Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1960, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
453
Þegar forsetinn tók
við embætti að nýu.
Talið frá vinstri:
Friðjón Skarphéð-
insson, forseti Sam.
Alþingis, Ólafur
Thors forsætisráð-
herra, Dóra Þórhalls-
dóttir forsetafrú, Ás-
geir Ásgeirsson for-
seti tslands og Þórð-
ur Eyólfsson dóm-
stjóri Hæstaréttar.
Þetta gerðist / ágústmánuði
FORSETI ISLANDS
Ásgeir Ásgeirsson, forseti, tók
við embætti að nýju 1. ágúst og
hófst þar með þriðja kjörtímabil
hans sem forseta landsins. Hin há-
tíðlega athöfn hófst í Dómkirkjunni
þar sem biskup Islands flutti ritn-
ingargrein og ávarpaði forsetann.
Sjálf embættistakan fór síðan fram
í Alþingishúsinu þar sem forseti
hæstaréttar lýsti forsetakjöri og út-
gáfu forsetabréfs og mælti fram
eiðstafinn, sem forseti síðan undir-
ritaði. Að því loknu gekk forsetinn
ásamt forsetafrúnni, Dóru Þórhalls-
dóttur, fram á svalir Alþingishúss-
ins. Þá flutti forseti ræðu.
LANDHELGIN
Ríkisstjómin féllst á að taka upp
viðræður við brezku ríkisstjórnina um
deilu þá. sem er um aðstöðu brezkra
fiskimanna á íslandsmiðum. Miða við-
ræður þessar að því að kanna til hlítar
öll úrræði til að koma í veg fyrir
áf ramhaldandi árekstra. J afnf ramt
áréttaði íslenzka ríkisstjórnin rétt Is-
lands til 12 mílna fiskveiðilögsögu.
(11.)
Á norrænni fiskimálaráðstefnu, sem
haldin var í Karlskrona í Svíþjóð
skiptust s j ávarútvegsmálaráðherrar
landanna m. a. á skoðunum í land-
helgismálinu (27.)
SÍLDVEIÐARNAR
Síldveiðarnar brugðust að lang-
mestu leyti í ágústmánuði. Nær engin
síld veiddist fyrir Norðurlandi, en
nokkur síldveiði var fyrir austan land.
Almenn getur veiðin þó ekki talizt og
upp úr miðjum mánuðinum fóru bát-
ar að tínast heim af vertíðinni. Kol-
munni fór þá mjög að gera vart við
sig í nótunum. Síldarvertíðin í heild
varð mun lakari en í fyrra og náðist
ekki upp í gerða samninga af saltsíld.
Aflahæsta skipið á síldarvertíðinni var
Guðrún Þorkelsdóttir frá Eskifirði
(með um 11,800 mál og tn.), skipstjóri
Þorsteinn Gíslason. Eldborgin frá
Hafnarfirði, skipstjóri Gunnar Her-
mannsson, var með næstmestan afla.
VEÐRIÐ
Veðurfar var stöðugt í mánuðinum.
Norðanátt var að mestu ríkjandi með
björtu og þurru veðri á Suðurlandi og
Vesturlandi, en rigningu og leiðinda-
veðri á Austfjörðum og á Norðurlandi,
þó einkum austan til. Heyöflun gekk
því með eindæmum vel vestan og
sunnan, en var erfið sérstaklega á
Norð-Austurlandi. Síðast í mánuðinum
birti þó til fyrir norðan og austan svo
í heild má segja að vel hafi árað í
sveitum landsins.
FRAMKVÆMDIR
Síldarverksmiðjurnar á Hjalteyri og
Krossanesi tóku á leigu tvö norsk skip
til síldarflutninga af fjarlægari mið-