Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1961, Page 1
32. tbl.
inð
Sunnudagur 5. nóvember 1961
bób
XXXVI. árg.
Vængurinn makalausi
Vængurinn reyndur á fjórhjóla vagni.
FYRIR rúmum 450 árum sagði
hugvitsmaðurinn Leonardo da
Vinci: „Það þarf vængi til að
fljúga. Ef eg get ekki fundið þá
upp, þá verður einhver annar til
þess“. Og nú er fundinn upp nýr
vængur, sem ætla má að valdi
gjörbyltingu í öllum loftferðum.
Það var fyrir 13 árum að menn
tóku eftir því, að börnin á Virg-
iniaströnd voru komin með alveg
nýa tegund af flugdreka. Líktist
hann mest léðurblökuvængjum og
var kallaður „Rogallo-vængur“,
kenndur við manninn, sem hafði
fundið hann upp, én hann heitir
Francis M. Rogallo. En nú er sú
breyting á orðin, að þetta er ekki
lengur barnaleikfang, heldur hin
merkilegasta uppgötvun í flug-
tækni.
í vor sem leið var reynt merki-
legt flugtæki vestur í Kaliforníu.
Það líktist fjórhjóluðum pallvagni.
Fremst á pallinum sat flugmaður-
inn Lou Everett við stýri, en aft-
ast á pallinum var 100 hestafla
hreyfill til þess að knýa vagninn
áfram. En yfir vagninum var þrí-
hyrndur vængur, er mest líktist
tveimur útþöndum seglum sam-
föstum, en þó þannig að hægt var
að leggja þau saman. Það voru
þrjár stengur, sem mættust í oddi
og dúkur á milli þeirra. Þegar
stengurnar voru þandar sundur,
myndaðist á milli þeirra íhvolft
rúm. Þetta líkist mest bréfpílum
þeim, sem menn brjóta sér til
gamans og skjóta.
Þegar vagninn fór á stað, þandi
loftþrýstingurinn dúkinn út eins
og segl í vindi. Og burðaraflið
varð svo mikið, að vagninn tókst
á loft, flaug fram og aftur með
52 „hnúta“ hraða og lenti síðan
létt og auðveldlega.
Þetta var fyrsta tilraunin að
fljúga á þessum væng. Síðan hefir
kappsamlega verið unnið að end-
urbótum á honum.
— ★ —
Rogallo hafði verið flugvéla-
verkíræðingur í stríðinu. En