Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Síða 14
402 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS og hér er sýnt (aðeins fyrstu og seinustu tölur): Kast Rauður Grænn Tala 1112 2 12 3 3 2 13 4 2 2 4 34 5 6 11 35 6 5 11 36 6 6 12 Á þessu sést, að töluna 2 geta menn ekki fengið nema á einn hátt (1. kast), en talan 3 getur komið fram á tvo vegu sem báðir eru jafn líklegir (2. og 3. kast). Tólfin er ekki hægt að fá nema á einn veg. En töluna 7 er hægt að fá á sex mismunandi vegu og þó alla jafn líklega (6 og 1, 1 og 6, 5 og 2, 2 og 5, 4 og 3, 3 og 4). Þetta vita allir teningaspilarar, þeir vita að sjaldgæfast er að fá 2 og tólfin, slík köst koma að jafn- aðd ekki fyrir nema einu sinni hvort í 36 köstum. En af því að talan 7 getur komið upp á sex mismunandi vegu, þá eru líkurn- ar fyrir því að hún komi upp 6:36 eða %, og má gera ráð fyrir að hún komi einu sinni upp í hverj- um sex köstum. Nú skal horfið aftur að líkun- um til þess að fá 6 upp á einum tening í hverjum sex köstum. Reikningurinn er þá þessi: Lík- urnar til þess að 6 komi upp 1 fyrsta kasti eru 1:6, en líkurnar til þess að þeir komi ekki upp er 5:6. En í fjórum köstum breytast líkurnar til þess að 6 komi upp þannig, að þær eru 671:625. En hverjar líkur eru þá til þess að fá tólfin einu sinni í 24 köstum með tveimur teningum? Þær eru ekki nema 4914:5086. En sé einu kasti bætt við, þá verða líkurnar hér um bil jafnar, eða 5055:4945. Þannig getur þá eitt kast snúið horfunum alveg við. Munduð þér hafa getað gizkað á þetta? Tæp- lega. Hér þarf athugun og út- reikning.----- Ágizkun manna og það sem þeim „finnst“ er til lítils gagns þegar meta skal líkur. Þar er ljósasta dæmið hin svonefnda „af- mælisgáta“: Hve margir menn þurfa að vera saman komnir til þess að nokkurn veginn sé öruggt að tveir þeirra eigi sama afmælis- dag? Nú eru, eins og allir vita, 365 dagar í ári, og þess vegna get- ur verið um 365 afmælisdaga að ræða. Sumir munu því segja að 50 menn þurfi að vera saman komnir eð«a jafnvel 100, til þess að líkur sé til þess að tveir þeirra eigi sama afmælisdag. Hið rétta er, að meiri líkur eru til þess að tveir menn eigi sama afmælisdag, ef 23 eru saman komnir. Ef 40 menn eru saman komnir eru lík- urnar 8:1 að tveir þeirra eigi sama afmælisdag. Allir hafa áhuga fyrir kosning- um og þess vegna fer oft fram könnun fyrirfram um það hvernig kosningar muni fara. Er þá tek- inn fyrir hópur manna og dæmt um úrslit kosninganna eftir und- irtektum þeirra. Nú eru mismunandi margir á kjörskrá, en þann hóp köllum vér „heild“. Hve stórum hóp þarf nú að safna til þess að geta dæmt um úrslit kosninganna? Ef kjósendur eru ekki nema 200, þá þarf 105 manna hóp, eða rúmlega helming heildarinnar til þess að geta sagt fyrir um úrslitin. Hvað þarf þá marga ef heildin er 10.000 eða 100.000? Ef heildin er 10.000, þá þarf að spyrja 213 manna hóp. Hópurinn stækkar ekki nema um 108, enda þótt kjósendum fjölgi um 9800. Sé nú heildin aukin um 90.000, eða upp í 100.000, þá þarf ekki að bæta við nema fjórum mönnum í hóp þeirra, sem spurðir eru. Þér segið að þetta hljóti að vera vit- leysa. En eg segi yður satt, að það sem yður „finnst“ er skakkt en líkindareikningurinn réttur. — Tökum hér enn eitt dæmi um líftryggingar. Hagskýrslur herma, að meðaldánartala á öllu landinu sé 3 af þúsundi. En svo breytist þetta nokkuð eftir aldursflokkum. Þegar líftryggingarfélag gerir áætlanir sínar um iðgjöld, miðar það við þetta. Og auðvitað verður þá líka að miða við fjölda þeirra, sem líftryggðir eru. Ef aðeins 10 menn léti líftryggja sig og ættu allir heima í sama húsinu, gæti landfarsótt orðið 9 þeirra að bana, og þá yrði félagið gjald- þrota. Ef einstaklingarnir væri 100 og ætti heima sinn á hverjum stað, þá er ólíklegt að drepsótt yrði hlutfallslega jafn mörgum að bana. Ef þeir, sem létu líf- tryggja sig væru 10 milljónir, þá er líklegt að félagið stórgræði. Þetta eru aðeins einföld dæmi, sem allir geta skilið. Málið verður flóknara þegar taka þarf fjölda annara atriða til greina. Allar framtíðaráætlanir verða að byggj- ast á líkindareikningi, þar sem at- huguð eru öll þau atriði, sem til greina geta komið og dæmt um hvað mælir með og móti hverju. Á þessu eru reistar fjárhagsáætl- anir ríkjanna og allar fimm og sjö ára áætlanir. En eftir því sem áætlanir ná lengra fram í tímann, eftir því eru líkurnar minni á að þær standist, því að þar koma til greina svo mörg óþekkt atriði, sem skjóta upp kollinum jafnhliða framþróuninni. Það er líkt og í eðlisfræðinni. Þar geta menn ekki sagt fyrir með vissu um hvernig rafeind muni haga sér, heldur hvernig líklegt er að hún muni

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.