Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Síða 8
V
628
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Vöggustofa sem ThorvaldsensfélagiÖ er að reisa í Reykjavík.
Þetta gerðist í nóvember
ALLMIKLAR umræður og deilur
urðu á Alþingi um landhelgismálið
vegna þess að ríkisstjórnin féllst á
ósk brezku stjórnarinnar um við-
ræður um deiluna, þar sem reynt
yrði að ná samkomulagi. Allir
flokkar eru sammála um að ekki
verði kvikað frá 12 milna fisk-
veiðilögsögunni, en stjórnarand-
stæðingar vilja alls ekki að við
Breta sé talað. Útvarpsumræður
voru um málið á Alþingi 25. nóv.
VEÐRIÐ
Veðurfar í nóvember hefir verið
áfallalaust og kyrrt loft. Hiti var
hinsvegar ekki áberandi meiri en í
meðalári. Úrkoma hefir verið lítil
sem engin og meðal annars orsakað
rafmagnsskort á Norðurlandi vegna
vatnsleysis í ám.
Sem dæmi um veðurfarið má geta
þess að útsprungin rós var í garði
norður á Húsavík 24. nóv. (29.) og
einnig í garði í Reykjavík (30.)
Fyrsti hauststormurinn varð 29. nóv.
og komst vindhraðinn þá upp í 11
vindstig í Reykjavík, en á Stórhöfða
í Vestmanneyum í 15 vindstig. —
Skemmdir urðu ekki miklar í veðri
þessu, þó fauk strætisvagn út af vegi
í Reykjavík (30.)
ÚTGERÐIN
A miðnætti fyrsta nóvember var
öllum veiðisvæðum dragnótabátanna
lokað, þar sem veiðileyfi voru þá út-
runnin (1.)
Yfir 20 bátar stunda síldveiðar frá
Vestmanneyum. Tveir bátar eru um
hverja nót (T. og 2.)
Mikil brögð eru að því að bátar
hafi ekki getað staðið í skilum með
greiðslur á tryggingargjöldum sínum
fyrir árið 1960 (2.)
Verðmæti dragnótaaflans til septem-
berloka nam um 17 miljónum kr. (6.)
Sildveiðin í Eyum hefir gengið það
vel að beitusíld er orðin næg og byrj-
að að verka fyrir erlendan markað
(13.)
Afli togaranna hefir verið mjög lé-
legur bæði á heimamiðum og við
Grænland og Nýfundnaland. Hefir
þetta meðal annars orsakað það að
einum hinna nýu og stóru togara, Sig-
urði ÍS 33, hefir verið lagt og skips-
höfnin afskráð (15.) Einnig var ís-
borgu lagt.
Erfiðleikurh veldur á ísafirði að
skortur er á fólki til vinnu i hrað-
frystihúsin. 10 línubátar róa þaðan og
hefir afli verið misjafn, en oft dágóð-
ur (15.)
Afli reknetjabáta við Faxaflóa hefir
verið dágóður, sérstaklega eftir að
líða fór á mánuðinn (19.)
Vátryggingariðgjöld fiskiskipaflot-
ans verða greidd af eftirstöðvum út-
flutningssjóðs (20.)
Síldveiðin hér syðra glæddist mjög
síðustu daga mánaðarins. 28. nóvem-
ber kom vélbáturinn Guðmundur
Þórðarson t. d. fullhlaðinn til hafnar
í Reykjavik, eða með 1500—1600 tunn-
ur og Heiðrún með um 1100 tunnur
(29.)
FRAMKVÆMDIR
Ný verzlun, Fons, opnar í nýum og
glæsilegum húsakynnum í Keflavík
(3.)
Unnið er nú að margvíslegum fram-
kvæmdum i Grundarfirði, vatnsveitan
var endurbætt, barnaskóli smíðaður,
ibúðarhús, vélaverkstæði og fleira (3.)
Gerð hefir verið setustofa í Mennta-
skólanum að Laugarvatni, fyrir nem-
endur þar (4.)
Höfn og verslun rís upp í Skarðs-
stöð á Skarðsströnd (5.)
Nýtt hús fyrir póst og síma opnað
til afnota á Akranesi (5.)
Bókaverslun ísafoldar í Austur-
stræti stækkuð (8.)
Kornrækt ryður sér nú mjög til
rúms á Fljótsdalshéraði (12.)
Ný snyrtivöruverslun, Tíbrá, tekur
til starfa að Laugavegi 19 (12.)
Ný verslun, sérverslun með raf-
magnstæki og húsgögn, tekur til
starfa á Bolungarvík (13.)
Nýtt skipulag miðbæarins í Reykja-
vík er nú undirbúið og verður kunn-
gjört í ársbyrjun 1961 (13.)
Nýr, 150 lesta bátur, Ólafur
Tryggvason, kom til Hornafjarðar. —
Eigandi er Tryggvi Sigjónsson (15.)
Klúbburinn, nýstárlegt veitingahús,
tekur til starfa í Reykjavík. Forstöðu-
menn Klúbbsins eru Birgir Árnason
og Bjarni Guðmundsson (15.)
Lokið er við að steinsteypa fyrstu
götuna á Akranesi (18.)
Reykjavíkurbær hefir fengið 25
milljón króna lán af bandarísku vöru-
kaupaláni til nýrra hitaveitufram-
kvæmda (18.)
Flökunarsalur og verbúð fyrir 100
manns í byggingu í Ólafsvík á vegum
Hraðfrystihúss Ólafsvíkur (20.)
Almenna bókafélagið opnar nýa og
glæsilega bókabúð (20.)
Ný síldarverksmiðja, sem bræðir
2500 mál á sólarhring tekur til starfa
í Vestmanneyum (22.)