Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1961, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1961, Síða 14
630 LESBÓK MORGUNELAÐSINS Greftrunarsiðir í Indlardi ÞEGAR eg stóð á þrepunum hjá Dasashwamedh á Gangesbökkum, blasti við mér sú furðulegasta sjón, sem eg hefi séð á ævi minni. Margar mílur til beggja handa eru breið og mikil þrep niður að ánni og skiftast í sérstaka hluta, sem nefnast „ghats“. Þrepin eru orðin slitin af fótum þeirra mil- jóna trúaðra manna, sem farið hafa niður að ánni til að baða sig. Yfir þetta gnæfa óteljandi must- eristurnar og konungahallir. Að baki eru öngstræti milli þessara „ghats“, ranghalar þar sem ekki er rúm fyrir neina vagna, og beggja megin við þau eru hrörleg hús, sem helzt minna á Kanton. Eg gekk niður þrepin í gegnum þröng af undarlegu fólki, sjúku og æstu af trúartryllingi í leit að guðum sínum. Eg komst niður að ánni og náði í bát og lét berast með honum niður ána. Og eg var að hugsa um það hvort holdsveiki væri smitandi, og hvort eg mundi hafa smitazt af eineygðum betl- ara, sem var með sár um allan líkamann og stjakaði við mér með fingralausri hendi í mannþröng- inni. Hver „ghat“ og hvert musteri hefir sinn svip. Musterin eru helg- uð ýmsum goðum og baðstaðirnir eru mismunandi heilagir í augum Hindúa. Þar er fyrst Assi-ghat, sem á að vera á ármótum, sem engir sjá nema Hindúar, og svo koma mörg önnur „ghats“ og enda á Prahlad-ghat. Fimm af þessum baðstöðum eru sérstaklega heilagir og miljónir manna verða að ganga á milli þeirra allra á einum degi. Það er Assi, Dasashwamedh, Barna-sang- am, Panchganga og Manikarnika. Sumir staðirnir eru helgaðir öp- um, aðrir „ganesh“, en það eru einhver rauð furðudýr með þrjú augu, silfurhjálm, fílsrana, og ríð- ur á rottu. Sitla-ghat er helguð bólusóttinni, en Dasshwamedh þýðir „tíu hesta fórn“. Ógurlegur mannfjöldi er á öll- um þrepum og streymir niður að hinu grugguga — en helga — vatni. Það er einkennilegt, að í Indlandi virðist mest helgi lögð á það sem óþrifalegast er. örbirgð og þrifnaður fara ekki saman. Og vatnið í Ganges er blátt áfram ógeðslegt. Út í ána liggja öll skolpræsi borgarinnar, og í hana er fleygt líkum þeirra, sem eru svo fátækir, að þeir fást ekki brenndir. Eins er fleygt í hana líkum allra sem deya úr bólu eða holdsveiki. Samkvæmt trú Hindúa er vatn- ið í Ganges svo heilagt, að það hreinsar allt á augabragði. Frá þeirra sjónarmiði er því ekkert athugavert við að drekka vatnið og baða sig inni á milli fljótandi líka — en ókunnugum blöskrar. Eg lét bátinn staðnæmast skammt frá Aurangzeb-musterinu. Þar eru háar turnspírur og þar leggur reykjarstróka upp í loftið. Eg klöngraðist yfir nokkra báta og komst í land. Þar á árbakkan- um lágu nokkur lík, sveipuð grisjulérefti og náðu fæturnir niður í ána. Rétt ofan við mig var verið að brenna nokkur lík. Eg hafði séð brennustað áður, en mér var sagt, að hér hjá Jal- sain-ghat væri staður þar sem miljónir manna óskuðu þess inni- lega að vera brenndar. Þess vegna langaði mig til að skoða hann. Eg hefi séð mörg lík, vafin í grisju, liggja fyrir dyrum úti í Indlandi. Það er siður þar, að um leið og einhver deyr, er líkið þeg- ar í stað borið út úr húsinu. Ef það er kona, er grisjan rauð, en ef það er karlmaður, þá er grisj- an hvít. Lík barna eru aldrei hjúpuð, ekki heldur þeirra sem

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.