Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Síða 16
63« LESBÚK MORGUNBLAÐSINS BRIDGE A 963 V K D 7 ♦ Á K 4 * K 9 4 2 * A G 4 2 V 10 9 5 4 * 73 * D 10 3 ♦ — V A 8 3 2 ♦ G 109 86 * G 7 6 5 ♦ K D 10 8 7 5 V G 6 ♦ D 5 2 X Á 8 N gaf og sagnir voru þessar: N A s V 1 X pass 1 X pass 1 gr. pass 3 X pass 4 X pass pass pass Vestur sló út T7 og slagurinn var tekinn í borði. Þá kom tromp og V drap drottningu með ás, og kom aft- ur með tigul, sem nú var tekinn á hendi. Kom svo SK og síðan lágspaði undir gosann. Þá kom út hjarta, sem A drap með ás, og sló síðan út tigli, en þann slag fekk V á tromp, og þar með var spilið tapað. S hefði átt að slá út hjarta í öðr- um slag. Með því náði hann ásnum af A, og eftir það voru spil A gagns- laus. Á þennan hátt hlaut S að vinna spilið. Sjón og heyrn Halldór hét bóndi í Steinum undir Eyafjöllum, merkur maður, greindur vel, tölugur og hávaðamaður í meira lagi. Einu sinni átti hann, ásamt fleir- um, erindi út að Hlíðarenda til Vig- fúsar sýslumanns Þórarinssonar. Vig- fús kom út að fagna gestum og segir við Halldór um leið og hann heilsar honum: „Mikil rödd er yður gefin, strax sem þér komuð út fyrir Selja- landsmúla heyrði eg glöggt hvert orð, sem þér sögðuð“. Halldór svarar: MIÐBÆRINN 1 REYKJAVÍK. — Þessa ágætu mynd tók ljósmyndari Morgun- blaðsins úr flugvél fyrir skemmstu. Sér þar yfir mestan hluta Miðbæarins, Austurvöllur á miðri mynd og handan við hann Alþingishúsið og dómkirkjan, sem nú eru orðin lítil í samanburði við ýmis stórhýsi þar í nánd. Svo sér yfir tjörnina með hólmunum og tjarnarbrúnni. Lengst í burtu sér til Skerjafjarð- ar og flugvallarins. (Ljósm.: Ól. K. Magn.) „Guði sé lof fyrir heymina yðar og málið mitt“. (Frásögn séra Stefáns Stephensen í Hróarsholti) Eftirmæli Karl nokkur dó í Blönduhlíð og var Gísli Konráðsson beðinn að yrkja til minningar um hann, en Gísli afsakaði sig með því, að hann gæti ekkert um karlinn sagt, því hann hefði hvorki gert gott né illt af sér. Var þá leitað til Hallgríms Jónssonar læknis um eftirmælagerð. Hallgrímur hafði þá frétt orð Gísla og kastaði þegar fram þessari vísu: Satt um manninn segja ber, sjálfs að efnum bjó hann. Engum gerði illt af sér eða gott. Svo dó hann. Roðgúll var hjáleiga á Stokkseyri og kemur nafnið fyrst fyrir í Jarðabókinni 1708. Um það segir dr. Guðni Jónsson (Ból- staðir og búendur í Stokkseyrar- hreppi): „Erfitt er að gera sér við- hlítandi grein fyrir Roðgúlsnafninu. Séra Jakob prófastur í Gaulverjabæ ritar það jafnan Rauðgúll. Mun það vera skýringartilraun hans.... Brynj- ólfur Jónsson frá Minna-Núpi giskaði á að upphaflega nafnið hefði verið Rauðkuhóll.... Hyggjum vér.... að Roðgúlsnafnið sé upphaflega gefið í gamni eða kerskni". — 1 Blöndu II er ritgerð um bæarnöfn eftir Pál Bjarnason cand. phil. og heldur hann því fram að forskeytið Rauð- merki jarðsæld, auða jörð, og segir svo: „Roðgúll (þ. e. rauðkjaftur) er Vatns- dalur kallaður, af því að þar er jarð- sælt og dalurinn gapir oft alauður inn í hjarnbreiðu fjallanna umhverfis hann“. Upphaf Sauðárkróks Um 1860 voru þrír búðargarmar á Sauðárkróki úr torfi , er sjómenn höfðu til skjóls, en eftir það fóru menn að byggja þar. Fyrstur manna byggði þar Árni Arnason „klénsmið- ur“, og var þá farið að byggja þar af fleirum. Fyrst verslaði þar Hallur As- grímsson og þar næst Loðvík Popp og svo hver af öðrum. En þar er nú höf- uðstaður sýslunnar. (Símon Eiríksson í Litladal)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.