Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1963, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1963, Síða 6
| BÓKMENNTiR | ÍFlraTnihald af bls. 5 H vað sem annars má segja um hinar umfangsmiklu sveitalífslýsingar og sögulegu skáldsögur- íslendinga, getur það hvorki talizt eðlilegt né heilsusam- legt, hve mjög íslenzkir höfundar hafa sniðgengið lífshræringar líðandi stund- ar, átök og umrót aldarinnar sem við eigum hlutdeild í og verðum að átta okkur á. Bókmenntir sem fyrst og fremst höfða til fortíðar verða óðara en varir safngripir, skipta nútíðina litlu og framtíðina enn minna máli. Ég skal ekki rekja hér langan nafna- lista máli mínu til áréttingar, en sé litið sviplega yfir íslenzka skáldsagnagerð frá fyrri'heimsstyrjöld fram á þennan dag, fer ekki hjá því að einhæfni við- fangsefnanna valdi alvarlegum heila- brotum. Af eldri kynslóð má telja þá höf- unda á fingrum sér sem fjallað hafa að nokkru marki um vandamál samtíðar- innar og þéttbýlisins í verkum sínum. Að sjálfsögðu ber þar hæst Halldór Laxness í „Vefaranum mikla“ og „Sölku Völku“ og miklu síðar í „Atóm- stöðinni", en meginpartur verka hans er á sögulega sviðinu, þó þau skírskoti mörg óbeint til samtímans. Sigurjón Jónsson varð fyrstur manna til að taka Reykjavíkurlífið upp úr fyrri heims- styrjöld til meðferðar í tveim skáldsög- um sínum, en lagði síðan frá sér penn- ann í marga áratugi, unz hann tók að semja sögulega rómana. Ólafur Jóhann Sigurðsson hefur með beztum árangri fjallað um Reykjavík í þrem skáldsög- um. Guðmundur Hagalín hefur, ásamt Jóhar.nesi úr Kötlum og Kristmanni Guðmundssyni skrifað um Reykjavík stríðsáranna, en beztu verk Hagalíns eru á öðrum vettvangi. Nefna má enn- fremur Halldór Stefánsson, Gunnar M. Magnúss og Stefán Jónsson. Þá er vert að geta þess, að Þórbergur Þórðarson hefur með frumlegum hætti tekið til meðferðar einn þátt Reykjavíkurlífsins í „Sálminum um blómið", hvort sem telja ber það verk skáldsögu eða eitt- hvað annað. Um önnur pláss þéttbýlisins hafa nokkur eldri sagnaskáld skrifað: Guð- mundur Daníelsson í „Blindingsleik", sem var velheppnuð tilraun til að rjúfa hefðbundið söguform íslendinga, Vil- hjálmur S. Vilhjálmsson í Eyrarbakka- sögum sínum, Óskar Aðalsteinn Guð- jónsson í ísafjarðarsögum sínum, Guð- mundur Böðvarsson í sögunni „Dyr í vegginn", Ási í Bæ, Jóhann Kúld og kannski einhverjir fleirL Af yngri höfundum hafa mun fleiri fjallað um lífið í höfuðstaðnum, Elías Mar með beztum árangri; sömu- leiðis Jökull Jakobsson, Agnar Þórðar- son, Indriði G. Þorsteinsson, Gísli J. Ástþórsson, Jóhannes Helgi og að nokkru leyti Jón Dan. Um önnur pláss man ég ekki í svipinn eftir öðrum bita- stæðum verkum en skáldsögum Steinars Sigurjónssonar og Guðbergs Bergsson- ar. Þá má einnig nefna að Loftur Guð- mundsson hefur samið tvær hálfsúrreal- ískar skáldsögur um nútímann og þétt- býlið, vi'rðingárverðar tilraunir til að fara ótroðnar leiðir. „Strandið“ eftir Hannes Sigfússon er merkileg tilraun til að setja á svið samtímaviðburði. Tveir ungir höfundar hafa leitað út fyrir lands- steinana að yrkisefnum úr nútímanum, þeir Guðmundur Steinsson í „Maríu- myndinni“ og Stefán Júlíusson í tveim skáldsögum. liig er ekki að leggja neitt listrænt Gunnar Gunnarsson mat á verkin eða höfundana sem ég hef tínt hér til, heldur einungis að benda á athyglisverðá staðreynd í bókmenntum okkar, staðreynd sem er kannski mælsk- ari en margt annað um takmarkanir og annmarka íslenzkra bókmennta. Þó. verkin sem hér koma til • greina nái kannski fjórum tugum þegar öll kurl koma til grafar, verður það að teljast rýr uppskera á fjórum áratugum, ekki sízt þegar þess er gætt að árið 1940 bjuggu 70% íslendinga í þéttbýlinu, og hefur sú hlutfallstala áreiðanlega hækk- að verulega síðan. Hitt er samt miklum mun ískyggilegra, hve keimlík þessi verk eru í vali og tökum á viðfangsefn- um. Þar rísa aðeins örfá upp úr, og hvergi örlar á verulega frumlegum tök- um nema í „Vefaranum mikla frá Kas- mír“ og kannski líka í „Atómstöðinni“, sem er þó hvorki Reykjavíkursaga í eiginlegum skilningi né skáldverk sem tekið verði mjög hátíðlega öðruvísi en sem satíra eða ádeila. Nú er mér vel ljóst, að höfundum ber engin skylda til að semja annað en það sem andinn býður þeim hverju sinni. Þeir eiga hvorki að hengja sig í formúl- ur né láta glepjast af tízkubundnum for- skriftum. En ég veit ekki betur en rit- höfundar séu, eins og aðrir menn, háðir umhverfi sínu og tíðaranda, taki þátt í lífi samtíðar sinnar, og því furðar mig á hve fimlega íslenzkir höfundar hafa sloppið framhjá áleitnum spurningum samtímans. Ég hef sterkan grun um, að hinn almenni íslenzki bókmennta- smekkur hafi ráðið óþarflega miklu um verkefnaval og vinnubrögð höfunda hérlendis, en sá smekkur er, sem kunn- ugt er, bæði gamall og máttugur. Ég fæ ekki betur séð en með íslenzk- um rithöfundum bærist einhver óskil- greindur en djúpstæður ótti við að tak- ast á við samtíðina og brýnasta vanda líðandi stundar. F ljótt á litið mætti ætla að lífið í Reykjavík og raunar fleiri kaupstöðum byði upp á gnægð góðra yrkisefna, sem taka mætti margvíslegum tökum. Um- brotatíamr hafa jafnan þótt ákjósan- legur jarðvegur rismikilla bókmennta, en hér á landi hefur allt annað orðið upp á teningnum. Vitaskuld hljóta að vera til skýringar á því eins og öðru. Ein þeirra kynni að vera sú, að lífið í Reykjavík sé svo flat- neskjulegt og iflnantómt, þráttfyrir um- brot og byltingar, að ógerningur sé að finna hér sæmilegt söguefni. Eitthvað kann að vera til í því, en skýringin er hvorki mjög sennileg né pottþétt. Ég hef haldið því fram annarstaðar og skal ekki víkja frá því hér, að velmegun og góðæri hafi dregið þrótt og kjark úr ís- lendingum, ekki sizt íbúum höfuðstað- arins. Þar við bætist sú pólitíska farsótt, sem lagzt hefur þungt á fólkið og sýkt allt þjóðlífið til þeirra muna, að eng- inn skapaður hlutur er skoðaður eða metinr öðruvísi en með pólitískum mælistikum. Slíkt ástand veldur vissu- lega kyrkingi í andlegu lífi, lamar framtak og gerir flesta hluti lágkúru- lega. Ekki er því heldur að neita, að margháttuð blessun velferðarríkisins með öllu sínu aðhaldi og öryggi, trygg- •ingum og áhyggjuleysi geri mannlífið dálítið flatt, svipti það þeirri áhættu og þeim átökum sem eru frumskilyrði góðra skáldverka. Allt á þetta vafalaust talsverðan þátt í þeirri bókmenntaþróun, sem átt hefur sér stað á íslandi undanfarna ára- tugi, en orsakirnar liggja að mínu viti miklu dýpra. Ein þeirra er sú, að bæði rithöíundar og leiðbeinendur almennr- ings um bókmenntir hafa haldið að þjóðinni einhliða og ófrjóu viðhorfi til bókmennta. Epík og rómantík hafa rið- ið hér húsum lengur og af meira offorsi en sæmilegt geti talizt. Veit ég vel, að fram hafa komið stefnur sem reyndu að kveða þennan draug niður, svo sem raunsæissiefna Verðandi-manna, en það var ’ eins og þær skorti afl og úthald. Kannski stendur þetta í einhverju sam- bandi við íslenzkar skapgerðarveilur, alræmt úthaldsleysi íslendinga, væru- girni, veiklyndi gagnvart lofi og lasti GuðmundUr Kamban fjöldans og öðrum áþekkum krankleik. En það sem mestu veldur er ugglaust sú hjátrú, sem lamin hefur verið inn í þjóð- ina áratugum saman, ekki sízt af nóbels- skáldinu, að hér sé ekki og eigi ekki að vera nema ein hefð í bókmenntum, nefnilega sú epíska. að er kominn tími til að segja það, þó það þyki efalaust argasta villukenning, að íslenzkir skáldsagna- höfundar hafa í mörgum atriðum brugð- izt þeirri meginskyldu að færa út kvíar íslenzkra bókmennta, og er Halldór Laxness þar nærtækt dæmi. Fyrsta veigamikla skáldsaga hans, „Vefarinn mikli frá Kasmír“, var viðburður í ís- lenzkum bókmenntum, sem hefði átt að greiða nýjum straumum leið inn í skáld- skap íslendinga, en skáldið kaus að snúa við blaðinu og helga krafta sína hinni svonefndu þjóðlegu hefð epískra skáldsagna. Ég er ekki að kasta neinni rýrð á ótvíræða snilld Laxness í stíl, hugarflugi og efnistökum. Hann hefur unnið það minnisverða afrek að rekja svo til öll hin klassísku stef íslenzkra bókmennta, tekið til meðferðar sjávar- þorpið, kotbóndann, alþýðuskáldið, draumsýn þjóðarinnar í niðurlæging- unni, hetjusöguna fornu, útþrána og frægðarljómann, ævintýrið og paradís- arleitina, skringilegheit og rótleysi nú- tímans. Samt virðist mér, þegar ég lít yfir glæstan feril hans, að hann hafi kosið auðveldari leiðina, afsalað sér hinu erfiða hlutverki nýskaparans og brautryðjandans í íslenzkum bókmennt- um. Fyrir mann, sem býr yfir snilli- gáfu, er auðveldara að vinna hylli heimsins með því að fara troðnar slóðir ' en ótroðnar. Enginn varð til að taka upp merkið eftir „Vefarann", svo til stórtíðinda drægi, þó nokkrir ungir höfundar hafi að vísu gert virðingarverðar tilraunir með skáldsöguna á síðustu árum —• mörgum áratugum eftir að umheimur- inn hóf að kanna önnur svið mannlífs- ins en þau sem vænleg eru til góðra epískra.verka. a káldsagan á íslandi er að veru- legu leyti stagnerað form. Þar apar hver eftir öðrum, og allir eftir hinum fornhelgu fyrirmyndum, íslendingasög- um. Það er ekki laust við að vera hjá- kátlegt á atómöld, að verðleikar eina ís-' lenzka skáldsins, sem hlotið hefur nóbelsfrægð, skuli vera þeir, að hann hafi endurnýjað hina fornu sagnahefð fslendi’nga. Ég játa fúslega að það er 1 sjálfu sér mikið og merkilegt afrek, en er það ekki að vera ofurliði borinn af fortíðinni, þegar enginn áræðir að víkja af langtroðnum götum góðrar og marg- rómaðrar hefðar? Ég spyr með Jónasi: „Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur? Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?“ Það var meðal annars skipaskortur fs- lendinga á miðöldum, sem olli því að hin forna hefð íslendingasagna veslað- ist upp og rann út í þurr og steindauð annálaskrif annarsvegar og fjarstæðar lygisögur hinsvegar. Engin menning lif- ir á sjálfri sér, allra sízt þeir þættir hennar sem að skáldskap lúta. Mér kemur það svo fyrir sjónir nú, að hin íslenzka epíska sagnahefð sé enn að renna út í sandinn, annarsvegar út í þurr ævisagnaskrif og hinsvegar fjarstæðar dulfræði- og andatrúarbókmenntir. Að þessu sinni er það ekki skortur á sam- göngum við umheiminn sem veldur, heldur aldagömul minnimáttarkennd sém hræðist örvandi og frjóvgandi snertingu við erlenda strauma í menn- ingu og bókmenntum. (Framhald í næsta tbl.) SAGAN AF DÁTANUM Framlhald af bls. 4. K.: (með sínum venjulega rómi) Seisei, fyrst er að, borga, ekki gef ég þér hana! D.: Ó, djöfull! nú ertu dauðanum seldur! (Jósef ræðst á kölska) K.: Nei, drengur minn, ætli þér blæði’ ekkl heldur! Stilltu þig, gæðingur! Gerum upp sakir eins og gamlir félagar. Kannski þú takir þá fiðlutetrið! — Við tölum síðar í tómi um verðið— og eilítið blíðar! S.: Hann Jósef okkar grípur fár en feginn við fiðlu sinni og gamlan helgidóm að vanga leggur; blítt er boginn dreginn um blakkan streng; — hún gefur engan hljóm! Hann snýst á hæli, en sér þar engan innl, hans ógnargestur hvarf í skuggann fjær. Því miður, vinir, enn þá einu sinni vann erkiíjandinn spilið, því sem nær; Og sá hlær bezt, er síðast hlær. En Jósef, eins og fugl á flótta, íiðlunni grýtir, sleginn ótta. Og töfrakverið, sitt traust og hald, tætir hann sundur, hvert blað og spjalct (Framhald í næsta tbl.) 8. tölublað 1963 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.