Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Page 14
634 LESBÓK MORG líNBLAÐSINS eða illa, hvort þær kunna við sig þar sem þær eru og hvort þær eru ánægðar með meðferðina á sér. Þá sé hægt að bæta úr því sem aflaga fer, og með því móti muni jurtir þroskast mörgum sinnum betur en nú er. Dr. Hubbard seg- ir að jurtir geti orðið sálsjúkar og visnað og dáið af því, en nú sé hægt að koma í veg fyrir það þeg- ar fylgst er með tilfinningalífi þeirra. Dr. Hubbard er svo sem ekki einn um þessa skoðun. Þess er skemmst að minnast er indverska vísindakonan Stella Ponniah kom fram með þá fullyrðingu, að jurtir hefði unun af söng og hljóð- færaslætti. Hún veitti bessu fyrst athygli hjá stofublómum sínum. Það var engu líkar en nýtt líf færðist í þau við ómana af ind- verskum danslögum. Og þá tóku þau að vaxa langt fram yfir það sem áður hafði verið. Þess vegna fullyrti Stella Ponniah, að hægt mundi vera að auka jarðargróða margfalt ef tónar væri látnir ber- ast yfir akrana. Eins og allir vita er það eitt af vandamálum geimferðanna, sem ráða verður fram úr, á hverju geimfararnir eiga að lifa. Heizt hefir mönnum komið til hugar að rækta einhverjar jurtir í geimför- unum. Með því væri slegnar tvær flugur í einu höggi: geimfararnir fengi piatvæli og jurtirnar myndi jafnframt eyða kolsýru úr and- rúmslofti þeirra. Hafa því verið gerðar margar tilraunir í þessa átt. Ein þeirra var sú, að vita hvort kálhöfuð væri ekki ágæt. Voru nú tekin kálhöfuð og sett í klefa, sem er eins og klefi í geím- fari, þar sem aðdráttaraflið er upphafið og sama er hvað snýr upp eða niður. En er kálin voru komin inn í þennan klefa, var eins og þau töpuðu sér alveg og ( f 4 hættu að vaxa. Þetta er talin sönnun þess, að ekki sé sama hvernig farið er með jurtir. Þær þrífast bezt ef þeim er sýnd alúð og hjartahlýa, jafnframt því sem vel er séð fyrir þörfum þeirra. Vestur í Los Angeles er félags- skapur sem nefnist „The Relegious Research Foundation" sem hefir það markmið að hlúa að plöntum með því að hugsa hlýtt til þeirra. Félagið heldur fundi reglulega og kappkosta menn þá að senda blómum og jurtum hlýar hugsan- ir, en við þetta dafna blóm og jurtir ágætlega og vaxa ótrúlega mikið. Á þessu þykir sýnt að jurtir kunni að meta vináttu og þýðleik. Aftur á móti eru mýmörg dæmi þess að jurtir þola ekkt kaldlvndi og hörkulegt viðmót. Og þá er eins og sumar reiðist og andi frá sér eitruðum gufum. Ef einhver ódöngun kemur í jurtir, er hægt að hressa þær með rafmagnsstraumi. Þetta hefir garð- yrkjumaður nokkur í Sussex í Englandi reynt með góðum ár- angri. Hann á gróðurhús, þar sem hann ræktar tómata. Honum fannst einhver deyfð í plöntunum og var ekki ánægður með upp- skeruna. Hann lagði þá rafmagns- leiðslur í moldina við rætur þeirra, og eftir það brá svo við að hann fekk þrefalda uppskeru. í blaðinu „This Week“, sem gef- ið er út í Bandaríkjunum, segir garðyrkjumaður nýlega, að þegar mönnum skiljist að jurtum verð- ur að líða vel og þær verði að vera ánægðar, þá muni þær launa fyrir sig með því að gefa upp- skeru á öllum tímum árs. (Úr World Digest) —- NÆSTA LESBÓK kemur ekki fyr en um jólin. Læknabók Celsus H V E R kannast nú við Celsus, manninn sem ritaði sögu læknis- listarinnar fyrir 2000 árum? Áreið- anlega mjög fáir aðrir en læknar. Fullu nafni hét hann Árelíus Cornelíus Celsus og er talið að hann hafi fæðst árið 25 f. Kr. skammt frá Narbonne, sem er á Miðjarðarhafsströnd Frakklands, skammt frá spönsku landamærun- um. Hann var af göfugum ættum og sennilega ríkur og átti heima í Rómaborg á manndómsárum sín- um. Um hann er annars fátt vitað nema þetta, að hann ritaði fyrstu sögu læknislistarinnar og jafnvel þá einu sem til er. Enginn af sam- tíðarmönnum hans kallar hann lækni. Pliny hinn eldri kallar hann rithöfund. En bók hans ber með sér að hann hefir verið vel að sér í læknisfræði. Hafi hann verið rithöfundur og skrifað margar bækur, en nú eru þær allar glataðar, nema saga læknislistarinnar. Hún lá að vísu gleymd og grafin í rúmlega 1400 ár. En þá var það að Nikulás páfi V. uppgötvaði bókina. Hann sá þegar hvílíkur dýrgripur hún var og lét prenta hana í Florens 1478. Þetta er því fyrsta lækninga- bókin sem komst á prent, enda var prentlistin þá alveg ný af nál- inni. Nikulás páfi var merkilegur menningarfrömuður. Það var hánn sem stofnaði hið víðfræga bókasafn Vatikansins og páfahöll- in 'var á hans dögum miðstöð fræða og menningar í Ítalíu. Celsus var Rómverji og hann ritaði bók sína á latínu. En á ham (

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.