Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1958, Síða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
197
Merkileg björgun. Bandariski koptinn hjá norska selveiöaranum norður í heimskautsisni'
Hækkað var verð á tóbaki og áfengi
(7.)
Flugfélag íslands hefir selt gamla
Gullfaxa til Suður-Afríku og munu ís-
lenzkir flugmenn fljúga honum þangað
(7.)
Vöruskiptajöfnuður varð óhagstæður
um 20,5 milljónir króna í janúarmánuði
(7.)
Verslunarsparisjóðurinn í Reykjavík
hefir eflzt mikið. Hafði um áramót
fengið 56.4 milljónir króna til veltu.
Hefir hann nú keypt húseignina Vest-
urgötu 2 (gamla Bryggjuhúsið) (11.)
Verslunarfélag var stofnað í Njarð-
víkum (12.)
Yfirfærslur hafa gengið erfiðlega að
undanförnu og er orðinn hörgull á ýms-
um hráefnum fyrir iðnaðinn (14.)
Viggo Christiansen forstjóri upplýs-
ingaskrifstofu Alþjóðabankans, kom
hingað í kynnisför (14.)
Otsvör í Hafnarfirði hækka um 2
milljónir kr. (18.)
Vísitalan var óbreytt, 191 stig (18.)
Viðskiptasamningur var gerður við
Pólverja (25.)
Hvassafell flutti 47 hesta frá Akra-
nesi til Þýzkalands (28.)
BJÖRGUN
Tveggja ára drengur fell í djúpa
vatnsgróf í Keflavík, en með snarræði
tókst móður hans að bjarga og lífga
hann við (18.)
Fjórtán ára drengur í Stykkishólmi,
Jakob Sigurbjörnsson, bjargaði tíu ára
dreng frá drukknun þar í höfninni (25.)
Norskt selveiðiskip, statt langt norð-
ur í hafísnum, bað um aðstoð vegna
þess að einn skipverji hafði slasast
hættulega. Stór Globemaster-flugvél
varnarliðsins var þá send norður til
Meistaravíkur í Grænlandi með kopta,
en hann flaug þaðan út að skipinu og
náði í manninn. Síðan kom stóra flug-
vélin með hann til Reykjavíkur og var
hann fluttur í Landspítalann (26.)
vKLAGSLÍF
Björn Steindórsson var kosinn for-
maður Félags bifvélavirkja (1.)
Skátafélagið Einherjar í ísafirði átti
30 ára afmæli (4.)
Kosningar fóru fram í tveimur verk-
lýðsfélögum í Reykjavík, Iðju og Tré-
smiðafélaginu. Unnu lýðræðissinnar í
báðum og varð mikið fylgishrun
kommúnista í Iðju; þar munaði nú 338
atkvæðum "kki nema 26 í fyrra
(4.)
Björn Ofeigsson var kosinn formað-
ur Félags vefnaðarvörukauomanna í
Reykjavík (4.
Málarafélag Reykjavikur átti 30 ára
afmæli (4.)
I
I