Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 627 Þetta stafar af því hvað Júpiter er tiltölulega léttur. Meðalbungi hans er ekki nema 1,3 sinnum meiri en þungi vatns, en meðalþyngd jarð- ar er 5,5 sinnum þungí vatns. Af þessu er augljóst að jörðin er miklu þéttari í sér. Og þá er held- ur enginn efi á því, að gashjúpur- inn utan um Júpitei er mörg þús- und km. þykkur, en hve stór kjarn- inn sjálfur er, vita menn ekki. Þegar stjörnufræðingar athuga Júpiter í stjörnusjá, er það ekki annað en gashjúpurinn sem þeir geta virt fyrir sér Og að þarna sé um gasefni að ræða, er sannað með mælingum á endurskini hnattar- ins. Það telst vera 44%. Til saman- burðar má geta þess að endurskin Neptúnusar er talið 52%, Úranus- ar 45% og Satúrnusar 42% Endur- skin Venusar er calið 59% og er það vegna gufuhjúpsins umhveríis stjörnuna, en endurskin Marz er aðeins 15% og Merkúrs 5,5%. Fyrir nokkru tóku menn eftir því, að á yfirborði Júpiters eru bjartar og dimmar rákir, sem liggja samhliða miðbaug hans. Or- sakir þeirra telja menn storma. Þegar fyrstu stjörnusjárnar komu, tóku menn eftir því, að Júpiter er ekki hnattlaga, heldur mjög flatur til skautanna. Þetta gat ekki stafað af öðru en mið- flóttaaflinu, sem myndast við snúning hnattarins svo að hann belgist út um miðju, en dregst að sér við skautin. Af þessu drógu menn þá ályktun að Júpiter mundi snúast ofsahratt um sjálfan sig. Þetta sannaðist síðar Þá tóku menn eftir því að rauður blettur var í rákunum, og þessi blettur virtist vera fastur og snúast með hnettinum. Blettur þessi var norð- an við miðbaug og var ekkert smá- smíði, 48.000 km. á annan veginn og 24.000 km á hinn veginn. Eftir hreyfingu þessa bletts mældu menn svo snúningshrað? hnattar- ins, og kom þá í Ijós að hann fór einn snúning á hverjum 9 klukku- stundum og 55 mínútum En eftir að þessi mæling var gerð, komust menn þó að því að bletturinn var ekki fastur á yfirborði hnattarins. Hann fannst fyrst 1878. en árið 1890 hafði hann tærzt úr stað svo að nam fjórða hluta af ummáli hnattarins. Þótt Júpiter snúist hratt um sjálfan sig, fer hann hægt á hring- braut sinni um sól. Meðalfjarlægð frá honum til sólar er um 773 miljón km., en sporbraut hnattar- ins umhverfis sól er 48 528.000.000 km. löng. Þessa braut fer hann einu sinni á nær 12 árum. Hraðinn er ekki nema um 13 km. á sek- úndu, en jörðin fei á sinni spor- braut um 29 km á sekúndu og Merkúr 47,5 km. á sekúndu. Tunglin ganga umhverfis Júpi- ter á mjög mismunandi tíma, enda er gríðarlegur munur á fjarlægð- inni þar í milli. Það tunglið, sem næst er Júpiter fer umhverfis hann á 12 stundum en það fjarsta er rúm tvö ár á leiðinni Þetta er það sem menn vita nokkurn veginn með vissu um Júpiter. En það er þó ýmislegt annað, sem menn þykjast vita eftir mælingum. Er það bá fvrst, að á yfirborði hans telja menn að sé 210 gr. frost á Fahrenheit og vegna fjarlægðar hans frá sólu er þetta talið sennilegt. (Áður heldu menn að Júpiter væri enn glóandi). Með brásjármælingum hafa menn kom- izt að því, að í hjúpnum utan um hann muni vera methan-gas og ammóniak, með öðrum orðum, í gufuhveli hans er ekkert annað en banvænt eitur Sumir stjarnfræðingar hafa haldið því fram; að Júpiter vært alls ekki úr föstu efni, þetta mundi vera gashnöttur. En það getur ekki verið, hann hlýtur að hafa ein- hvern kjarna úr því að eðlisþyngd hans er 1,3. En þá koma þessar spurningar: Hve stór er kjarninn og úr hverju erdiann? Hvað er gas- lagið þykkt utan á honum? Hvern- ig verður aðkoman þarna, ef geim- fari tekst einhvern tíma að komast svo langt? t Það er þá fyrst, að geimfar sem hætti sér inn í gashvelið, mundi þegar verða fyrir ógurlegum þrýstingi, vegna þess að hvelið er miklu þéttara heldur en gufuhvel jarðar. Ef geimskipið kæmist nið- ur úr þessu hveli, sem gera má ráð fyrir að sé 20—30.000 km., þá er þrýstingurinn orðinn miljón sinn- um meiri heldur en loftþrýstingur á yfirborði jarðar, og mun ekkert geimfar þola hann, nema það sé álíka sterkt og öflugasti orustu- dreki. Og hvað fengi menn svo að sjá, ef þeir kæmist niður að yfir- borði hnattarins7 Ekkert nema jökul, sem er mörg þúsund kíló- metra þykkur og harður sem stál, vegna hins mikla þrýstings, sem á honum hvílir. Þessi iökull hefir þegar fyrir óralöngu sogað í sig allt vatn, sem kynni að hafa verið í gashvelinu. Vera má líka að ofan á honum sé þykkt kraplag úr met- han og ammóníum, ef til vill þús- undir km. á þykkt. Væri geimfar nú svo sterkt, að það kæmist í gegnúm gashvelið án bess að leggj- ast saman af þrýstingnum, þá þyrfti það enn að komast í gegnum þetta krap, áður en það fengi fasta grund til að lenda á. Nei, ef menn vilja rannsaka Júpiter, og geta komist svo langt út í geiminn verða þeir að lenda á einhverju af tunglum hans, og reyna að athuga hann þaðan. 'Úr bókinni „Nine planets“)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.