Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Page 6
394 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Smásagan Úmenntaöur VINUR minn, Bill Sowter, er hóg- vær maður og yfirlætislaus, orðfár og orðvar og frásneiddur því að vilja ýkja. Hann hefir sagt mér þessa sögu: Það var árið 1943 þegar stríðið við Japan var í algleymingi. Hann var þá liðsforingi og hafði verið sendur til herstöðva í Bangalore í Mysore-ríki, en það er eitt héraðið í Madras á Indlandi. Hann var þarna með konu sína og tvö böm, Edmund 12 ára og Joyce 6 ára. Einhvern dag var hann sendur ásamt þremur innlendum undirfor- ingjum til þess að leita að vatni, lang- an veg frá herbúðunum. Þessir þrír undirforingjar hétu Kuppuswami, Ranganswami og Nairianswami. Með þeim fóru sex innlendir hermenn og matreiðslumaður. Yfirforinginn sagði að hann mætti hafa börnin sín með, þau myndi hafa gaman að slíku ferða- lagi. Þeim var nú ekið á bílum til áfanga- staðarins og skildir þar eftir. Brátt tókst þeim að finna þar vatn og síð- an unnu þeir að því að gera þar almennilegí vatnsból. Snemma morguns, sama daginn og töfraiæknir þeir áttu von á að bílar mundu koma að sækja sig, var Edmund litli að taka saman rúmföt sín. Skyndilega rak hann upp hátt hljóð, eins og hann hefði meitt sig. Bill sá að drengur- inn saug á sér fingur á vinstri hönd, en á gólfinu var rauðbrúnn sporð- dreki. Sowter steig þegar ofan á hann og drap hann. Hann vissi óðar að sporðdreki þessi mundi hafa bitið drenginn, og hann hafði verið nógu lengi í Indlandi til þess að vita, að bit sporðdrekans er banvænt. Drengurinn hafði óþolandi kvalir í hendinni, og faðir hans sá að rauðir taumar lágu upp úlfliðinn og færðust upp handlegginn. Það var blóðeitrun frá bitinu. Enginn tími var til þess að sækja lækni til Bangalore, og enginn sími var þarna nærri. Og það var hætt við að drengurinn mundi deya áður en bílamir kæmi. Sowter var örvílnaður og vissi ekki hvað hann skyldi til bragðs taka. Þá bar Kuppuswami þar að. Hann leit aðeins á drenginn og sagði svo: — Eg ætla að skreppa til næsta þorps og nú í einhvern, sem getur læknað þetta. Og svo rauk hann á stað. Sowter horfði á son sinn, augastein sinn, og hann sá hvemig rauðu þræðirnir færð ust upp eftir handlegg hans og voru komnir upp undir öxl. Hann vissi að drengurinn var dauðadæmdur. Eftir tíu mínútur kom Kuppu- swami aftur og hafði með sér Ind- verja, sem ekki var í öðrum fötum en lendaklæði. Hann var gráhærður, hafði rakað hárið ofan við ennið eyrnanna á milli, en látið hitt vaxa og var það sítt og kembt aftur á herðar. Ekki var hægt að gizka á aldur mannsins, hann gat verið fertug- ur, en hann gat líka verið sjötugur. Hann lét Edmund setjast og sat svo á hækjum sínum framan við hann. Og svo hóf hann einhverjar særingar á máli, sem Sowter skildi ekki. Jafnhliða strauk hann hand- legg drengsins með óhreinum fingr- um alla leið ofan frá öxl. Hann lagði svo mikinn kraft í særingar sínar og nuddið, að svitinn draup af honum og rann niður andlit hans í stríðum straumum. Sowter starði á hann milli vonar og ótta. Og skyndiiega sá hann að rauðu taumarnir á handlegg drengs- ins fóru að styttast, og var eins og þeir sigi niður. Það var líkast því er kvikasilfur fellur í hitamæli. . Þegar taumarnir náðu ekki lengra en upp í alnbogabót, var særinga- maðurinn orðinn uppgefinn. Hann kraflaði þá í öskuhrúgu, sem þar var, og bar öskuna á handlegg drengsins, svo að þar kom öskuhringur ofan við rauðu þræðina. Sowter horfði á og undraðist að þræðirnir færðust ekki úr stað, það var eins og þeir kæmist ekki upp fyrir öskuhringinn. Indverjinn hvíldist nokkra stund. Hann sat á hækjum sínum og var með lokuð augu. Nú höfðu hinir menn- irnir safnazt þarna saman og horfðu á, en enginn þeirra sagði neitt. Svo hóf Indverjinn særingar sínar að nýu og tók að strjúka handlegg drengsins. Og rauðu þræðirnir dróg- ust stöðugt niður á við. Ekki létti Indverjinn fyr en þeir voru komnir niður í góminn þar sem bitið var. Þá virtist Indverjinn kominn að nið- urfalli af þreytu, en hann helt samt áfram þar til rauðu þræðirnir voru með öllu horfnir. Þá var borið joð á bitsárið, og eftir það kenndi drengur- inn sér einkis meins.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.