Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Page 6
174 LESBÓK MORGUJN BLAÐSINS Smásagan: Fólkið á tunglinu Frásögn, sem vakti fádæma athygli Þessi mynd fylgdi greininni upphaf- lega í „Sun“. ÞAÐ var einhvern dag í september árið 1835, að í blaðinu „Sun“ í New York hófst greinaflokkur sem nefndist: „Sir John Herschel gerir stórkostlegar stjörnufræðilegar uppgötvanir hjá Góðr arvonarhöfða“. Greinar þessar komu i blaðinu í heila viku. „Sun“ var þá nýlega stofnað og átti erfitt uppdráttar. En nú brá svo við þegar er fyrsta greinin kom, að blaðið rann út. Fólk var sem æðisgengið að ná í það. Prentað var helmingi meira af blaðinu heldur en venjulegt var, en þó hafði hvert einasta eintak verið rif- ið út áður en kvöld kom. Og næstu daga þyrptist fólk þúsundum saman að afgreiðslu blaðsins eldsnemma á morgnana, til þess að vera öruggt um að ná í framhald greinarinnar. Og um það greininni lauk, hafði upplag blaðs- ins margfaldazt. En það var ekki nóg. Blaðið varð að sérprenta greinarnar, og seldi þegar í stað 20.000 eintök af bæklingnum. Það var sagt, að greinarnar væri rit- aðar eftir skýrslu, er birzt hefði i vís- indatímaritinu „Edinburgh Journal of Science". Almenningur hafði einhverja hugmynd um að til væri borg, sem hét Edinborg. Og Herschel var líklega eini stjörnufræðingurinn, sem almenn- ingur hafði heyrt getið, því að blöð- in höfðu þá um sumarið sagt frá því, að hann hefði farið með voldugan stjörnukíki til Suður-Afríku, til þess að rannsaka himingeiminn. Sagan hlaut því að vera sönn. Hitt vissi auðvitað enginn, að tímaritið „Edinburgh Journal of Science" hafði hætt að koma út nokkrum árum áður. ----o------ En hvernig var þá sagan? Hún byrjaði að segja frá því að Herschel hefði farið til Suður-Afríku með þá voldugustu stjörnusjá, sem til væn í heiminum. Frá Höfðaborg hefði hann svo með aðstoð margra Búa flutt stjörnusjána á uxavögnum langt norð- ur í land, komið henni þar fyrir og síðan tekið að rannsaka himinhvelið. Þennan stað valdi hann vegna þess, að hvergi er jafn stjörnubert og þar. Aðstoðarmaður hans var kallaður dr. Andrew Grant, og hann hefði skýrt svo frá, að uppgötvanir þeirra væri hinar allra stórkostlegustu. Meðal annars hefði stjömusjáin reynzt svo vel, að tunglið sýndist ekki nema í svo sem 50 faðma fjarlægð. Þar sæist því allt glögglega og þeir hefðu séð að tunglið er byggt lifandi verum. Það var aðfaranótt 10. janúar 1835 að þeir beindu stjörnusjánni fyrst að tunglinu. Þá var heiðskírt loft og feg- ursta veður. Og þeir urðu þegar undr- andi út af því sem þeir sáu. Það var nú síður en svo að tunglið væri ein eyðimörk. Þar var allt um- vafið fegursta gróðri og skrautblóm- um. Svo sáu þeir beinar raðir af trjám, en að baki risu há fjöll og spegluðust í því fegursta vatni, sem þeir höfðu nokkru sinni litið. Við bakkana var hvítur sandur, ea háir klettar úr græn- um marmara luktu um vatnið og fram af þeim fellu skínandi fossar. Vatnið var fagurblátt eins og útsær. Nú beindu þeir sjónaukanum í aðra átt og sáu þá grænar sléttur og mesta fjölda ferfættra dýra þar á beit. Þessi dýr voru einna líkust villinautum, en þó talsvert minni, og það var einkenni- legt að þau voru með leðurskýlu niður fyrir augun, og gátu lyft henni með því að hreyfa eyrun. Og svo reyndist síðar, að flest dýr þar höfðu slíka skýlu. Næst sáu þeir geithafur mikinn. Hann var með skegg og eitt horn upp úr hausnum. Geitumar voru aftur á móti kollóttar og skegglausar, en með miklu lengri rófu. Svo komust þeir í kynni við fleiri dýr. Þar voru lítil sebradýr, hreindýr, elgir og svo glæsilegar sauðkindur, að fjárbændurnir í Leicestershire mundu hafa orðið grænir af ágirnd, ef þeir hefði séð þær. Þá sáu þeir undarlega skepnu, sem mest líktist ameríska bjórnum, nema hvað hann var hala- laus, gekk uppréttur á tveimur fótum og bar börn sín í fanginu. Þessar skepn- ur gerðu sér kofa, sem voru miklu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.