Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Síða 16
404 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS BRIDGE A K G ¥75 ♦ D 8 7 4 * 10 9 7 5 3 473 ¥84 4 A G 10 9 5 4 Á G 6 4 4 D 10 9 8 5 ¥ K G 4 K 6 2 4 D 8 2 4 A 6 4 2 ¥ A D 10 9 6 3 2 4 3 4 K N V A S S sagði 6 hjörtu. Er það að vísu djarflega sagt, en þó freistandi. V sló út trompi. S tók slaginn og sló út lágspaða. Þann slag fekk V og slp aftur út trompi. S sá að nú varð annað hvort að hrökkva eða stökkva. Hann spilaði því öllum trompunum og fleygði í þau úr borði einu laufi og fjórum tiglum. Nú voru aðeins 5 spil eftir á hendi og A helt þremur laufum og tveimur spöðum. S tók nú slag á LK og sló svo út tigli und- ir ásinn. Þá lenti A í vandræðum. Ef hann fleygði spaða, þá átti S spaða- slagina. Ef hann fleygði laufi, þá átti S tvo slagi á lauf og hinn þriðja á S A. Þetta þykir góð spilamennska hjá S. í Bessastaðakirkju fyrir 400 árum Árið 1552 voru geymdar tvær kist- ur í Bessastaðakirkju og var í þeim lítil krambúð. í annari kistunni, sem var úr eik, var geymt: strigi, klæði, sólaðir skór, pyngjur, hnífar, hatta- bönd, belti, mundlaugar, drengjahúfur og kvenhúfur. í hinni var geymt: léreft, vestersléreft, stór strigi, varn- ingsklæði, brúnt klæði og stórgerður sængurdúkur. — Árið eftir, 1553, voru þessir hlutir geymdir í sömu kirkju, og sést ekki að um þá hafi verið búið í neinum hirzlum ,heldur munu þeir blátt áfram hafa verið á floti um og það er hægt að njóta hans, þrátt fyrir hávaða umferðarinnar á götunni. (Ljósm. Ólafur K. Magnússon). kirkjuna: katlar stórir og smáir, rist- ir, tréföt, steikarteinar, sláturaxir, sinnepskvörn, bandajám, föt, trédisk- ar, pundari úr járni, annar úr tré, tvær litlar ölskálar, eitt deigtrog, skinnklippingar, húðir, línur, færi, klukkur, hrífur, bjálkar, kjöt, ilskór, jámrekur og stórar og smáar árar. (Safn V.) Við tjöraina 1882 1 kortérinu gekk eg suður með tjörninni austanverðri. Þar hefi ég séð ljótastar jarðabætur. Sléttanin hefir verið svo líðilega af hendi leyst, að sléttan er ósléttari en þýfi. Það er annars ósköp að sjá, hvernig er umhorfs þar suður frá. Þar eru stór- ir mykjuhaugar og öskuhaugar ónot- aðir, því eigendum túnanna hefir ekki dottið í hug að láta breiða þá út um túnin. Þeir grasgróa líklega með tim- anum. — (Ólafur Davíðsson). Ögmundarhraun Áður en það var rutt, varð að fara vestur fyrir hálsa fyrir endann á hraunsuppkomunni, þegar fara þurfti til Njarðvíkur eða Keflavíkur. Bónd- inn í Njarðvík, að nafni Gissur, átti dóttur. Hennar bað lausingi nokkur. er Ögmundur hét, tröllmenni að stærð og kröftum. Bóndi vildi ei gifta dótt- ur sína fúlmenni þessu, en treystist ei að standa á móti honum; tekur hann því það ráð að lofa honum stúlku þessari, ef hann vildi vinna það til hennar að gera færan veg yfir hraunið, þar sem beinn yrði veg- ur til Suðurnesja. Þetta verk tókst hann á hendur og framkvæmdi það duglega, en lagðist til svefns að loknu verkinu, austan til við hraunbrúnina, en bóndi lá í leyni í hraungjótu, ætl- aði hinum stundir að sofna vært og drap hann sofandi. Þar er dys hans, sem drepinn var og hraunið síðan við hann kennt og kallað Ögmundar- hraun. (Úr sóknarlýsingu 1840). Vísur eftir Gísla Sigurðsson frá Klungur- brekku, orktar 1814: Ýmsir kúga, aðrir ljúga og stela, nokkrir herja heims um frón, hinir berjast eins og ljón. Hætta aldrei illsku baldnir dárar fólk að kvelja um frón og sjá, fyr en heljan drepur þá. i i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.