Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Qupperneq 2
622 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS hauskúpu bessa í kirkjugarði, það væri ekki mikil fyrirhöfn. Hann svaraði því, að einu mætti gilda hvar ónothæfur hlutur flæktist. „Ekki er nú víst að þeim dána sé sama um það“, mælti eg. „En hvar hefir þú fundið hauskúpu þessa? Er hún máske af sjó rekin?“ Þorsteinn skýrði mér þá frá þvi, að sjór hefði brotið rúman helm- ing framan af gamla kirkjugarð- inum og þaðan mundi hauskúpan komin. En nú hefði verið gerður þar nýr kirkiugarður ýjær sjó og væri hann enn í friði fyrir brim- inu. Að kvöldi þessa dags kom til Húsavíkur Sveinbjörn frá Parti Björnsson bónda þar Sveinssonar bónda á Dallandi, Pálssonar Svein- björn var greindur maður og merkilega dulrænn, hraustur mað- ur og gætinn, og stálminnugur, eins og hann átti ætt til. Eg var honum nokkuð kunnugur og iell vel við hann. Eg brá nú á gaman við hann og spurði hvort honum væri það nokkuð á rnöti skapi að kynnast manni þeim sem hauskúpan væri af þar við husdyr „Ef eg gæ*:j fengið hann til að birtast þér í draumi, þá spurðu hann að nai'ni cg hvar hann hafi átt heima hér á jörðinni. Veittu honum þá °innig nána athygli, svo að þú getir síðan lýst vexti hans og öllu útliti og eins hve gamall hann sé“. Sveinbjörn tók ‘þessu ágætlega og sagði að sér væri bað ánægja ef maðurinn vildi vitrast sér. „En hvers vegna vilt þú ekki sjálfur reyna að hafa samband við manninn og taia við hann?“ spurði hann. Eg taldi tormerki á að það mætti takast, vegna þess hvernig eg hefði hugsað til hans þegar eg sá haus- kúpuna fyrst; fyrir það mundi hann bera þykkju til mín. Þó kvaðst eg nú vilja bæta fyrir það með því að stuðla að því að haus- kúpan kæmist í vígða mold, en væri ekki lengur að hrekjast ofan jarðar. Við ræddum þetta nokkra stund, og síðan fór Sveinbjörn heim að Parti, enda var þá kominn hátta- tími. Eg var látinn sofa í rúmgóðri stofu í vesturenda hússins í Húsa- vík. Herbergisfélagi minn var Kristinn, sonur hjónanna, og sváf- um við sinn í hvoru rúmi. Við töl- uðum fátt saman og hugðumst sofna, en mér varð ekki greitt um að festa svefninn, enda á eg vanda til þess í ókunnum stöðum. Leið svo fram yfir miðnætti. Þá heyrist mér einhver hreyfing vera á ganginum fyrir framan og í sama bili rýkur hundur upp með gelti og látum, og síðan ýlfri og heyrist mér þá sem honum væri kastað í veggina sitt á hvað. Þó reyndi eg að skýra þetta á þann hátt að hundur þessi mundi vera flogaveikur, og mundi ekki geta haldið sér kyrr- um. Þessi ’æti jukust nú úm allan helming og gekk á þessu í full- komlega hálfa klukkustund, en þá datt allt í dá og heyrðist ekki í hundinum framar Taldi eg þá víst að hann mundi mikið lamaður, eða jafnvel dauður. Að lokum sofnaði eg, en varð ekki friðsamt. Mig dreymdi að eg væri kominn fram á ganginn, og um leið sá eg ganghurðina opnast. Þar sveif inn einhver skuggamynd af karlmanni. Hann teygði fram hægri höndina og þóttist eg sjá að handleggurinn væri með holdi og blóði. Hann greip um langatöng mína fast, og dró mig jvo fram og aftur um ganginn Fann eg að hann mundi vera mjög sterkur. Eg þótt- ist vita að hann mundi vera reiður við mig út af einhverju og þá var sem því væri hvíslað að mér að þarna væri kominn eigandi haus- kúpunnar. Þá varð mér að orði: „Viltu að eg komi beinum þínum í vígða mold?“ Þá kveður við dimm rödd: „Þau fara aftur þangað er þau fundust, og fleira þar með, og mun ekki þykja tíðindalaust“. Síðan hvarf mér þessi skugga- mynd og draumurinn varð ekki lengri. Klukkan átta að morgni vaknaði eg og þóttist útsofinn. Klæddi eg mig skjótt. Voru þá hjónin komin á fætur og niður í eldhús. Þar ræddu þau saman í hálfum hljóð- um, því að börn þeirra munu enn hafa sofið, því að þeim hefir sjálf- sagt ekki orðið svefnsamt fram eft- ir nóttu. Eg bauð hjónunum góðan dag og spurði hvort þau hefðu nokkuð getað sofið í nótt fyrir ólát- unum í hundinum. Þau kváðust ekki skilja hvað amað hefði að hundinum, )>ví að aldrei fyr hefði heyrzt neit.t í honum að næturlagi; hann hefði hlotið að verða var við eitthvað meira en lítið. Var svo ekki rætt meira um þetta. Um daginn vonaðist eg eftir að Sveinbjörn kæmi, en það brást því að hann hafði skroppið til Seyðis- fjarðar. Eftir þrjá daga kom hann úr þeirri ferð og náði eg þá tali af honum. Eg spurði hvort honum hefði vitrast nokkuð nóttina eftir að við hittumst í Húsavík. „Ekki var iaust við það“, svaraði hann. „Mig dreymdi að eg þóttist úti staddur heima á Parti. Mér fannst vera nótt, en ekki dimmt, svo að eg ^á vel til Húsavíkur. Sá eg þá hvar maður kom út úr hús- inu í Húsavík og stefndi beint heim að Parti. Þykist eg þegar skynja, að hann muni ætla að finna mig. Hann er óðar kominn og staðnæm- ist hjá mér Ekki þekkti eg mann- inn, en mér leizt þegar vel á hann,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.