Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1960, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
459
Heilbrigðistíðindi
HJARTVEIKIR MENN
í tímaritinu ,Circulation“ sem
gefið er út af The American Heart
Association, segir að það sé miklu
hollara fyrir menn, sem hafa feng-
ið aðkenningu af slagi að reyna
nokkuð á sig, heldur en sitja iðju-
lausir með hendur í skauti. Vinna
og áreynsla sé sterkur þáttur í lífi
hvers manns og stuðli að andlegri
og líkamlegri vellíðan. Oft komi
það fyrir, að nánustu vandamenn
sjúklingsins haldi að hann megi
e^kert reyna á sig, og vinir og
kunningjar prédiki það fyrir hon-
um að fara nú vel með sig. í
biöðum útvarpi og sjónvarpi sé
líka hamrað á því hve hættulegt
geti verið að reyna á sig, ef hjart-
að er bilað. Sjúklingarnir verði því
íyrir óhollum áhrifum frá um-
liverfi sínu, og verði þeim það oft
iil falls.
S! ÁVARGRÓÐUR
SLM FÆÐA
Mikið hefir verið talað um, að
begar fólki hafi fjölgað svo mjög
hér á jörð, að hún geti ekki fram-
fleyt+ öllum þeim fjölda að ó-
breyttum lifnaðarháttum, þá verði
menn að leita til sjávarins og fá
þar fæðu úr þangi og svifi. Líka
hefir verið talað um, að þetta
muni heppilegasta fæða fyrir geim-
fira. Og fyrir skömmu var svo
gerð tilraun um þetta á fjórum
sialfboðaliðum í Bandaríkjunum. í
þrjá daga voru þeir aldir á þör-
ungafæðu, en hún var blönduð
ýmsu til bragðbætis. Ekki voru
sjálfboðaliðarnir þó ánægðir með
fæðið. Þeim þótti litur og bragð
ankannalegt og svo varð þeim
óglatt af því og fengu jafnvel
magaverki og höfuðverk. — Þrátt
fyrir þetta segja vísindamenn að
þörungar geti orðið afbragðs fæða,
þegar menn hafi lært að matbúa
þá. í þeim sé mikið af eggjahvítu-
efnum, aminosýrum og fjörefnum.
MARGIR ERU VEIKIR
Um 12 ára skeið hafa farið fram
rannsóknir í Tulane háskóla í
Bandaríkjunum á heilbrigði fólks á
aldrinum 30—50 ára. Alls voru
10.709 skoðaðir, og allt þetta fólk
Jjóttist vera við beztu heilsu, og
enginn hafði leitað læknis í hálft
ár áður en skoðun fór fram. Allt
betta fólk hafði einhverja atvinnu,
sem bað stundaði daglega. En það
undarlega skeði, að 92% voru með
einhvern kvilla, venjulegast á byrj-
unarstigi. Krabbamein fannst í 77,
en 444 voru með byrjandi mein
semd, sem vel hefði getað orðið
að krabbameini. Og 65.3% af kon-
unum voru með einhvern kvenleg-
an sjúkdóm.
SKÖLLÓTTAR KONl'R
Leiðinlegur faraldur gerir nú
vart við sig meðal menningarþjóða
heimsins: Konurnar eru að missa
hárið og verða sköllóttar. Læknar
segja, að hér sé um sjálfskaparvíti
að ræða. Konurnar noti harða
nælon-hárbursta, strengi á sér hár-
ið með gormum og klemmum og
noti óholla vökva í hárið. En þeir
segja líka að hægt sé að bæta úr
þessu með því að leggja niður
þessar aðferðir, þvo hárið í þess
stað úr hreinni sápu og lofa því
að liðast eða falla sem eðlilegast.
Með því móti muni smám saman
vaxa ný hár í stað þeirra, sem eyði-
lögð hafa verið með strengingu og
óhollum hármeðulum. Ef konur
fari vel með hár sitt, sé mjög litl-
ar líkur til þess að þær geti orðið
sköllóttar.
ANDARTEPPA
Dr. George V. LeRoy, prófessor
í læknisfræði við háskólann í
Chicago, ráðleggur andarteppu
(asthma) sjúklingum að hætta við
öll meðul, þeir skuli þrauka og
reyna að bera kvalaköstin, og þá
muni þau hætta af sjálfu sér. Hann
segist hafa farið að hugsa um það
hvernig andarteppa hefði verið
læknuð fyr á tímum þegar menn
sé í vandræðum með hana nú,
með öllum þeim ágætu undralyfj-
um, sem fundin hafa verið upp á
seinustu árum. Hann leitaði til
gamalla lækningabóka, sem menn
eru nú of lærðir til þess að meta,
og þar fann hann, að andarteppa
læknaðist vanalega af sjálfu sér.
Þessu hafi menn gleymt og á seinni
árum hafi sjúklingum verið fengin
í hendur „til sjálfshiálpar“ hvert
undralyfið á fætur öðru: epine-
phrine, antihistamines, amino-
phyllin og hormónalyf. Sjúklingar
grípi óðar til þessara lyfja, ef þeir
fá kast og haldi að þeir muni deya
ef þeir séu ekki nógu fljótir að
grípa til meðalanna. — Eftir langa
reynslu segist hann nú ekki hika
við að ráðleggja langflestum sjúkl-
ingum að hætta alveg við meðul,
og þeir muni komast betur af.
Einihver Leitis-Gróa sá að bill Mr.
Jones stóð utan við knæpu. Hún rauk
þá í alla sem hún gat náð í til þess að
segja þeim að Mr. Jornes sæti að
drykkju í knæpunni. — Hann svaraði
með því að láta bíl sinn standa heila
nótt utan við dyrnar hjá henni.
— • —
Gallinn á að vera stundvís er sá, að
enginn er fyrir til að meta það?
t