Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.1957, Page 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
615
AHalsteinn Sigurðsson:
Útdauðir risastrúfar
EINS og kunnugt er, geta strút-
fuglarnir ekki flogið vegna þess
að vængirnir eru svo litlir og flug-
vöðvarnir einnig. Það er auðskilið,
að slíkir fuglar eiga örðugra með
að forðast óvini sína, en hinir, sem
geta lyft sér til flugs, þegar hætta
steðjar að. Maðurinn hefir reynzt
einhver skæðasti óvinur ófleygra
fuglategunda, og má í því sam-
bandi minna á örlög geirfuglsins,
sem útrýmt var til fulls hér við
land rétt fyrir miðja 19. öld, og
dúdúfuglsins, sem útrýmt var á
Mauritiuseyju um eða fyrir alda-
mótin 1700.
Hér verður ekki úr því skorið,
hvort maðurinn hefir átt nokkurn
þátt í útrýmingu fugla þeirra, er
sagt verður frá hér á eftir, en ó-
sennilegt virðist það ekki vera.
Strútfuglarnir eru mjög fráir á
fæti og fætur þeirra sterkbyggðir,
og eru líka einustu vopn þeirra,
ef í hart fer, og sparka þeir þá af
miklu afli fram fyrir sig, og er
betra að verða ekki fyrir slíku
sparki.
Afríkustrúturinn er oft geðillur,
a. m. k. þegar hann er hafður i
haldi og getur þá verið hættuleg-
ur. Það er sagt til marks um það
hve fast hann getur sparkað, að
maður nokkur flýði á bak við þak-
járnsplötu, en strútur, sem elti
hann, og var í vígahug, sparkaði
gat á plötuna.
Afríkustrúturinn er stærstur
allra núlifandi fugla, og getur karJ-
fuglinn orðið allt að 3 m. á hæð.
Það hafa þó verið til stærri fuglar,
sem nú eru útdauðir, en það eru
Madagaskarstrútarnir og móafugl-
arnir.
Madagaskarstrútarnir
Frá því á öndverðu kvartertíma-
bilinu og sennilega fram undir
vora daga lifðu 4 tegundir ai risa-
vöxnum strútfuglum á Madagask-
Beinagrindur úr móafugli og manni.
Hér má sjá, hve gríðarstór þessi fugi
hefir verið. (Th. Benzinger)
ar. Svo heppilega vill til, að það
hafa fundizt næstum heilar beina-
grindur af þessum gríðarstóru
fuglum, svo að hægt hefir verið að
gera sér í hugarlund, hvernig þeir
hafa litið út.
Stærsta tegundin var yfir þrjá
metra á hæð. Eggin hafa að meðal-
tali vegið um 9 kg., en þó heíir
fundizt egg, sem hefir vegið yfir
12 kg., með öðrum orðum, egg sem
hefir verið 5 sinnum stærra en
venjulegt strútsegg.
Fyrstu frásagnirnar um þessi
egg, eru frá 1831, en þá flutti
franskur flotaforingi nokkur þeiira
frá Madagaskar til Höfðaborgar.
Mesta athygli vakti það þó, er
franskur kaupmaður, sem var á
norðurströnd eyjarinnar árið 1848,
komst að því, að innfæddur höfð-
ingi notaði ker, sem var gert úr
risavöxnu eggskurni. Það var svo
stórt, að það tók innihaldið úr
13 vínflöskum. Kaupmaðurinn
vildi kaupa þetta undraverða egg,
en það var því miður ekki falt, þar
Fremst á myndinni vinstra megin er hænuegg, og á bak við það getur að líta
egg Madagaskarstrúts. Fremst á miðri myndinni er egg Afríkustrúts og lengst
til hægri egg móafugls. Jafnvel egg Afríkustrútsins er smávaxið í samanburði
við egg risastrútanna útdauðu. (Lucas)