Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1958, Page 12
196
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
V ára gamall
lerkiskógur á
Hallormsstað. —
1 vor hefir Skóg
ræktin 1.5 millj
plöntur til
gróðursetningar.
• N . >
■ V
þess að gefa íslendingum ráð um betri
hagnýtingu úrgangsefna í fiskvinnslu-
stöðvum (5.)
Nýtt orkuver fyrir Bolungavík tók
til starfa. Hefir stöðin 600 hestöfl (7.)
Kjartan Friðberg Jónsson vélstjóri í
Reykjavík hefir fundið upp nýa beitu-
skurðarvél, sem farið er að nota á
Akranesi (7.)
Nýr vélbátur, Freya, 64 lestir, kom
til Súgandafjarðar. Báturinn er smíðað-
ur í Danmörk (8.)
Bæar- og héraðsbókasafn Keflavíkur
og Gullbringusýslu var opnað til af-
nota fyrir almenning (12.)
Nýtt fiskiðjuver tók til starfa í Seyð-
isfirði .(13.)
Sjúljraskýli tók til starfa í Bolunga-
vík (14.)
Lokabólusetning gegn mænuveiki
fór fram í Reykjavík (18.)
Skógræktin hefir 1,5 milljón plöntur
til gróðursetningar í vor (18.)-
Starfsfræðsludagur í Reykjavík og
leituðu 1200 upplýsinga þangað (25.)
Nýr vélbát'ur, Haförn, 193 lestir, kom
til Hafnarfjarðar. Var smíðaður *
Haugasundi í Noregi (26.)
Flugfélag íslands fer 8 ferðir viku-
lega til Kaupmannahafnar í sumar (28.)
Síldarverksmiðjan á Dagverðareyri
verður flutt til Vopnafjarðar og Nes-
kaupstaðar. (28.)
FJÁRMÁL OG VIÐSKIPTI
Útsvör í Neskaupstað hækka um
25% (4.)
Loftleiðir hafa gert samning við
írska flugfélagið B. K. S. um gagn-
kvæma fyrirgreiðslu (5.)
M. René Sergent .forstjóri Efnahags
samvinnustofnunarinnar OEEC kon
hingað ásamt tveimur öðrum. Hanr
sagði að þótt ísland væri minnsta ríkic
í þeim samtökum, væri þar oftar rætí
um efnahagsmál þess en nokkurs ann~
ars ríkis (5.)
Viðskiptasamningur íslands og Spán:
ar hefir verið framlengdur til lok;
þessa árs (7.)