Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 403 Darwinskenningin komin á fallanda fót — HVERNIG stendur á því að gíraffinn hefir svo langan háls? Líffræðingar hafa ekki verið í neinum vandræðum með svar við þeirri spurningu fram að þessu. Þeir hafa stuðst við hina aldar- gömlu kenningu Darwins um „náttúruvalið". Það er kenningin um að hinir hæfustu sigri í lífs- baráttunni. Sé einhver frábrugð- inn kyni sínu, og sú breyting ger- ir hann hæfari í lífsbaráttunni heldur en feður hans, þá er það hann sem gengur með sigur af hólmi, og afkvæmi hans, sem erfa hinn nýa eiginleika. Þannig er það um gíraffann, sögðu vísindamennirnir. Einhvern tíma fæddist vanskapningur, sem hafði lengri háls en aðrir. Og það kom fljótt í ljós, að gíraffinn með langa hálsinn, var betur hæfur haga sér. í daglega lífinu þurfa menn alltaf á því að halda að geta vegið og metið öll atriði áður en þeir taka ákvörðun. En þetta vita menn ekki. Þeim hefir ekki verið kennd rökfræði talnanna. Reikn- ingsaðferðirnar, sem menn hafa lært, segja aðeins að þetta sé rétt og hitt rangt. En líkindareikning- urinn segir: „Hér koma mörg önn- ur atriði til greina, ekkert þeirra er áreiðanlega rétt, og ekkert er heldur áreiðanlega rangt“. Lík- urnar eru margar á báða bóga. Sumar virðast alveg réttar, aðrar sennilega réttar, þriðju líklega réttar, fjórðu ólíklegar, fimmtu að bjarga sér en aðrir. Þegar gras- ið á jörðinni skrælnaði í þurrki, svo að þar var varla neina lífs- björg að fá, þá gat þessi gíraffi teygt sig upp 1 trjákrónur og bit- ið laufið. Vegna þessa varð sú breyting á gíraffanum að háls- inn lengdist meir og meir.--------- Seinustu tvö árin hefir verið gerð hríð að kenningum Darwins, einkum í Frakklandi. Þar hafa nafnkunnir vísindamenn gengið fram fyrir skjöldu og birt grein- ar í kunnum tímaritum, svo sem „Revue de Deux Mondes“, „Sci- ence et Vie“ og „Nouvelles Litt- eraires". Þeir halda því fram, að kenningar Darwins sé orðnar úr- eltar, síðan erfðafræðin kom og menn uppgötvuðu erfðastofnana. Röksemdir þeirra eru margskon- ar, en þetta hafa þeir um gíraff- mjög ólíklegar o. s. frv. Þær má svo flokka eftir þessu 0—1. Líkur, sem fá töluna 1, eru réttar, en líkur sem fá töluna 0 eru rangar. Og svo eru allar hinar þar á milli. Ef líkur eru 0,5 þá ber til beggja vona um þær. Líkur, sem merktar eru 0,1 eða 1/10 eru aftur á móti svo, að í 9 tilfellum af hverjum 10 eru þær rangar. Út af þessu segir dr. Warren Weaver, fyrverandi háskólakenn- ari í stærðfræði, að nauðsynlegt sé að skólar kenni líkindareikning. Rökhugsun hans þurfi að verða almenningseign, einn þáttur í dag- legri hugsun manna. ann að segja: — Ef gíraffinn hefir öðlast hinn átta feta langa háls sinn, vegna þess að fyrir það hafi hann orð- ið hæfari í lífsbaráttunni, hvað á þá að segja um sauðkindina, sem ekki hefir nema nokkurra þuml- unga langan háls? Eru ekki gír- affinn og sauðkindin af sama bergi brotin, þar sem þau piga sér hinn sama forföður, er uppi var á Eocene-öld? Og hvað er svo um írska elg- inn, sem var forfeðrum sínum hæfari í lífsbaráttunni vegna þess hvað hann hafði ógurlega stór horn? En þessi horn urðu að lok- um svo stór og þung að hann gat ekki valdið þeim, og varð svo aldauða. Eða þá mammútinn, sem varð undir í lífsbaráttunni, vegna þess að tennurnar á honum urðu hring -bognar og honum gagnslausar til varnar? Andstæð>ingar Darwins hafa nú meira til síns máls heldur en áð- ur fyrr. Uppgötvun erfðastofnanna og hvernig þeir geta breytzt, hefir bezt sýnt veilurnar í kenningum Darwins. Hún hefir líka sýnt, að hægt er með vísindalegum aðferð- um að breyta erfðastofnunum þannig, að nýir eiginleikar komi í ljós og verði ráðandi. Þetta hafa menn gert. Þeir hafa t.d. breytt eiginleika sáðkorns svo, að það gefur margfalda uppskeru. Kyn- bætur á skepnum hafa líka farið fram. Og er þá ekki hægt að bæta mannkynið á svipaðan hátt, gera manninn betri og meiri? Um það þykjast frönsku vísindamennirnir vissir, og að menn uppgötvi jafn- vel á þessu ári hvernig hægt muni að gera þá breytingu. j )

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.