Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1962, Side 13
■
h(hb
Hnljll
11111
mmm
mm.
&mpím
Wá
■;;:i:iHhi!:!a:i^
■riaHní'?; ’:i-'.TÍ
Ivar Aalto er 64 ára gamall og
J. X einn af þekktustu arkitektum
heims. Hann stundaði nám við Tekniska
háskólann í Helsmgfors. Árið 1923 hóf
Ihann starfsferil sinn sem sjálfstæður
arkitekt. Síðan hefur kveðið mikið að
Ihonum bæði í Finnlandi, öðrum löndum
Evrópu og Bandaríkjunum. Verkefni
hans hafa verið 4 öllum sviðum bygg-
ingarlistarinnax og að hverju þeirra hef-
ur hann unnið af einlægni og þrótti hins
eanna listamanns. Hann hefux ávallt lit-
ið á skipulag, arkitektúr og listiðnað,
eem óaðlskiljanlegar listgreinar og með
sama öryggi hefur hann lagt gjörva hönd
á bær allar.
Árið 1933 stofnsetti hann fyrirtækið
„Artek“ í Helsingfons. Á bess vegum
gerði hann uppdrætti að ýmsum listmun-
um úr gleri, lömpum og húsgögnum. Af
þeim má sérstaklega nefna húsgögn úr
pressuðum viðarplötum og var það al-
giert brautryðjandastarf á bví sviði, og
viðurkennt sem slíbt enn þann dag í dag.
Skipulag 'borga hefur ætíð verið eitt
helzta áhugamál hans. Á síðastliðnu ári
gerði hann skipulagsuppdrætti að mið-
hluta Helsingforsborgar og haíta þegar
verið hafnar framkvæmdir samkvæmt
þeim.
Árið 1940 varð hann prófessor við
Massachusetts Institute of Technology í
Bandaríkjunum. Þar var starf hans mik-
. ils metið og þar gerði hann uppdrætti að
mörgum stórum byggingum fyrir há-
skólann, sem hafa vakið mikla og verð-
skuldaða atihygli. Næstu ár vann hann
jöfnum höndum í Bandaríkjunum og i
Finnlandi, en árið 1950 fluttist hann al-
farinn til Finnlands og þar hefur hann
aðallega starfað síðan.
Árið 1957 gerði hann uppdrætti að
stóru fjölskylduhúsi, sem vor byggt á
sýningarsvæðinu „Interbau“ í V-Berlín,
þar sem ýmsum færustu arkitektum
heims var faldn uppbygging Hansa-hverf-
isins.
Nýlega hefur hann látið í ljós bá skoð-
un, að vinna beri gegn fjöldaframieiðsiu
og hvimleiðum síendurtekningum i bygg
ingarlist nútímans — en bað verður verk
arkitektanna sjálfra.
Ráðhúsið í Sayniitsalo. Myndin sýnir tröppurnar, sem liggja frá torginu og
upp í ráðhúsgarðinn. Húsið umlykur garðinn á alla vegu, en gengið er upp í
hann um tröppur á tveim stöðum. Til vinstri eru skrifstofur, hægra megin sést
á bókasafnið, en ráðhússalurinn er fyrir miðri myndinni.
Gunnar Hansson.
Ráðhússalarinn í Sáynatsalo. Byggingarefnið er múrsteinn og fura. — Sérstaka
athygli vckur bygging þaksperranna og stíifegurð salarins.
Sögunarmylla í Varkaus. Hluti sögunarmyllunnar brann í síðasta stríði og var
Alvar Aalto falið að teikna nýbyggingarnar sem lokið var við að byggja árið
1946. Húsin eru byggð úr timbri og eldvarin. Gömlu og nýju byggingarnar falla
vel í eina heild frá hagkvæmu og fagurfræðilegu sjónarmiði.
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 13