Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1959, Blaðsíða 1
4. tbl. Sunnudagur 8. febrúar 1959 XXXIV. árg.
AlmenningsgarÖur á Árbœ
verður merkisstaður innan skamms
HVER staður á sín menningar-
sogulegu verðmæti, sem ekki verða
metin til fjár, en eru þó hluti af
þjóðarauði hvers lands. Og það ber
vott um þroskastig hverrar þjóð-
ar hve mikinn áhuga menn sýna
um að varðveita þau verðmæti.
Þessi verðmæti eru mjög marg-
breytileg. Það eru bækur og hand-
rit, sem geymd eru í bóka- og
skjalasöfnum. Það eru listaverk alls
konar, sem geymd eru í listasöfn-
um. Það eru allskonar fornir gripir,
sem geymdir eru í þjóðminjasöfn-
um. í stuttu máli má segja, að verð-
mæti þessi sé óll handaverk liðinna
kynslóða, hverju nafni sem nefn-
ast.
Til þessa teijast þá og að sjálf-
sögðu gömul nús, er sýna hvernig
vistarverur manna hafa verið á
ýmsum tímum. Þau sýna eigi að-
eins hvernig húsakostur hefir
smám saman verið að breytast,
heldur sýna bau jafnvel betur en
margt annað hver voru lífskjör
manna á hverjum tíma.
Þeim, sem komið hafa í Frilufts-
museet utan við Kaupmannahöfn
Árbær
og byggðasöfnin á Bygdö og Lille-
hammer í Noregi, mun vera ljóst
hvað hér er átt við. Hér á landi
horfir þó nokKuð öðru vísi við en
þar, vegna þess að íslendingar hafa
um aldir búið í forgengilegum torf-
bæum. Þessir torfbæir eru nú að
hverfa úr sógunni. Hlutverki
þeirra er lokið. Eigi að síður eru
þeir órækur vottur um kjör og
lifnaðarháttu þjóðarinnar á liðnum
öldum.
En þann mikla ókost hafa þeir,
að þeir verða ekki fluttir og safn-
að saman í einn stað. Það verður
því að friða þá þar sem þeir eru og