Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Side 6
626
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Tröllið í sólhverfinu
Júpiter er nœr 1J sinnum stœrri en jörðin
um hefði slegið saman þarna og
kraftur hvers þeirra hefði sama
sem upphafið kraft hinna, líkt og
þegar fjórir jafnsterkir menn tog-
ast á um fjögur skaut.
En nú skýra sovézkir vísinda-
menn þetta fyrirbæri á þann hátt,
að sprengingin hafi hlotið að verða
í lofti, nokkuð fyrir ofan yfir-
borð jarðar. Loftþrýstingurinn af
sprengingunni hefði því fyrst
komið niður nokkuð utan við
sjálfan sprengistaðinn. Þess vegna
standi trén í innsta hringbeltinu,
en þar fyrir utan, þar sem ofur-
magn loftþrýstingsins náði sér
niðri, hefði það brotið hvert tré
eða rifið upp með rótum.
Leiðangursmenn Kuliks náðu í
ýmsar frásagnir Tungusa um
sprenginguna. Einn þeirra, sem
þá hafði átt heima í Vanavara, um
80 km. frá sprengistaðnum, sagði
svo frá: „Eg sat á verönd utan
við húsið og horfði til norðurs.
Og þá gaus upp í norðvestri svo
óskaplegur eldur að hitinn af hon-
um var óþolandi. Eg helt að
kvikna mundi í fötunum mínum.
Og þessi mikli eldur náði yfir
stórt svæði, á að gizka hálfan
annan kílómetra. En þetta var
ekki nema í svip. Svo dimmdi og
þá kom fellibylur, sem feykti mér
út af veröndinni, og bá heyrði eg
slíkan gauragang að engu líkara
var en öll hús væri að fjúka. Rúð-
ur brotnuðu í húsum og jarðveg
reif af í torfum og slagbrandur-
inn fyrir búðinni brotnaði, og var
hann þó úr járni“<
Allar voru frásagnirnar á þá
leið, að engu var líkar en hér
hefði orðið kjarnorkusprenging —
fyrst hinn ógurlegi hiti, þar næst
fellibylur út frá staðnum, og síð-
an bylur úr öfugri átt, er loftið
leitaði jafnvægis aftur.
Sprengingin heyrðist alla leið
norður að heimskautsbaug og suð-
JARÐSTJÖRNURNAR Merkúr,
Marz og jafnvel Venus líkjast
jörðinni nokkuð. Öðru máli er að
gegna um „stóru bræðurna" í sól-
hverfinu, Júpiter, Satúrnus, Úran-
us og Neptúnus. Fyrst og fremst
er það stærðin sem gerir þá ólíka
jörðinni. Júpiter er 138.720 km. að
þvermáli, eða nær 11 sinnum
stærri en jörðin. Satúrnus er 114,-
400 km. að þvermáli en Úranus og
Neptúnus eru líkir að stærð, um
51.200 km að þvermáli.
Þessir risavöxnu hnettir hafa
ekki sama þéttleika og jörðin. Þeir
eru því ekki allir úr föstu efni,
heldur er kjarni þeirra umluktur
ur að Baikal-vatni, en þangað eru
1000 km. frá Tunguska. Jarðhrær-
inga, sem sprengingin olli, varð
vart í Tiflis, sem er rúmlega 4000
km. frá Tunguska og í Jena, sem
er í 5700 km. fjarlægð
Veðurfræðingar í Evrópu, að
minnsta kosti í Kaupmannahöfn
og Vínarborg, tóku eftir einkenni-
legum loftsjónum dagana 30. júní
og 1. júlí ,en gátu enga grein gert
sér fyrir því hvernig á þeim stæði.
Einn þeirra hefir skráð þessa
frásögn um það- „Mjög sterka
gula birtu lagði á norðurloftið og
norðausturloftið að kvöldi hins
30. júní, svo hálfbjart var alla
nóttina fram að dögun 1. júlí, en
þá varð austurloftið dökkgrænt
með gulri slikju. Bæði kvöldin var
norðurloftið eldrautt eða dumb-
rautt. Næstu nótt var líka svo
bjart, að hægt var að lesa smá-
prent við þá birtu“.
þykku lagi af gaskenndum efnum.
Menn vita ekki hvað þetta gaslag
muni vera þykkt, og þess vegna
vita þeir heldur ekki hver er raun-
veruleg stærð hnattanna
Júpiter er tröllið í sólhverfinu.
Honum fylgja fjórir stórir hnettir,
eða tungl, og átta minni, svo að
alls hefir hann 12 tungl sér til
fylgdar.
Vegna stærðar Júpiters töldu
menn víst, að hann hefði geisimik-
ið aðdráttarafl, en við nánari rann-
sóknir hefir komið í ljós, að að-
dráttarafl hans er ekki nema 2,6
sinnum meira en aðdráttarafl
jarðar er við yfirborð hennar.
En það sem . var óráðin gáta
fyrir vísindamenn og veðurfræð-
inga, var yfirnáttúrlegs eðlis með-
al þeirra Tungusa, sem lifðu af
þessar hamfarir. Þeir sögðu að
eldguðinn Agdy hefði komið til
að refsa mönnunum. Og allir urðu
að flýa af þessum slóðum, því að
þótt þar hefði verið áður hin
bezta hagaganga fyrir hreindýr,
þá var nú engri skepnu líft þar.
Rússar hafa sent nokkra leið-
angra á sprengistaðinn, en þeir
bættu í engu um rannsókn Kuliks
prófessors, þar til nú, að seinasti
leiðangurinn hefir komizt að því,
að jörðin umhverfis sprengistað-
inn er geislavirk. Þar bætist enn
við eitt óskiljanlegt atriði, og tím-
inn verður að leiða í ljós hvort
nokkra skýringu er hægt að fá
á því.
(Úr „The Milwaukee Journal")