Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1961, Side 14
514
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
Vitverur ú ótul stjörnum
En líkjast þær mönnum?
William Howell heitir prófessor í mannfræði við Harvard há-
skólann í Bandaríkjunum. Howell hefir ritað bók sem nefnist
„Mankind in the Making“. Hér er stuttur útdráttur úr einum
kafla þeirrar bókar.
manns og konu. Og hér kom einn-
ig annaö nýtt. Stráka- og dýra-
myndirnar voru alls ekki tíma-
bundnar, en saga Gyldenspjæts er
tekin úr amerísku hversdagslífi
— hinn nýríki maður, sem getur
ekki lagt niður fyrri venjur sín-
ar, þrátt fyrir siðaprédikanir kon-
unnar. Margar svipaðar sögur hafa
farið hér á eftir, en öllum er það
sameiginlegt að þar er hvergi
minnst á trúmál, pólitík né félags-
leg vandamál.
Um 1920 varð sú breyting á að
fréttastofur lögðu undir sig
myndasögurnar. Þær láta nú
semja þær og teikna og selja svo
blöðunum, og með þessu móti ber-
ast myndasögurnar til blaða um
allan heim. Og eftir þetta eru
þær ekki lengur bundnar við
sunnudagsblöð, heldur koma þær
nú sem framhaldssögur í dagblöð-
unum.
Árið 1929 byrjaði Harold Foster
á því að gera myndasögur úr
skáldsögum Edgard Bourroughs
um Tarzan. Þar var farið inn á
nýa braut. Áður höfðu allar
myndasögur átt það sameiginlegt
að vera léttmeti, draga fram kát-
leg atvik, svo að menn gæti bros-
að. Nú er farið að segja kunnar
sögur í myndum. Þetta magnað-
ist og varð til hins verra. í stað-
inn fyrir hinar gömlu gamansögur
eru nú komnar myndasögur um
leynilögregluþjóna, glæpamenn,
flugvélar, kjarnorkusprengjur,
njósnara, lauslætisfólk og þess
háttar — allt þetta sama sem er í
lélegustu kvikmyndum.
•___
Frakki og ítali voru að þrátta um
hvor þjóðin hefði átt meira skáld.
— Dante er mestur allra rithöf-
unda, sagði ítalinn, hann fór til vítis.
— Þá er Baudelaire þúsund sinnum
meiri, því að hann kom frá víti, sagði
Frakkinn.
MAÐURINN var ekki til þegar
hnettirnir sköpuðust. Hann kom
ekki til sögunnar fyr en löngu
seinna. En að lokum kom hann
þó, og er hin fullkomnasta skepna
jarðarinnar, að vorum dómi. Var
þetta tilviljun? Þeirri spurningu
er ekki svarað enn.
En þegar minnst er á tilviljun,
þá efast ég um að maðurinn hafi
verið neyddur til að taka á sig
þá mynd, er hann hefir.
Enginn minnsti vafi er á því,
að „menn“ eru til á öðrum hnött
um. Vitverur eiga bústaði víðs-
vegar í himingeimnum, og marg-
ar þeirra lengra komnar en vér.
En eru þær líkar oss? Um það
getum vér ekki farið eftir mynd-
um af fljúgandi diskum, mönnuð-
um hálfgildingsdvergum á spóa-
löppum og með horn upp úr
hausnum. Vér verðum að fara
vísindalega að því að ráða þá
gátu.
Vér byrjum á því að gera ráð
fyrir vitverum, en það er sama
sem að þær sé „mannlegar", það
er að segja að hjá þeim sé kom-
in á menning eins og hjá oss. En
til þess þurfa þær að geta gert
sig skiljanlegar og starfa í sam-
einingu, því að öðrum kosti væri
ekki um neina menningu að ræða.
Og það væri alveg vonlaust fyrir
oss að komast í vitsamband við
þær, ef þær hefðu ekki vitsam-
band sín á milli.
Vér verðum líka að gera ráð
fyrir því, að lífsskilyrði í heim
kynnum þeirra sé ekki verri en
á jörðinni, að þar sé svipað lofts-
lag, hiti og aðdráttarafl, vegna
þess að það virðist hæfa lífinu
bezt.
En eru þessar verur líkar oss?
Eg held að svo sé.
Þó gæti sumt verið með öðrum
hætti hjá þeim. Það getur vel
verið að þeir „sjái“ sumt sem vér
„finnurn", svo sem hitastrauma,
eða „finni“ það sem vér „heyr-
um“ o.s.frv. Beinagrind þeirra,
eða hvað sem það nú er sem
heldur þeim uppi, kann að vera
öðru vísi en okkar, vegna þess
að vöðva- og æðakerfi sé eitt-
hvað frábrugðið. En allt þetta
hljóta þeir að hafa, því að skyn-
semi gæddar verur verða að geta
hreyft sig.
En hvernig eru þeir þá í vexti9
Eru þeir sívalir eða flatir?
Auðvitað hafa þeir höfuð, eins
og allar skepnur hér á jörð, og
þar er auðvitað heilinn og munn
urinn, eins og á öðrum skepnum.
En ekki munu þeir líkjast skor-
dýrum, því að skordýrin hafa
enga hugsun, heldur aðeins eðlis-
hvöt. Skyni gæddar verur hljóta
að hafa taugakerfi og heila. Og
heilinn hlýtur að vera nokkuð
stór.
Hjá meginhluta allra lifandi
vera eru tvö kyn. Það er ein af
meginreglum náttúrunnar. Sjálf-
sagt eru tvö kyn hjá þeim líka.
f
♦