Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.1959, Page 8
416
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
orðið það, ef rélt er á haldið. Til
þess að svo megi verða sem ágæt-
ast mim þurfa að víkja nokkuð frá
því sem nú horfir, með skipulag og
gerð Lækjartorgs, Bankastrætis og
gatnamót Lækjargötu og Banka-
strætis við torgið.
Þessi gatnamót eru vandræða-
mál eins og nú er og verða það
framvegis, þó að sneitt verði af
stjórnarráðsblettinum og norður-
endi Lækjargötu réttur með því
móti, eins og mun vera fyrirhugað
og auðvitað er til stórra bóta.
Þarna, um þessi gatnamót, verður
alltaf mikil umferð, þess vegna er
alveg ótækt að þriggja hliða haili
skuli vera á mótum þessum. Úr
neðri enda Bankastrætis hallar á
þrjá vegu: niður á torgið og til
norðurs og suður í Lækjargötuna.
Af þessu stafar erfiðari umferð og
stóraukin slysahætta. Hitt er þó
eigi minna um vert, hve ljótt og
ankannalegt þetta er, það stórspill-
ir fegurð Lækjargötunnar.
Neðri hluti Bankastrætis er
gömul vegarfylling til þess að gera
akstur með hestum auðveldari upp
Bakarabrekkuna. Það var nauðsyn
þess tíma. Gráu var bætt ofan á
svart, án allrar nauðsynjar, þegar
kamramenningin hóf þarna inn-
reið sína rétt við hornið á skrif-
stofu utanríkisráðherra, en slíkt er
nú aðeins kvellisótt, sem auðvelt
er að lækna.
Lesari góður, þú, sem hefir áhuga
á málefnum höfuðborgarinnar,
taktu þér stöðu í Lækjargötu suð-
ur undir gatnamótum Bókhlöðu-
stígs og götunnar, líttu í kringum
þig og einkum til norðurs, og reik-
aðu svo norður götuna. Geta þér
ekki dottið í hug orðin „fögur er
hlíðin“ — brekkuhlíðin austan við
götuna. — Og fegri getur hún orð-
ið. Þú sérð hvert lýti það er, að
neðri hluti Bankastrætis brýtur
landslagið, og drúldan þar sem það
enda/ uiður við Lækjartorg. Hugs-
aðu þér gömlu vagnauppfyllinguna
horfna með kömrum og öllu sem
tilheyrir, Lækjargötu slétta og
breiða norður úr án alls hliðarhalla
norður þar. Hugsaðu þér ennfrem-
ur allar lóðirnar í endilangri hlið-
inni frá Miðbæjarbarnaskólanum
og norður með Kalkofnsvegi, sam-
ræmdar um halla og frágang í
meginatriðum. Nú skortir mikið á
að svo sé, og fer hörmulega illa
misræmið um frágang Mennta-
skólalóðarinnar og lóðanna fyrir
framan Gimli og Bernhöftsbakarí.
En þetta verður allt lagfært og
samræmt hæfilega, er hið nýja
stjórnarráð rís af grunni. — En
stóri þröskuldurinn, sem þarf að
yfirstíga — nei — ryðja úr vegi,
er hið upphækkaða Bankastræti,
kerruvegurinn sá.
Lítið til norðurs úr Lækjargötu
sunnan til, eins og eg ræddi um,
og athugið hvernig gamla stjórnar-
ráðshúsið — tukthúsið 200 ára
gamla — mundi hefjast og njóta
sín, sem sérstæð og fögur bygging,
þegar búið væri að lækka Banka-
stræti neðan til upp á móts við
húsaröð — uppfyllingin væri horf-
in og réttur hins eðlilega landslags
ríkti að nýju.
Gerið sjálfum ykkur þann
greiða, veitið ykkur þá gleði, að
athuga þetta allt, með opnum aug-
um og huga, og með blessaða Esj-
una í baksýn. — Svipað má einnig
segja um það, hve fögur gatan get-
ur orðið séð frá norðri, frá gatna-
mótum Hverfisgötu og Lækjar-
torgs, ef Bankastræti lækkar í sam-
ræmi við landslagið, svo sem það
eitt sinn var og getur enn orðið.
V.
Getur enn orðið, sagði eg, er það
þá hægt? Já, það er auðveldlega
hægt, ef forráðamenn þessara mála
aðeins vilja líta á þetta með góð-
vild og lofa náttúrunni að verða
náminu ríkari. — Eg hefi áður rit-
að um þetta í Morgunblaðið, en
langt er síðan og því óhætt að end-
urtaka það.
Tveir möguleikar eru fyrir
hendi til þess að bæta um. Annar
ber allvel á leið, hinn tel eg að
leysi málið alveg og ágætlega.
Bankastræti verður að lækka %
neðan til, það verður að lækka að
því marki, að Lækjargatan verði
lárétt og hallalaus bæði á breidd og
lengd, þar sem hún mætir Banka-
stræti og gengur yfir í Lækjartorg.
Þetta er einfaldlegast hægt að
gera með því að rífa upp Banka-
stræti enda milli og gera það bratt-
ara. Brattinn yrði samt ekki nein
óhæfa fyrir bílaumferð, sérstak-
lega ef lækkun Laugavegar að
Skólavörðustíg væri tekin til
hjálpar.
Til viðbótar því sem eg hefi áður
nefnt um þau lýti, sem eru að
drúldunni við neðri enda Banka-
strætis, er vert að minna á það, að
hversu glæsilegt hús sem byggt
verður á Árna Björnssonar horn-
inu, mun það aldrei njóta sín að
fullu, ef götunni hallar að húsinu
á tvo vegu eins og nú er og verður
ef drúldan er ekki afnumin og
gatnamótin lækkuð niður að jafn-
sléttu. Húsið mun alltaf líta út eins
og það sé að sökkva í jörð niður,
ef horninu hallar frá götunum.
Slíkt er ekki ómerkilegt atriði, er
í hlut á ein allra glæsilegasta bygg-
ingarlóð bæarins og vonandi senn
hvað líður ein glæsilegasta bygg-
ingarlóð bæarins gegnt hinu nýa
stjórnarráði.
Hinn möguleikinn er ennþá betri
að mínu viti. Hann er sá að Ioka
Bankastræti sem umferðargötu
fyrir bíla og akstur. Eg álít að það
sé hægt í sambandi við aðrar
mikilsverðar aðgerðir í umferðar-
skipulagi miðbæarins, og það er
mjög æskilegt. Þó að ekki sé litið
á annað en það sem vinnst í bættri
Frh. á bls. 421