fyrir bíl og beið bana (19.)
Kristján Guðmundsson starfsmaður
við Rúgbrauðsgerðina í Reykjavik,
varð fyrir bíl á götu, fluttur í spítala,
lá þar rænulaus í viku og andaðist síð-
an (20., 29.)
í umferðarvikunni, þegar allir skyldu
aka gætilega, lentu 90 bílar í árekstr-
um, en 10 menn slösuðust meira og
minna (20.)
Bílslys varð í Reykjavík vegna þess,
að bilstjórinn ætlaði að laga til í bíln-
um með annarri hendi meðan hann var
á ferð, ók svo beint á ljósastaur (20.)
Albert Sw. Ólafsson starfsmaður h.iá
Strætisvögnum, varð fyrir strætisvagni
á leið til vinnu og beið bana (22.)
Fimm ára drengur varð fyrir bíl 1
Kópavogi og stórslasaðist (22.)
Kona varð fyrir bíl í Reykjavík,
flutt meðvítundarlaus í spítala, reynd-
ist fótbrotin og sködduð á höfði (25.)