Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Page 9
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 177 Jótlandi, voru lagðir hyrningar- steinar að nýum skóla nálægt landamærunum, og þar stendur nú Askov Höjskole, sem síðan hefur verið merkasti lýðskóli Norður- landa. Frá lýðskólanum í Askov eru komnir allir mætustu menn hinnar grundtvigsku fræðistefnu, en ekki skal ég þreyta lesendur mína á því að rekja nöfn þeirra og allra lýð- skólanna í Danmörku. Eg skal að- eins nefna, að lýðskólarnir eru nú um 50 að tölu og auk þeirra nokkru fleiri unglingaskólar og um 20 land- búnaðarskólar, sem allir eru sprottnir upp úr hinni þjóðlegu vakningu, sem brautryðjendur lýð- skólahreyfingarinnar stóðu fyrir. Þó kennslunni sé ekki hagað eins á öllum þessum skólum, og ólíkar kröfur á verklega sviðinu útheimti fjarskyldar námsgreinar, er grund- völlur uppeldis og fræðslu hinn sami hjá þeim öllum og beint af- kvæmi lýðskólahreyfingarinnar. Lýðskólarnir eru að því leyti frábrugðnir öðrum skólum, að eng- in áherzla er lögð á próf, telja þeir jafnvel próflestur og prófskyldu til hindrunar andlegum þroska nem- endanna. Andlegt gildi þessara skóla er fólgið í persónuleikanum, andlegri reynslu og víðsýni kenn- arans, fremur en bókstafsbundn- um lærdómi hans. Kennarinn verð- ur að gerast förunautur nemand- ans og sálufélagi til að finna vor- leysinguna og vaxtarskilyrðin í brjósti hans, og geta hagað orðum sínum sem bezt eftir viðkvæmu og auðugu tilfinningalífi æskunnar. Auðvitað geta kennararnir verið misjafnir, en yfirleitt hefur danski lýðskólinn átt því láni að fagna að eignast marga hæfileikamenn, sem með frábærri mælsku vöktu áhuga nemendanna fyrir sögu þjóðar sinnar og ást þeirra á tungunni. En þó fyrirlestarnir séu aðalatriðið í kennslunni, nokkurs konar safngler Grundtvig orðsins, sem á að vekja andlegan áhuga nemandans, eru margvísleg hagnýt fræði einnig á dagskránni 1 samræmi við breyttar kröfur tím- ans. En það er bara ekki krafizt neins prófskírteinis af nemendun- um. — Auðvitað hefur lýðskólakennslan á öllum tímum orðið fyrir mikilli og margvíslegri gagnrýni. Um skól- ana hefur verið ritað bæði af óvild og velvilja, og er enn. En þó illa aldar eða ofaldar árásarkýr gagn- rýninnar gleypi stundum hver aðra, þá er þó hið sívaxandi auga umvöndunarinnar á sína vísu dóm- ur þjóðarinnar um hæfileika kenn- aranna. Eins og fyr er sagt stendur og fellur lýðskólastefnan með per- sónulegu atgerfi þeirra. Og koml það fyrir að einhver reyni að reka lýðskóla með gagnlausu rabbi og skemmtunum einum, þá leiðir það af sér, að þangað sækja engir nem- endur. Þegar þroskaðir unglingar leita sér menntunar af frjálsum vilja og hafa kannski safnað aur- um til þess í mörg ár, óska þeir ekki eftir að eyða tímanum í hé- góma. Starf lýðskólanna er almennt viðurkennt í Danmörku og víða um Norðurlönd og nýtur það svo mik- illar virðingar, að á seinni árum eru haldin námskeið á þessum skólum fyrir háskólastúdenta, bein- línis með það fyrir augum að frjóvga og örva hugsun þeirra og koma þeim í lifandi snertingu við þá menningarstrauma sem bærast með þjóðinni utan háskólamúr- anna. Hið sérkennilega við nám- skeið þessi er kannske það, að það eru prófessorarnir sjálfir sem leita þangað með nemendahópa sína, og hafa samvinnu við lýðskólamenn- ina um fræðsluna sem þar fer fram, en ekki svo að skilja, að lýð- skólarnir hafi sérstaklega borið sig eftir þessari samvinnu. Hitt er aug- Ijóst, að í þessu liggur stórkostleg viðurkenning á starfsháttum lýð- skólanna. Stjórnendur lýðskólanna og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.