Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Page 8
17$ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Bjarni M. Gislason: Lýðskólarnir dönsku og íslenzku handritin 1 ,J10JSKOLEBLADET“ í Danmörku 13. marz sl. er þess getiö í smágrem, aö hljótt hafi veriö um íslenzku handritin aö undan- förnu. En blaöiö lætur á sér skilja, aö þögnin búi yfir vaxandi áhrifum þeirra manna, sem berjast fyrir aö Islandi veröi skilaö handritunum. Nefnir blaöiö l því sambandi sérstáklega Bent A. Krch ritstjóra og Bjarna M. Gíslason rithöfund. 1 þvi sambandi er vert aö minnast þess, sem Bjarni skrifaöi í Morgunblaöiö 14- október 1954: „lslenzka þjóöin getur fagnaö því, aö hugsjóna- menn lýöskóláhreyfingarinnar dönsku hafa tekiö handritamáliö aö sér. Þótt mest hafi borið á afturhaldssömum háskólaprófessor- um hingaö til, er ég ekki eitt augnáblik í vafa um þaö, aö lýö- skólamennirnir aö síöustu ráöa úrslitunum, því hugsjónir þeirra eru í nánustu tengslum viö hjartalag dönsku þjóöarinnar." Meö þetta fyrir augum höfum vér beöiö Bjarna um, aö skýra dálítiö frá lýöskólunum dönsku í sambandi viö handritin, og fer grein hans hér á eftir. LÝÐSKÓLAHUGMYNDIN er komin frá hinu andlega stórmenni Nikulai Grundtvig, oftast nær aSeins kallaður síðara nafn- inu. Hann er fæddur 8. september 1783, lifði undir stjórn fimm kon- unga og dó með pennann í hendi sér 2. september 1872. Hann hafði sterkari áhrif á danskt þjóðlíf en nokkur annar Dani fyr eða síðar, eða eins og Matthías kemst að orði: Enginn dró á danskri tungu dýpri tón úr hreinni sál; í hans hjarta hörpur sungu heilla þjóða Dvalins mál." Það væri hægt að tilfæra marga •tburði, ljóð og sögur frá seinni hluta 19. aldarinnar og allt fram á vora daga, sem sýna áhrif Grundt- vigs á þjóðlíf Dana. Vitandi eða 6sjálfrátt komu fram erindrekar lífsskoðana hans, en merkasta vtkningin birtist í starfsemi lýð- skólahreyfingarinnar. Fyrsti lýð- skólinn var settur á stofn 1844 í Rödding í Suður-Jótlandi, og stofn- un hans var bein afleiðing hinnar sterku þjóðernisvakningar, sem í þessum landshluta andæfði gegn þýzkum áhrifum, en þau færðust mjög í vöxt eftir 1830, enda lögðu þeir seinna Suður-Jótland undir sig með sverði, og stýrðu því síðan með fullu tillitsleysi til danskrar tungu og menningar til 1920. Stofnun lýðskólans í Rödding eiga Danir að þakka Christian Flor, manni af norskum ættum, sem var prófessor við háskólann í Kiel. Flor var ekki einungis ákaflega hrifinn af lífsstefnu Grandtvigs, hann var einnig undir sterkum áhrifum af skáldinu Adam Oehlenschláger, sem vakti skilning Flors á skáld- listinni í þágu frjálsrar upplýsingar og lærdóms. Lýðskólinn er þannig í og með barn rómantísku stefn- Bjarni M. Gíslason unnar, og ber kennsluaðferðin því vitni, þar sem áherzla er lögð á að vekja ást á tungunni og treysta böndin við ættjörðina með rækt við fornar sagnir um ættarkjarna kyn- stofnsins. Lýðskólinn í Rödding náði þó ekki fullum vexti á þessu tímabili. Eftir 1864, þegar Suður-Jótland komst undir Þýzkaland, létu Þjóð- verjar loka skólanum. Hann varð því úr sögunni um hríð, en lýð- skólahreyfingin danska var ekki til loka leidd þótt Þjóðverjar fengi vald yfir Suður-Jótlandi. Lands- missirinn blés bara að glæðunum, svo að af þeim varð mikið bál. Lýðskólahreyfingin fékk á næstu árum eftirtektarverða fulltrúa, sem börðust fyrir þjóðlegri vakningu, og lýðskólar spruttu upp í öllum sveitum Danmerkur. í fararbroddi var merkilegur fjónskur skólamað- ur, Christen Kold, sem fremur öðrum sannaði með kennsluaðferð sinni, að frjáls, munnleg fræðsla, sem veitir þekkingu á sögunni og þjóðfélaginu, er betra meðal til að skapa þegnskap og félagslund en dauður skyldulærdómur. Hann hafði sinn skóla í Ryslinge á Fjóni, en í stað lýðskólans í Rödding, sem Þjóðverjar hertóku með Suður-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.