Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.1960, Síða 10
254
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
aðrlr m#8 ituttu mllliblli. Stóri-
Gayiir, icm var einn merkilegasti
goihverinn, hvarl í þessum um-
brotum, en skammt frá honum
kom upp nýr hver, sem skírður
hefir verið Jarðskjálftahver, og
gaus stöðugt 50—75 feta háu gosi.
Fr*gasti hverinn í þjóðgarðinum,
Gamli Tryggur (Old Faithful) sem
alltaf hefir gosið reglulega á 61
mínútu fresti breyttist svo að nú
gýs hann á 65 mínútna fresti.
Einn hverinn þarna heitir Blá-
hver. Hann hefir aldrei gosið, en
aðeins bullað í honum. Þremur
vikum eftir fyrsta stóra jarð-
skjálftakippinn, kom dálítill kipp-
ur og þá byrjaðl Bláhver allt í
einu að gjósa og gaus af miklum
krafti í viku. Þá kom nýr kippur
og stöðvaði hann En sextán dög-
um seínna kom enn kippur og þá
hóf hann að gjósa að nýu og hefir
goiið siðan.
Miklar breytingar urðu á lands-
lagi í þjóðgarðinum og er jafnvel
búiit við meiri breytingum, því að
talið er að þarna muni koma jarð-
skjálftar við og við á nœstu árum,
meðan jörðin er að komast aftur
í fastar stellingar eftir þessi um-
brot. í þjóðgarðinum voru 18.000
geitir þegar jarðskjálftinn hófit,
en engan þeirra sakaði.
Jarðskjálftamegin er mælt í
stigum. Magn þessa jarðskjálfta
reyndist 7.1 stig og er hann því
með þeim hörðustu er komið hafa
í Bandaríkjunum. Þeir, sem ofsa-
fengnari hafa verið, eru jarð-
skjálftinn mikli 1906, sem lagði
San Francisco í auðn og drap 450
manni, styrkleiki hans var 8. 3; þá
er jarðskjálfti í Kern County í
Kaliforníu 1952. styrkleiki 7.7;
þrennir jarðskjálftar í Nevada
1915, 1932 og 1954, sem voru 7.6,
7.3 og 7.1 að styrkleika. En stæriti
jarðskjálfti, sem líklega hefir kom-
ið í Bandaríkjunum, kom í Missi-
Helgur klukknahljómur um landiö boöskap ber.
Bíöur Drottinn Ouö þinn til einskis eftir þért
Hvar áttu þitt musteri, & hljóöum helgidegif
Hefiröu aldrei skaparanum mœtt d þinum vegif
Hefiröu áldrei litiö í ungbarnsaugun bláf
Aldrei borist kliöurinn loftsins verum frdf
Heyriröu ekk% blómin, í blœnum saman talaf
Blessun Guös er vegsömuö, frd ströndum inn til dala.
En vesœll maöur, þarftu engar þakkir hér aö tjd,
þigguröu ekki blessun Drottins vegferö þinni áf
Ef veröld fer úr tengslum viö trú og von Ouös-barna,
er tilverunni lokiö, viö missum lifsins kjarna.
Oakk l helgidóminn. Þaö eru ei oröin tðm,
meö innstu hjartans rótum þú nemur lifsins hljóm.
Ef sdl þin aöeins hlustar, þd berst þér röddin bjarta,
og blessun Drottins vefst eins oa friöur þér aö hjarta.
DOTTIR JARÐAR.
sippidal 1811—12, en þá voru ekki
til neinir jarðskjálftamælar, svo
ekki er vitað um styrkleik hans.
Mestu tjóni olli jarðskjálftinn í
Japan 1923. Hann lagði borgirnar
Tokio og Jokohama í rústir og
varð 250.000 manns að bana. Mesta
jarðskjálftaárið, sem sögur fara af,
er 1906 Þá kom jarðskjálftinn í
San Francisco, jarðskj álfti í Col-
umbia og Ekvador (8,5 stig að
styrkleika), Chiie, Nýu-Gíneu,
Formósu, Aljút-eyum, Japan og
Sinkiang í Kína. Jarðskjálftinn
mikli í Assam og Tíbet 1950 var
8.7 stig að styrkleika, og að
minnsta kosti fimm aðrir jarð-
skjálftar hafa mælzt jafnsvæsnir.
Um 700 mælanlegar jarðhrær-
ingar koma í Bandaríkjunum á
hverju ári, en rúmlega miljón á
allri jörðinni. Mesta jarðskjálfta-
svæði Bandaríkjanna er Alaska,
en þar næst Montana, þar sem
þessi seinasti jarðskjálfti varð. Þar
komu líka miklir jarðskjálftar
1925, 1935 og 1947. Þetta er talin
sönnun þess, að Klettafjöllin sé
enn að hækka. Jarðfræðingar
telja, að þar sem Madison-áin fell-
ur nú, hafi verið vatn fyrir 50
miljónum ára. Þá urðu þarna
skyndilega mikil umbrot í jörð-
inni, landið lyftist upp og lagðist
í fellingar. Þannig mynduðust
Klettafjöllin, og þau hafa farið sí-
hækkandi, því að alltaf helzt
þrýstingurinn að neðan. Vill þá
stundum svo til, þegar þrýstingur-
inn er mikill, að landið lyftist ekki
jafnt, heldur gengur á misvíxl, en
þá verða jarðskjálftar.
Lögregluþjónn stöðvaði konu, sem
ók eins og vitlaus maður.
— Má eg sjá ökuskírteinið yðar?
— Nei, nú dámar mér ekki. Það er
hjá ykkur. Þið tókuð það af mér 1
íyrra.