Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 391 Tjald í hrauninu. Axlarhyrna í baksýn. urlandi, sem eru að eltast við síld- ar torfur. Og veiðarnar eru svip- aðar — algert happdrætti, stund- um fæst ekkert, stundum góður afli. Tjaldrarnir eru iðnir. Þeir stinga hver sínu nefi í sandinn, og kippa því fljótt upp aftur, ef þeir verða ekki varir. En margan fallegan dráttinn komu þeir með upp úr sandinum og urðu oft að taka á öllum kröftum. Og það var ótrúlegt hvað hver þeirra gat gleypt marga af þessum dólpungs ormum. Það var engu líkara en að annað hvort væri þeir býsna soltnir, eð<a þeir ætluðu að fá þá saðningu er nægði í marga daga. Það eru margar fleiri tegundir af fuglum þarna hjá ósnum. Ýms- ir smáfuglar koma niður að leiru- jaðrinum við hraunið til þess að tína þar smáorma. Það er mikið af ormum hér. Ef þangi er lyft frá steini, þá er þar eins og ið- andi maðkaveita undir. Hér er því nóg um æti. En ekki virðast krí- urnar ksera sig neitt um það góð- gæti. Þær stunda sinn veiðiskap í sjálfum ósnum og kafa eftir veið- inni. Hér er líka hettumár að flækjast og nokkrar skeglur. En mest furðaði mig að sjá þar tvo stóra grámáva, sem virtust alltaf halda kyrru fyrir og sátu ýmist á klettunum eða á eyrinni handan óssins. Mér var ekki ljóst hvaða veiðiskip þeir stunduðu hér. Þvottahús og rafmagnsstöð er á bakkanum rétt hjá gistihúsinu og milli þess og óssins eru steyptir veggir af gömlu lýsisbræðsluhúsi. í þennan grunn er fleygt sorpi alls konar og úrgangi frá gisti- húsinu, og svo er kveikt í því svo að það valdi ekki óþrifnaði og ill- um þef. Eitt kvöldið er eg kom heim til gistihússins, sá eg mikinn reyk leika um þak þvottahússins og datt fyrst í hug að nú hefði kviknað í út frá rafmagnshreyflinum. Eg gekk niður fyrir húsið og sá þá að reykurinn kom upp úr rústunum og var sem hann kæmi í gusum. Gekk eg þá nær til að athuga hvernig á þessu stæði. Og sem eg kom að veggnum og leit yfir hann, sá eg einkennilega sjón. í kring um rjúkandi og brennandi ruslhrúguna niðri í tóttinni voru fjórar eða fimm kríur, þrjár skegl- ur og báðir grámávarnir. Þessi hópur hafði komið þangað til að leita sér ætis. Kríurnar og skegl- urnar flugu þegar burt með gargi, er þær sáu að óvinur var í nánd, en grámávarnir voru önnum kafn- ir „í svælu og reyk“ að draga sundur draslið. Og í hvert skipti sem þeir læstu goggnum í eitt- hvað í hrúgunni og toguðu í, gaus þykkur reykmökkur upp úr hrúg- unni, og þess vegna var sem reyk- urinn kæmi í gusum upp fyrir húsið. Alls staðar verða hinar lifandi skepnur að heya harða baráttu til þess að afla sér matar. En ekki hafði mér dottið í hug að fuglar hættu sér inn í eld og reyk til þess. En grámávarnir þarna höfðu eflaust komizt að því, að sætar voru og bragðgóður matarleifar frá gistihúsinu, og skirrðust því ekki við að ná í þær, enda þótt þeir ætti á hættu að eldur hlypi í fiðrið. Og þótt þeim súrnaði svo sjáldur í augum, að þeir sæi ekki mann, sem kominn var fast að þeim, þá þótti þeim það víst til- vinnandi. Næstu daga hímdu grámávarn- ir á klettum og söndum. Þeir voru orðnir því afhuga að leita sér fæðu í sjónum. Þeir höfðu á viss- an hátt komizt í kynni við menn- inguna, og hún hafði orðið þeim að falli. Og fer ekki margri mann- kindinni líkt og þessum grámáv- um? Margt er um manninn á Búð- um um verslunarmannahelgina. Einn daginn snæddu 140 morgun- verð þar. Hvert einasta rúm í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.