Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Side 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 625 að þarna var óbyggt svæði og engir menn í námunda við sprengistaðinn nema nokkrir Tungusar, en þeir eru af Mong- ólakyni og eru á sífelldu flökti fram og aftur með hreindýr sín. Þó bárust fréttir frá þeim um ógurlega sprengingu, sem orðið hefði nærri ánni Tunguska (nærri 60. breiddargráðu), en enginn maður með viti vildi gera sig hlægilegan með því að leggja nokkurn trúnað á kjaftasögur hjá- trúarfullra hirðingja. Hér má geta þess, að seint á ár- inu 1908 var haldinn í Dublin fundur „The British Association for the Advancement of Science“, og þar helt dr. H. W Shaw erindi um merkilegt fyrirbrigði.' Hann skýrði frá því að undarleg loft- bylgja hefði farið yfir England frá norðaustri til suðvesturs hinn 30. júní. Mælitæki á sex rann- sóknastöðvum hefði orðið vör við þessa loftbylgju. Menn ræddu um þetta fyrirbæri fram og aftur, en enginn af þeim vísindamönnum, sem þar voru, gat gefið neina skýringu á því. Skýrsla Shaw var því borðlögð og gleymdist. Þessi fyrirburður skeði sama daginn og sprengingin mikla varð í Síberíu. Nú leið og beið Heimsstyrjöld- in fyrri skall á, og menn höfðu þá um annað að hugsa meðan hún geisaði, og svo kom rússneska byltingin þar ofan á, svo að Rúss- ar höfðu nógu öðru að sinna en rannsóknum. En svo var það árið 1920 að jarðfræðingurinn L. A Kulik pró- fessor fekk rússnesku stjórnina til þess að veita nokkurt fé til rannsóknar á því, hvað hæft væri í sögunum um hina miklu sprengingu í Síberíu fyrir 12 ár. um. Sumarið eftir fór svo Kulik prófessor austur til Kansk í Síberíu, en það er járnbrautarstöð Hér er mynd, sem sýnir hring. beltin, sem Kulik talar um. í innsta hringnum voru öll tré uppi standandi. í næsta hring voru þau öil brotin eða rifin upp með rótum, en þar fyrir utan fóru skógarskemmdirnar minnk- andi. Þó höfðu tré brotnað í 48 km. fjarlægð frá sjálfum sprengi- staðnum. um 600 km. fyrir sunnan sprengi- staðinn. Þarna átti hann tal við ýmsa menn, sem mundu spreng- inguna. Þar á meðal var járn- brautarverkamaður, sem hafði verið að vinna við hliðarbraut skammt frá Kansk, og sagðist honum svo frá: „Skyndilega varð eg var við ógurlegan súg og heyrði mikla þrumu. Eg varð dauðhrædd- ur. Lestarstjórinn í lestinni nr. 92 varð svo hræddur að hann stöðv- aði lestina, að öðrum kosti helt hann að hún mundi fjúka af tein- unum. Og þegar hann kom inn á hliðarbrautina þar sem við vor- um, bað hann okkur að athuga hvort ekki hefði orðið sprenging einhvers staðar í lestinni“. Ýmsir aðrir gáfu honum upplýsingar og þótti honum allt þetta svo merki- legt, að fullkomin ástæða væri til þess að gera út sérstakan rann- sóknaleiðangur á sjálfan sprengi- staðinn. Rússneska stjórnin daufheyrðist þó við þeirri málaleitan hans er heim kom, og svo liðu enn sex ár svo, að ekkert var aðhafst. En þá fekk Kulik styrk til rannsókna- ferðar. Lagði hann svo á stað ásamt samverkamönnum sínum. Hrepptu þeir mikil illviðri og komust oft í hann krappan áður en þeir náðu áfangastaðnum. En hann var auðþekktur þegar að honum var komið. Sprengingin hafði gert þar grunnan gíg um 3 km víðan, en inni í honum voru svo aðrir smærri gígar, um 200 að tölu og var botninn í þeim nú þakinn mosa. Umhverfis gíginn var 7—10 km breitt skógar-hringbelti, þar sem trén stóðu öll, en voru nú fevsk- in vegna þess að hitinn af spreng- ingunni hafði brennt af þeim lauf og greinar. Þar næst kom annað hringbelti, þar sem hvert einasta tré hafði brotnað eða rifnað upp með rótum. Var einkennilegt að líta yfir þann val, því að trjá- topparnir sneru allir burt frá sprengistaðnum. Þar fyrir utan komu enn tvö hringbelti, er náðu um 60 km. í allar áttir út frá sprengistaðnum. Voru þar mörg tré brotin og rifin upp með rót- um, en þessi skógarspjöll urðu þó minni og minni eftir því sem ut- ar dró. Kulik prófessor gróf 30 metra djúpa gryfju í sjálfum gígnum til þess að leita að brotum úr loft- steini, því að hann var fyrirfram sannfærður um að gríðarmikill loftsteinn hefði fallið þarna til jarðar. En er hann fann ekki nein brot, þótti honum það mjög und- arlegt. Hitt þótti honum einnig furðulegt, að trén, sem stóðu á næsta hringbelti við gíginn, skyldi öll standa. Hvernig stóð á því að þau höfðu ekki brotnað eins og trén, sem lengra voru burtu? — Hann reyndi að skýra þetta á þann hátt, að nokkrum loftstein-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.