Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.1960, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
251
í matvælunum, áður en þau voru
þurkuð.
Minnsti vatnsskammtur, sem
maður kemst af með á sólarhring,
er um 5 pund. Nú þarf hann líka
að flytja með sér súrefni, og af því
þarf hann 2 pund á sólarhring. Af
matvælum þarf hann minnst 1—
l1/^ pund á dag. Af þessu leiðir, að
þriggja manna geimfar, sem ætlar
sér að vera ár í ferðinni, þarf að
flytja með sér 4 tonn af mat, vatni
og súrefni, og eru þá ekki með
taldar umbúðirnar,
Nú er gert íáð fyrir því, að ferða-
lag tíl Marz muni standa í 2—3 ár
eða lengur (allt eftir því hver
geimfræðingurinn er, sem gizkar
á), og þá er auðvelt að sjá, að menn
geta ekki haft með sér nægar
birgðir til svo langs tíma. Það
verður að vera nákvæmt hlutfall
milli þunga geimfars og þess afls,
sem knýr það áfram. Það þarf 1000
punda orkuþrýsting á móti hverju
pundi.
Vegna þessa hallast menn nú æ
meir að því, að geimför verði að
hafa gróður með sér. Þrír höfuð-
kostirnir við það eru þessir:
Gróðurinn hreinsar andrúmsloft-
ið, gróðurinn getur lifað á sauri
mannanna, og mennirnir geta síð-
an lifað á gróðrinum. Og sá gróð-
ur, sem menn hallast helzt að, er
þörungar.
Jack Myers, grasa- og dýrafræð-
ingur við háskólann í Texas, hefir
komizt að þeirri niðurstöðu, að
2,5—5 pund af algengum þörungi,
„chlorella pyrenoidosa", muni geta
eytt allri þeirri kolsýru er einn
maður andar frá sér og síðan fram-
leitt nóg súrefni handa honum.
Auk þess hér um bil nægilegt
fæði. Og þetta geti gengið enda-
laust, ef þörungurinn fái birtu og
áburð.
Nú verður þó að hafa í huga, að
þörungurinn verður að vera í
vatni til þess að hann dafni, og
þess vegna má búast við að útbún-
aðurinn til þess að geyma hann
verði allt að 50—100 sinnum þyngri
heldur en gróðurinn sjálfur. Nokk-
ur vandkvæði munu verða á því
að láta þörungana hafa hæfilega
birtu, en takist það, þá tvöfaldast
þeir á svo sem þremur klukku-
stundum.
Svo eru til aðrir þörungar, sem
framleiða þrefalt súrefni á við
„pyrenoidosa" og þurfa þrisvar
sinnum meiri birtu.
Æðii jurtir er varla unnt að
hafa með á slíkum ferðalögum,
vegna þess að þær þroskast ekki
nógu fljótt. Þó eru til nokkrar
jurtir, sem menn halda að geti
komið til greina, vegna þess að
hægt er að nota þær allar og ræt-
urnar með, til manneldis. Menn
halda einnig að þær muni vaxa
hraðar í geimförum, vegna þess að
loftþrýstingur er þar miklu lægri
en á jörðinni.
Þörungar vaxa örast af Öllum
gróðri, en þó ekki nógu ört. En
með kynblöndun vænta menn að
hægt sé að framleiða þörunga, sem
vaxa miklu hraðar en þeir, sem nú
þekkjast. Þörungar eru mjög sað-
söm fæða. í þeim eru um 50%
eggjahvítuefni, 15% kolvetni 25%
fita og 10% steinefni. Þetta er þó
breytilegt. Nokkur fjörefni eru í
þeim, svo sem B og C. Að vísu
vantar nokkur nauðsynleg nær-
ingarefni, en vegna þess hve mik-
ið af þeim er meltanlegt og vegna
þess að þær tvöfalda þunga sinn
allt að því 12 sinnum á sólarhring,
þá er varla efi á að þörungar verða
hafðir til manneldis í geimferöum.
Hvaða áburð þurfa þörungar til
þess að þrífast? Þeir þurfa yfirleitt
hin sömu næringarefni og æðri
jurtir, svo sem köfnunarefni, fos-
fór, kalí, kolefni o. s. frv. Og nú
vill svo til að í þvagi og saur
manna eru flest þessi efni. Það
væci því gott að geta losnað við
þau úrgangsefni á þennan hátt.
En þá er eftir að breyta þör-
ungunum í mat. Og þá kemur
ýmislegt til greina. Hætt er við að
mönnum þyki maturinn nokkuð
einhæfur, og ekki er að vita
hvernig þeim muni geðjast að
bragðinu, lyktinni og litnum. Má
og vera að þeim hrylli við að eta
mat, sem ræktaður er við saurindi
sjálfra þeirra.
Úti í geimnum mun reyna mjög
á. líkamlega og andlega orku
mannsins. En ef hann hefir svo
ekki lyst á matnum, sem á að vera
hans megin, mun þá ekki hætta á
að hann gugni alveg?
Margar fleiri uppástungur hafa
komið fram um það hvaða mat-
væli geimfarar eiga að hafa. Að
öllum er nokkuð, og þó strandar
venjulega á því, að geimfarið get-
ur ekki bætt matarbirgðunum á
sig. En á öllum þessum vangavelt-
um má sjá, að það á enn langt í
land að lausn finnist á þeim vanda
hvernig á að nesta geimfarana.
Sjálflýsandi veggfóður
ÞAÐ var árið 1930 að prófessor Georg-
es Destriau, sem þá var ráðunautur
Westinghouse Eiectric Company, upp-
götvaði það, að rafmagn gat orðið
sjálflýsandi. En ljósið var oft dauft og
útbúnaður of dýr tii þess að það gæti
keppt við flúrljó* Nú hefir Destriau
gert endurbætur á þessari uppgötvun
og tekið eínkaleyfi á henni. Er ljósið
nú fjórum sinnum bjartara en það var
áður.
North American Aviation Inc. hefir
þegar látið gera sjálflýsaridi plast-
plötur og þakið með þeim veggi i sum-
um þotum sínum. Með þessu móti
verður rýmra í stýrisklefum þotanna
og þyklr það mikill kostur, þvi að með
þessu móti er hægt að losna við perur,
ljósastæði og rafleiðslur.
Gert er ráð fyrir þvi, að innan
skamms muni koma á markaðlnn sjálf-
lýsandi veggfóður og geti menn þá
alveg losnað við lsmpa i hibýlum sín-
um. Gildir þá emu hvort veggfóðrið
ér úr pappír eða silkL