Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1958, Blaðsíða 1
Elztu borgarar þessa heims
eru grenitré
SVO HEFIR verið talið fram að
þessu, að „sequoia“-trén í Kali-
forníu væri elztu borgarar á jörðu
hér. Af þeim eru til tvær tegundir.
Er önnur nefnd „sequoia gigantea"
(trérisinn), en hitt „sequoia semp-
ervirens" (eða tréð ævarandi). Það
nafn hefir það fengið vegna þess
að þótt það sé höggvið, sprettur
nýtt tré upp af rótum þess, en hin
trén vaxa aðeins upp af fræi. Og
þótt trén geti orðið svo risavaxin,
sem nafnið bendir til, er fræ þeirra
örsmátt eins og mustarðskorn.
„Sequoia sempervirens" verður
ekki jafn gamalt og hitt, þrátt fyr-
ir nafn sitt, en þó hafa fundizt tré,
sem eru allt að því 2200 ára gömul.
Risatrén eru miklu eldri, og eru
nú 45 ár síðan að Ellsworth Hunt-
ington tók sér fyrir hendur að
rannsaka aldur þeirra. Voru þá
mörg tré felld og árshringar í stofn-
unum taldir. Fjögur þeirra reynd-
ust þá vera 3000 ára gömul. Eitt
tré, sem fellt var árið 1892, reynd-
ist yfir 3212 ára gamalt.
Annar fræðimaður, John Muir
að nafni, vann að rannsóknum á
aldri trjánna þarna um 1880. Maðal
/ Hvífufjöllum
Eitt af elztu trjánum, feyskið, en þó
lifandi.
annars rannsakaði hann þá stofn
á tré, sem brunnið hafði, og taldist
honum svo til, að það mundi hafa
verið 4000 ára gamalt. Þó gat hann
þess, að árshringarnir hefði verið
í Kaliforníu
mjög ógreinilegir og illt að telja
þá. Síðan hefir oft verið leitað að
leifunum af þessu brunna tré til
þess að reyna að ganga fyllilega úr
skugga um aldur þess, því að nú
hafa verið mjög endurbættar að-
ferðir til þess að telja árshringa.
En leitin hefir ekki borið neinn
árangur, og verður rannsókn Muirs
því ekki talin óyggjandi.
Talið er, að stærstu risatrén
muni vera elzt allra. Þeirra á með-
al er tré það, er Bandaríkjamenn
hafa gefið nafnið „General Sher-
man“. Það er algjörlega friðheil-
agt. Árið 1930 rannsakaði dr. A.
E. Douglas það eins nákvæmlega
og honum var unnt. Komst hann
að þeirri niðurstöðu að tréð mundi
3500 ára gamalt. Með öðrum orð-
um, það hefir verið farið að gægj-
ast upp úr moldinni áður en Móses
fæddist. Þrátt fyrir þennan háa
aldur eru engin ellimörk á þessum
risatrjám, og sérfræðingar segja
að allar likur mæli með því að
þau muni geta lifað fram um alda-
mótin 5000. Samkvæmt því ætti
þau að vera cvo sem miðaldra nú!
En nú hafa nýlega fundizt önn-
/