Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 171 og sjórinn eins og heiðartjörn. Róðrarbátarnir eyru að leggja á stað“. „Minnumst ekki á þá menn, þeir hlaupa þegar aðrir góla“, segi eg. „En hverjir ætla að fara á sjóinn með þér?“ „Þeir ætla að fara með mér há- setar þínir, Jón og Magnús. Gunn- laugur hefir falið sig — vill ekki fara — og verður ekki auðfundinn í myrkrinu“, svaraði hann. „Jæja, þú ert þá á förum, og við erum öll á sömu leið, sumir fyr og sumir síðar“, segi eg. „En Sigvaldi minn, eg ætla að biðja þig einnar bónar, ef þú ert alráðinn í því að fara á sjóinn, en hún er sú að þú takir mikið af grjóti í kjalfestu á bátinn“. Sigvaldi þagði um hríð, en svar- aði svo: „Ekki nenni eg að fást víð það, aðeins fyrir einn róður. Guðmund- ur Magnússon ætlar að fara frá mér á morgun, og þetta verður sennilega seinasti róðurinn á „Óðni“.“ Svo kvaddi hann mig og helt með mönnum sínum niður í Borgarfjör- una. Þegar hann var farinn, leit eg á loftvogina. Hún hafði hrapað stórum seinustu klukkustundirnar og var enn fallandi. Þó helzt hæg- viðri fram til kl. 9 að morgni. En þá rauk hann upp á sunnan og þeytti af sér þokunni. Róðrarbátarn ir komust í hann krappan, og marg- fyllti hjá tveimur, en slörkuðu þó að landi. Voru formenn heldur hljóðir um sjóferð þá, því að þeir höfðu misst eitthvað af línum sín- um. „Óðinn“ kom ekki að landi, og ekkert var vitað um hann annað en það, að hann hafði enn legið við festar á höfninni kl. 5 um morgun- inn. Hefir Sigvaldi því haldið kyrru fyrir í bátnum í fullar fjórar klukkustundir og verið að bræða það með sér hvort hann ætti að fara á sjóinn. En svo hefir hann ekki þolað það er róðrarbátarnir lögðu á stað. Þeim hefir þá þótt hneisa að því að fara ekki líka og koma línu „Óðins“ í sjó. Ýmsar getgátur voru um það hvernig „Óðinn“ hefði farizt, og varð ekkert um það sagt hver get- gátan mundi réttust. Með honum fóru þessir fjórir menn: Sigvaldi Guðmundsson formaður, (hann var Vestfirðingur að ætt), Guðmundur Magnússon háseti og hásetar mjnir Jón Bergsteinsson og Magnús Ás- grímsson, báðir til heimilis í Reykjavík. Draumur. Snemma hausts 1911 fluttum við Jónína að Bjargi í Borgarfirði og leigðum þar um veturinn hjá hin- um ágætu hjónum Hannesi Sig- urðssyni hreppstjóra og Sigríði Ey- ólfsdóttur . Við höfðum þar gott herbergi upp á húsloftinu. Nú var það aðfaranótt 16. febrú- ar 1912, að mig dreymir að einhver maður sé að kalla á mig og sé hann utan húss. Eg þóttist þá hlaupa nið- ur stigann og opna útidyrahurð. Verður mér þá litið niður á fjöru- kambinn og sé að einhver maður er að reyna að skreiðast þar upp á kambinn, en gengur það mjög treglega. En þegar hann er kominn vel hálfur upp fyrir fjörukambinn, þá þekki eg að þetta er hann Sig- valdi sálugi formaður á „Óðni“, og er alþakinn línuflækju; þess vegna gekk honum svo erfiðlega að kom- ast svo hátt að eg sæi hann. Hann leit til mín mikið hlýlega og sagði: „Betur hefði farið ef eg hefði farið að ráðum þínum í tíma. Mig vantaði grjótið, kjalfestuna, þess vegna hvolfdi „Óðni“. En þakka þér fyrir heilræðin. Eg bið að heilsa gestinum, sem kemur til ykkar í dag. Vertu svo tíðum heill og guði falinn“. Að svo mæltu hvarf Sigvaldi nið- ur í fjörusandinn. Þenna sama dag kom til okkar Anna Sveinsdóttir, kærasta Sig- valda heitins. Síðan hefi eg aldrei séð hana, en hún varð mesta mæðu- manneskja. > ^4 uoÁomudt aymn Enda þótt mig ellin beygi enn um vorið kveða skal, þar með fagna þessum degi, það er heilsar strönd og dal. Nóttin dimma fór á flótta, fékk nú dagur yfirhönd, lýsir skáldsins „ljósa ótta“ losnuð vetrarkuldans bönd. Sólin heim úr suðri snúin sigurgöngu um norðrið fer, gróðurskikkju grænni búin grundin kalda bráðum er. Það er eins og endurvakni æska í brjósti gamals manns; þó hann fjörsins þrotna saknl þá er bjart í minning hans. Ennþá meðal ungra bræðra æskuvor hans fyrir ber; veit hann og um vorið æðra, í vændum nú sem bráðum er. Kom þú blessað vorið væna, vetrar leystu jökulbönd; kom með skrúðaskikkju græna, skreyttu okkar hrjósturlönd. Kom með yl í hvers manns hjarta, hlýleik allan lífið þarf; láttu gleðiljósið bjarta lýsa þjóðar sál og starf. -♦- Fæddur ég á frostavori frosin löngum sá min spor; en ef klökugt er í spori, er min hugsjón blómríkt vor. Þökk mín fagnar þessum degi, því hann bræðir vetrar hjarn; ég er raunar ennþá eigi annað neitt en vorsins barn. BJÖRN GAMLI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.