Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1962, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1962, Blaðsíða 7
MÉR ER ALVEG SAMA Ittttmar Ab safna bókum L itli hnokkinn skvampar i pollinum, hreytir ónotum í leikfélagia eða blótsyrðum, kem ur svo heim blautur og rifinn og segix: Mér er alveg sama. Hnátan smáa teygir togleðrið eitt, skælir sig í framan, þeytir Ihurðum og kallar til móður einnar: Mér er alveg sama. Syfjulegir nemendur koma í skólana, ólesnir og áhugalitlir. Kennarinn áminnir bá um betri lestur og meiri dugnað. Kæra- leysislega svara beir: Æ, hvað gerir það til. Mér er alveg sama. Háværir hópar á „Rúnt- inum“, frjálslegir en frakkir þyrpast þeir inn á veitingahús- in og upp f.rá Ooea Cola flösk- unni líta þeir og segja um leið og reykurinn frá vindlingnum hnitar hringi út í loftið: Hvað, þetta er allt í lagi. Mér er svo sem alveg sama. Brotin rúða, hnupl, flótti, frammi fyrir !ög- reglunni standa þeir að lokum hinir ungu menn og segja: Gerði þetta nokkuð til? Okkur er svo sem alveg sama. Og hin- ir fullorðnu lesa síðustu frétt- iirnar um framkomu og afbrot æ-skufólksins, halla sér síðan þægilegia aftur í stólnum eða flýta sér á fund eða skemmtun kvöldsins og segja: O, jæja, slæmt er það að vísu, en ekki var þetta mitt bam. Skammsýni, ónof, nöldur, seg- lr þú, lesandd góður. Gott, ef svo væri. En því skal þetta rætt Ihéi á þessari síou, að fjölmargir i hópi æskufólks hugsa alvar- Jega um þessi mál. Hvar erum við stödd og 'hvert skal stefna? Hver heilbrigður unglingur þráir I huga sínum að eignast óihugamál, hugsjón og fóma sér fyrir hana. Aldamótakynslóðin étti Ihiuigisjón, sterka og volduga, og aHiur æskuiþróttur hennar fór í það að afla íslandi frelsis og vinna hverju framfaramáli þjóðarinruar gagin. En í dag, þeg er þjóðin býr við betri 'kjör en Jiokkiru sinnd fyrr og meira virð ist giert til að þroska hitm þrótt- miklu æsku en áður, þá hljótum við að spyrja: Stendur ungum íslendiingum á sama um þetta ftllt? Víða í löndum er betta á- hyggjuefni. Það virðist, sem ungt fólk sé orðið því áhuga- lausara um almenn málefni þvi meiri fræðsla og betri afkoma og aðstæður, sem bjóoast. f Þýzkalahdi vex hinni svoköll- uðu „Ohne mich“ hreyfingu æ meira fylgi og í hinum ensku- mælandi heimi kalla menn hið sama fyrirbæri „I couldn’t care less“. Hvað veldur þessu? Ýms- ir æskulýðsleiðtogar og uppal- endur haf a svarað þessu á þann 'hátt. að greinilegt sé að þjóð- félögin séu haldin ýmsum fé- lagslegum sjúkdómum, er heim ili, skóli og kirkja hafj ekki getað uinnið gegn. Hraði og spenna nútímans slævir dóm- greind og íhygli. Ungt fóik er um of móttakendur alls konar efnis. Það horfir, hlustar og nemur allt á kostnað eigin hugs unar og framkvæmdasemi. En haettulegast af öllu er tillits- leysið og skortur á samúð og samáibyrgð. Willdam Temple eagði um samúðarleysið: „í því er fólginn hinn andlegi dauði“ Andlegur styrkur æsk- unnar, siðferðisþróttur hennar og afstaða tid samitímans er ek'ki eingöngu framtíðarbjörg hverr- ar þjóðar heldur raunverulegt tókn um gott eða illit ástand þeirra á hverjum tíma. Einræð- islherrar samtímans hafa vitað þetta miklu betur en forustu- menn hins frjálsa heims. Eftir orrustuna við Stalingrad hróp- aði Hitler neyðarröddu til hinn ar þýzku æsku og sagði, að þróttur hennar og aðstoð væri sín eina von. Og þessir sömu menn segja að lokium: Meiri fræðsla, aukin atvinna, betxi af koma, meira frjálsræði og aukn ar tómstundir koma að litlum notum, ef markmið, stefna og hugisjón fasta ekki rætur hjá hinum ungu. Hvað skal þá gera? Fyrst og fremst verður að verða miikil breyting á afstöðu hinna full- orðnu, sem margt vilja sjálf- sagt fyrir æekuna gera, en liitið með henni. Skólamir eru áhrifa mestu uppeldisstofnanir nútím- ans, því að heimilin hafa greini lega um margt misst þau tök og áhrif. sem þau áður höfðu. I skó’lunum verður að tengja ga.gnsemi fræðsiunnar- og til- gang hennar. Mannrækt er emgu síður hlutverk þeirra en menntun. Æskulýðssamtök- in eru annar mjög áhrifamikill þáttur í uppeldinu, því að þar skapast og félagsskapurinn. Kraftur, á’hugi og framtak æsk- unnar leysist úr læðingi innan. þessana vébanda, en því nauð- synlegra er, að áhrif þeirra séu jákvæð og heiibrigð. Unga fólk, það er nauðsyn fyrir ykkur að losna við það 'hugarfar, sem túl'kað er með orðunum: Mér er alveg sama. Hvað kemur mér þetta við? Ykkur getur ekki stáðið á sama um ykkar eigin framtíð og ham ingju. Ykkur getur ekki staðdð á sama um frelsi og fansæld þjóðar ykltar. Ykkur má ekki standa á sama um samferða- memnina því að þeirra heill er í dag samofin ykkar eigin brautargengi. Allt þetta á að vera umhugsunarefni yk'kar og viðfangsefni og með slíka hug- sjón og markmið fyrir augum fær skólagangan, starfið og á- hugaefnin nýtt gildi, því að nú skiljið þið, að það allt er fyrst og frernst til þess ætlað að gera ykkur færari til átaka og þjón- ustu við laiusn á vandamáium, sem bíða hvarvetna, og munu kalla á alla krafta ykkar. hug- kvæmni og gáfur. SuMIR halda, að mikil fjárráð þurfi til að safna bók- um. Því er raunar ekiki að neita, að bækiur eru dýrar. En samit er langit frá þvi, að bókasafnar- ar séu yfirleitt auðugri en geng- ur og gerist. Það er áhuginn, útsjónarsemin og þolinmæðin, sem gildir á þeim sviðum eins og öðrum. Bókasöfnun er liklega aígeng asta tegund söfnunar. Flestir, sem áhuga hafa á bóklestri, vilja líka eignast bækur. Sumir vinna markvissit að söfnun ein- stakra flokka, svo sem skáld- sagna, ljóðabóka eða ferða'bóka. Aðrir safna öllu, sem hugurinn girnist. Og enn aðrir viða að sér bókum til híbýlaprýði. Þannig 'hefur því eflaust verið háttað um konuna, sem kom inn í bóka búð, lagði fram svo sem álnar langan snærisspotta og sagðist vilja fá jafnlanga röð af bók- um, alit m'eð gylltum kili, því að hún væri búin að koma sér upp bókaihiilu. Sá, sem langar til að safna bókum, ætti ekki að reisa sér hurðarás um öxl með miklum útgjöldum í því skynd. Hitt er vænlegra að varðveita vel það sem maður kann að eignast. Flestum berst taisvert af bók- um að gjöf við ýmis tækifæri, svo sem við fermimgar og af- mæli. Ef þeim er öllum haldið sarman, getur það með tímanum orðið drjúgur stofn að bóka- safni. Á síðasta áratug voru nokkur úrvalsverk Lslenzkra bók- mennta gefin út sérstaklega handa ungu fólki. Þannig gaf Helgafell út nokkrar bækur í vasaútgáfuformi, og var verði svo stillt í ihóf, að hver bók kost aði ekki nema sem svaraði and- virði eins bíómiða. Er ekki að efa, að því væri tekið með þökkum, ef framhald yrði á slíkri útgáfu og fleiri forlög legðu á sömu braut. Þá gæti hver og einn gert það upp við sjálfan sig, hvort hann vildi heldur eyða kvöldistund á „has- armynd“ eða eignast Ijóð Dayiðs eða Gerplu Kiljans. Á seinni árum hefur sótt í það horf, að fleotar bækur koma út fyrir jólin, og eru þær miðaðar við jólasölu og seldar dýru verði. Á öðrum árstímum koma forlögin á fót útsölum, og er sá markaður miklu fremur við hæfi bókamanna. Þar er oft hægt að gera góð kaup, ekki sízt fyrir þá sök, að gjaldimið- illinn hefur hríðfallið síðustu árin, en verð eldri bóka hefur yfirleitt ekki hsekkað að krónu- •tölu. Bækur, sem út komu fyrir stríð, eru t. d. orðnar mjög ó- dýrar nú. Og margar verðmæt- ar bækur frá fyrri árum eru enn á markaði, enda er ekki ó- algengí, að góðar hækur séu lengi að seljast upp. Verðandi bókasafnarar, sem eiga barna og unglingaibækur í fórum sínum, ættu ékki að láita þær fara í súginn, þó að þeir telji sig ekki munu hafa not of þeim framar. Síðar á ævinni öðlast þær aftur sitt gi'ldi — minningagildið. Þá geta þær minnt á „þá góðu, gömlu daga-“ Erlendur Jónsson. MÁLM- OG RAFMAGNSIÐJA MÁL.M- og rafmangsiSja er mjög vinsæl tómstundaiðja. Á vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur er unnið á tveim stöSum í þessari grein í viðgerðastofu Ríkis- útvarpsins og í tómslunda- heimilinu að Lindargötu 50. Leiðbeinendur eru Jón Alex andersson og Björgvin Ein arsson. Þátttaka er jafnan mikil og þetta ágætt tæki- færi til þess að kynnast und irstöSguatriðum þessarar ið'ngreinar. Bragi FriSriksson. Radíó-iðja er vinsæl grein meðal unglinga. Hryggðarmynd sem stundum sést á götum Reykjavíkur: unglingur sem XátiS hefur kæruleysið leiða sig á glapstigu. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.