Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1961, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1961, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 525 Frá Háskóla- hátíðinni: Rektor tekur á móti for- seta fslands. og einnig í bílum inn að Öskju. Jarð- fraeðingar og jarðeðlisfræðingar skifta með sér verkum við rannsókn goss- ins (28.) Steinn úr Öskju fór í gegnum rúðu á bandarískri flugvél, sem flaug þar yfir og mölbraut rúðuna. Slys urðu ekki á mönnum (28.) Öskjugosið er í rénun, en nýir gíg- ar hafa þó myndazt. Jarðfræðingar tóku myndir niður í eldspúandi gig- ana (29.) Farið er nú að draga úr Öskjugos- inu þótt það haldi enn áfram af mikl- um krafti (31.) VEÐRIÐ Fyrsta vetrarhretið á þessu hausti kom 17. okt. Snjóaði þá allt frá Isa- fjarðardjúpi og austur um, allt suður á miðja Austfirði. Veðrinu fylgdi mikill snjór og áttu bátar sums stað- ar í erfiðleikum um að komast inn. Það gekk þó fljótt niður. Um þetta leyti féll fyrsti snjórinn á Suðurlandi, en þó ekki í byggð. • Um 20. okt. lá einhver svartasta þoka, sem hér hefir komið yfir Reykjavík, Sást bærinn t. d. alls ekki af Ártúnsbrekkunni. Fjallvegir byrjuðu að teppast vegna snjóa síðast í mánuðinum þó aðallega á Vestfjörðum. MENN OG MÁLEFNI Vigdís Jónsdóttir, sem verið hefir skólastjóri Kvennaskólans að Varma- landi, ráðin skólastjóri Húsmæðra- kennaraskóla íslands (1.) Norskur stúdentaprestur, séra Leif M. Michelssen, prédikar hér á landi (3.) Forvígismenn norrænna háskóla- stúdenta á ráðstefnu í Reykjavík (4.) Páll Teodórsson eðlisfræðingur og Örn Garðarsson eðlisverkfræðingur vinna að því að smíða öflugt gull- leitartæki (4.) Dr. Sigurður Þórarinsson gerður heiðursfélagi norska landfræðifélags- ins (5.) Friðrik Ólafsson skákmeistari varð í 14. sæti á alþjóðlegu skákmóti í Bled í Júgóslavíu (5.) tslenzka bridgesveitin varð f 7. sæti á Evrópumeistaramótinú í bridga (6.) Indriði G. Þorsteinsson hlaut verð- laun úr minningarsjóði Björns Jóns- sonar, Móðurmálssjóðnum (10.) Sigfús Guðmundsson skipaður yfir- maður Parísarskrifstofu ameríska flugfélagsins TWA (10.) Dr. Þórður Eyólfsson hæstaréttar- dómari sækir alþjóðaráðstefnu um höfundaréttarmál (10.) Bandaríski fiðluleikarinn Michael Rabin lék einleik með Sinfóníuhljóm- sveitinni. För hans til íslands seink- aði svo að hann kom hingað nokkru eftir að tónleikarnir hófust (13.) Stefán Hilmarsson, ræðismaður 1 Washington, ráðinn bankastjóri Bún- aðarbanka íslands (13.) Dr. Oddur Guðjónsson settur ráðu- neytisstjóri í viðskiftamálaráðuneyt- inu (15.) Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð- herra flutti erindi um ísland í tveim- ur þýzkum borgum (17.) Ingunn Gísladóttir hjúkrunarkona á förum til trúboðsstöðvarinnar í Konso (17.) íslenzk listakona, Helga Weiss- happel, heldur sýningu á verkum sínum í Vínarborg (20.) Fulbright-stofnunin bandaríska veit- ir Islendingum náms- og ferðastyrki til Bandaríkjanna (21.) Pétur J. Thorsteinsson afhendir forseta Júgóslavíu trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands í Júgóslavíu (21.) Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup kjörinn fyrsti heiðursborgari Reykja- víkur á áttræðisafmæli hans (22.) Ungverski rithöfundurinn Tibor Meray heldur fyrirlestur í Reykjavík (24.) Friðrik Ólafsson skákmeistari kom- inn heim eftir þátttöku í tveimur stór- mótum erlendis (25.) Bandarískir þingmenn heimsækja Alþingi (25.) Ottó Valdimarsson rafmagnsverk- fræðingur hlaut verðlaun í sam- keppni, sem sænska útvarpið efndi til um tæknifyrirlestra (25.) Árni Vilhjálmsson cand. oecon. skip- aður prófessor í viðskiftafræðum við Háskóla íslands (28.) SKÓLAR A fimmta þúsund böm hófu skóla-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.