Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1958, Side 1
Gasstöðin kveður
EIN af einkennilegustu bygging-
um Reykjavíkur er að kveðja. Það
er Gasstöðin hjá Hlemmtorgi, og
hefir hún ekki náð fimmtugsaldri.
Þetta var eitt af hinum fyrstu stór-
fyrirtækjum, sem Reykjavík réðist
í, og þess vegna á hún það skilið
að hennar sé minnzt um leið og
hún hverfur, enda á hún sér all-
merkilega sögu og var mjög um-
deild á sínum tíma.
Þeim, sem muna Reykjavík rétt
eftir aldamótin, mun einkum vera
tvennt minnisstætt, hvað göturnar
voru óþrifalegar og hve lélega þær
voru lýstar. Þá voru hér steinolíu-
Ijósker á stangli og báru afar litla
birtu, svo að sumir kölluðu þau
fremur villuljós en götulýsingu.
Þorri manna haf ði þó ekki átt betra
að venjast, fannst þetta sæmilegt
og engin ástæða væri til þess að
breyta um. Vaninn er sterkur þeg-
ar hann er orðinn rótgróinn, og ný-
ungagirni var ekki áberandi eigin-
leiki í fari aldamótakynslóðarimiar
í Reykjavík. Það var ekki fyr en
upp úr 1906 að menn fara að
rumska og hugsunarhátturinn að
breytast.
Frimann B. Arngrímsson kom
hingað frá Vesturheimi árið 1894
og hafði meðferðis tilboð frá The
General Electric félaginu um að
koma hér upp rafstöð fyrir bæinn
og höfnina. Átti hún að kosta 2500
gulldollara, en því tilboði var auð-
vitað hafnað. Ári seinna kom hann
með annað tilboð frá tveimur