Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1962, Qupperneq 2
%/ EÐUR hafa skipazt í lofti
* síðustu vikurnar í Alsír,
og er ekki laust við að talsverðr-
ar kaldhæðni gæti í rás viðburð-
anna. Undanfarnar vikur hafa
franskar flugvélar haldið strangan
vörð við strendur Norður-Afríku í
því skyni að hindra hugsanlegar
heimsóknir óæskilegra Frakka til
Alsír, og ekki alls fyrir löngu var
svissneskri farþegaflugvél hótað
skotárás af hreinum misskihaingi.
Misskilningurinn stafaði sennilega af
því, að frönsku flugmönnunum hefur
lílca verið falið að vernda þekkta Serki
sem eru á heimleið frá Frakklandi eft-
ir langa fangelsisvist þar, og var lögð
sérstök áherzla á það í friðarsamn-
ingunum, að tryggð yrði örugg heim-
koma hávaxins, hljóðláts manns sem
sat í fangelsi sjö ár sem hættulegur
uppreisnarforingi, en snýr nú heim til
ættlands síns og hinnar tvísýnu póli-
tísku framtíðar, sem þar bíður hans.
Mohamed Ben Bella, fyrrverandi
fangi í Chateau d’Aulnoy, er talinn
munu gegna mikilvægu hlutverki í við-
burðum næstu ára í Alsír. í augum
margra samlanda sinna er hann eins
konar holdtekja þeirra drauma, sem
voru undirrót hinar löngu og harðvít-
ugu frelsisbaráttu.
Hann er einn þeirra níu manna
sem stofnuðu Þjóðlegu frelsisfylking-
una (F.L.N.) og hófu frelsisstríðið með
nokkrum illa vopnuðum en einbeittum
hermönnum, stríð sem varð æ víðtæk-
ara og grimmilegra og virtist aldrei
mundu taka enda. Nú er það hlutverk
hans sem aðstoðarforsætisráðherra út-
lagastjómarinnar irndir forsæti Ben-
jússcf Benkhedda að vinna að því að
tryggja friðinn í landinu og koma á
félagslegum umbótum í riki sem er
flakandi í sárum og ofurselt ofbeldis-
aðgerðum frönsku OAS-fasistanna.
Hins yegar hefur Ben Bella aldrei
óskað þess að verða viðurkennd hetja
frelsisstríðsins. Enda þótt hann hafi
lifað ákaflega viðburðaríku og æsandi
lífi, hefur hann jafnan reynt að kom-
ast hjá opinberu umtali. Þegar honum
tókst að strjúka úr fangelsi árið 1952
Og komast undan til Kaíró, þar sem
hann bjó í útlegð, var hann svo hlé-
drægur, að fólk nefndi hann almennt
Aminedi, Hinn ósýnilega.
Þegar hann er nú orðinn miðdepill
atburðanna í Alsír, er ósennilegt að
honum sé það mjög að skapi. í Alsír
er enginn Castro. Þjóðernissinnarnir í
Alsír hófu baráttuna, börðust og
bundu enda á stríðið sem samhentur
flolckur og þeir hafa af ráðnum hug
hafnað hvers konar persónudýrkun.
Hið lýðræðislega kerfi samvirkrar
forustu hefur reynzt vel, þó það hafi
á stundum verið tafsamt og óhand-
hægt.
F.f Alsír á að komast klakklaust yfir
vonbrigði og hættur fyrstu áranna eft-
ir unnið sjálfstæði, hefur landið þörf
fyrir óeigingjarna leiðtoga með óflekk-
'ffjjffi ,l'i ' ‘ fi f •• • • '• < < •«.;.--/• ptm • i ' ynTfljtnmsmmm
WB
ÍWmW':
8
fi
mmm
ÍlfgS®#
mmm
- • •••'••;'••"•&'••••• •
■ ■ s
Í, l
I
1
í-7i
. .....
,
■
'iisf&HÍ'i'JibiHf!
iÍ/HfcifUt'Jf&Íi/rif.i
Þetta er Ben Bella. — Myndin t. v. var tekin af honum 18 ára en sú t.h. nýlega er honum var sleppt úr fangelsi.
að mannorð, einbeitni og raunsæjan
slcilning á hinum pólitísku og efnahags-
legu staðreyndum. Ben Bella hefur alla
þessa eiginleika til að bera og er svar-
inn fjandmaður hvers konar einræðis.
Vegna þess að Ben Bella er einn
hinna níu upphafsmanna frelsishreyf-
ingarinnar og eins vegna þess að hann
hefur setið svo lengi í fangelsi, er hann
mjög atkvæðamikill maður í heima-
landi sínu. Félagarnir fjórir, sem voru
með honum í fangelsinu, hafa greini-
lega viðurkennt hann sem eðlilegan
leiðtoga sinn.
Ben Bella er ekki menntamaður.
Menntun hans takmarkaðist við barna-
skólann. En hann er gæddur skörpu
pólitísku skynbragði og hann notaði
fangelsisárin til að lesa bæði vel og
mikið. Hann talar frönsku reiprenn-
andi og á auðvelt með að skýra flókn-
ar hugmyndir bæði skýrt og rökvís-
lega. Þegar litið er á hin erfiðu og
margbrotnu vandamál sem Serkir
standa augliti til auglitis við, er þeim
milcill fengur að því að eiga mann eins
og Ben Bella, sem ber af öðrum í um-
ræðum, heldur þeim jafnan við kjarna
málsins og leiðir þær til lykta með
festu og öryggi.
Ben Bella hefur litla eða enga
kímnigáfu. Hann brosir sjaldan, en er
venjulega alvarlegur á svipinn og stund
um ólundarfullur. Hann lifir algerlega
fyrir hugsjónina um sjálfstæði Alsír og
hefur að sjálfsögðu háar hugmyndir um
sitt eigið hlutverk.
Eins og flestir' Serkir er hann kom-
inn af fátæku bændafólki. Hann fædd-
ist árið 1916 í Marina, litlum bæ í hæð-
unum milli Tlemcen, þar sem upp-
reisnarmenn höfðu helztu bækistöð
sína, og landamæra Marokkó. Senni-
lega liggja rætur ættarinnar líka í
Marokkó.
Ben Bella dróst fyrst að þjóðernis-
hreyfingunni þegar hann var innan við
tvítugt. En uppreisn hans gegn ójafn-
aðinum hófst fyrst fyrir alvöru þegar
hann var í franska hernum í seinni
heimsstyrjöld. Hann gerði skyldu sína
sem hermaður, enda þótt óréttlætið og
ójafnaðurinn gagnvart Múhameðstrúar-
mönnum færi ákaflega í taugarnar á
honum.
]\Íesti viðburðurinn í lífi hans
gerðist meðan hann beið þess í Fralck-
landi að verða leystur úr herþjónustu.
Fréttir bárust af uppreisn þjóðernis-
sinna í Austur-Alsír í maí 1945, og
var jafnframt skýrt frá hvernig hún
var bæld niður með næstum ótrúlegri
grimmd. Til að hefna 200 „landnema“
gáfu evrópskir borgarar sig fram til
þjónustu í sérstökum sveitum — fyr-
irmynd OAS-leynihersins — sem að-
stoðuðu franslca landherinn, flugherinn
og flotann við að eyða þorp og slátra
rúmlega 10.000 Múhameðstrúarmönn-
um. Þjóðernissinnar töldu mannfallið
hafa verið 40.000. Frá þeirri stund var
Ben Bella sannfærður um, að allar
vonir um nýja skipan í Alsír væru á
sandi reistar, og að eina svarið væri
vopnuð uppreisn.
Hann byrjaði með mikilli varfæmi
og geklc í frelsishreyfinguna sem Mess-
alí Hadj stjórnaði. Ben Bella varð
snemma fyrir vonbrigðum vegna yfir-
lætis og drambs Messalis og vegna
hinna sífelldu erja innan hreyfingar-
innar. Árið 1947 átti hann þátt í að
mynda sérstaka hreyfingu, sem var að
vísu lauslega tengd Messali, en átti
fyrst og fremst að skipuleggja vopnaða
uppreisn. Ben Bella fór sjálfur yfir
mörk ofbeldisins þegar hann stjórnaði
árás á aðalpósthúsið í Oran árið 1949
og stal þaðan 3000 sterlingspundum til
að standa straum af útgjöldum við
uppreisnina.
Árið 1950 skipulagði franska lögregi.
an fyrst eins konar „samsæri“ og náðl
síðan á sitt vald helztu leiðtogum
hreyfingarinnar, þeirra á meðal Ben
Bella. Hann var dæmdur í sjö óra
fangelsi, en komst undan í marz 1952
og fór til Kaíró. Það var þar sem hann
stofnaði Byltingamefndina ásamt átta
félögum sínum, en hún leiddi síðan til
Þjóðlegu frelsisfylkingarinnar (F.L.N.).
Þessir níu menn voru allir meðmæltir
stríði, bæði til að ná hinu endanlega
markmiði og eklci síður til að sameina
hina dreifðu og rugluðu Serki í eina
samstillta heild.
Mr að var um þetta leyti sem bar-
áttan í Alsír tók á sig hina kynlegu og
flólcnu mynd, sem hún varð alræmd
fyrir. Enda þótt tími og eðli uppreisn-
arinnar væru álcveðin á nokkrum
„fundum“ í Svisslandi, komu félagarnir
Frh. á bls. 13.
Utgefandi: H.f. Arvakur, Reykjavlk.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Hitstjórar: Valtýr Stefónsson (ébm.)
Sigurður Bjamason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýslngar: Ami Garðar Kristinsson.
Bitstjóm: Aðalstræti 6. Sími 22480.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS