Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1963, Qupperneq 11
m
Saga, ævisögur, ferðabækur
Dansk Renæssance. Palle Lauring.
Schönberg, 19€3. Umbrotatímabil
danskrar sögu. Ágæt bók.
Prinser og Vagabonder. Anders
Enevig. Fremad 1963.
Yfirlögregluþjónn í Kaupmanna-
höfn lýsir undirheimum borgarinn-
ar.
Tribal Feeling. Michael Astor. Mur-
ray 25 s. 1963.
Minningar um þá daga þegar sér-
réttindi voru sjálfsögð, og fólk
þorði að lifa.
Ludvig Holbergs Memoirer. Anoným
þýðin frá dögum Holbergs. Schön-
berg, 1963.
Holberg ritaði minningar sínar á
latínu, þær voru strax þýddar á
dönsku. Prófessor Billeskov ritar
ýtarlegan eftirmála.
Marlene Dietrichs ABC. Schön-
berg, 1963.
Persónuleg alfræði, skemmtileg bók.
The Incas. Ed. by A. Gheerbrant.
Cassell 84s. 1963.
Um veldi og hrun*1 Inka, glæsileg
útgáfa, myndskreytt.
London by Gasliglit. M. Harrison.
Peter Davies 25s. 1963.
London 1861—1910. London viktoríu
tímabilsins, skemmtileg bók.
- SIGGI SIXPENSARI -
—i „Þú Vtizt ekkí hvað þú ert hamingjusöm, Florrie, að
eiga mann. Heimilið er einskisvirði án manns ....
— „ ... ég skal láta hann Sigga koma við hjá þér stöku sinn-
um — á skíiugu skónum, eins og alltaf.“
— „Þú meinar það ekki, Florrie?!“
Hvernig á að safna frímerkj
uim og (hivaða frímerkj um á
að safna?, er oft spurt.
Það er bezt að taka seinni
spurninguna fyrst og svara
henni þannig að menn skuli
helzt safna frímerkjum síns
eigins lands. Plestir íslenzk-
ir írímerkjasafnarar leggja
að sj'álfsögðu aðaláherzlu á
að safna íslenzkum frímerkj
uim. Hvaða lönd eða safn-
greinar menn velja sér þar
fyrir utan mun vera mjög á
reiki, flestir munu þó safna
norðurlandamerkjuim að
auki. En hvernig skal safna
fer fyrst og fremst eftir fjár-
hag hvers og eins, eða
hversu miklum peningum
menn viija verja í frimerkja
söfnun. Það er því miður
nokkuð aigengt að frí
merkjasaifnarar geti ekki
gert upp við sig, hvort þeir
setLi að safna ónotuðum eða
notuðum frímerkjum held-
ur safni þessu jöfnuim hönd-
um, og þá freistast þeir til
að ná sér í ódýrari gerðina,
hvort heldur er ónotað eða
notað frimerkL En fyrr eða
síðax kemst frímerkjasafn-
arinn að þvií, að til þess að
ná einhverj'um árangri, t.d.
til þess að geta fengið safn
sibt tekið til sýningar, þarf
það að vera hreint, það er
að segja innibalda einungis
notuð eða ónotuð frimerki
og getur þá orðið æði kost-
naðarsamt að skipta allt í
einu yfir í annað hvort. Sú
leið sem almennt mun vera
talin kostnaðarsamari mun
vera að safna ónotuðum
frímerkjum, þó er ekki því
að neita, að það getur gefið
meiri fjölbreytni og jafnvel
verið erfiðara að glíma við
notuð merki, ef farið er út
í að saifna þeim þannig, að
stiimpilhnn sé læsilegur. Sú
tegund söfnunar hefur verið
lítt rækt hér á landi enn, en
hefur færzt mjög í vöxt er-
lendis hins síðari ár. Er þess
skemmst að minnast, að
Facit verðlistinn sænski
birti skrá yfir íslenzka nú-
merastimpila í fyrra og núna
í ár yfir krónustimpla. Það
er rétt að benda íslenzkum
frimerkjasöfnurum á að
verða sér úti uim sem flest
frimerki með þssum stimp-
luim, meðan enn er unnt að
ná í þau.
I þessum þáttum mun
verða öðru hvoru minnzt á
í vetur hvað sé markaðsverð
áslenzkra frímerkja og þá
jafnframit hvort auð'veldara
sé að afla þeirra no'taðra eða
ónotaðra og hvort fjórblokk
ir muni vera fáanlegar af
þeim. F.K.
The Blue Lantern. Colette. Secker
16s. 1963.
Dagbækur og minningar Colette.
Heimurinn er að smádeyja.
How Shakespare Spent the Day.
Ivor Brown. Bodley Head 25s.
Litrík þjóðfélagsskipting.
I, Michelangelo, Sculptor. Ed. by
Irving Stone and Jean Stone. Coll-
ins 30s. 1963.
Listamaðurinn í sjálfs síns augum.
Marriage and Genius. John Stewart
Collis. Cassell 42s. 1963.
Hjónabandssaga Strindberg og Tol-
stoy.
Oscar Wilde: The Aftirmath. H.
Montgomery Hyde. Methuen 30s.
1963.
Ýtarleg og áreiðanleg bók um fang-
elsisreynslu O. Wilde í Penoville,
Wandsworth og Reading fangelsum
og um rit þau, sem hann setti saman
í téðum stöðvum.
A Million years of Man. Richard
Carrington. Weidenfeld & Nicolson
36s.
Ágæt bók um þróun mannsins og
væntanlega framþróun.
Spy Mysteries Unveiled. Vernon
Hinchley. Harrap. 21s. 1963.
Blake, Powers, Grabbe og fleiri
koma hér við sögu, bókin jaðrar
við að vera skáldsaga, mjög spenn-
andi.
Mark Twain’s Letters to Mary. Ed.
by Lewis Leary. Columbia Univ.
Press, paperback, 12s. 1963.
Það er því líkast sem Mark Twain
sitji hjá manni, þegar maður les
þessi bréf.
Plumes and Arrows. Colin Simpson.
Angus and Robertson, 42s. 1963.
Ágæt ferðasaga og ævintýri frá
Nýju-Guineu.
On Safari. Armand Denis. Collins,
25s. 1963.
Metsölubók, ágætar myndasíður.
The Autobiography of Upton Sin-
clair. W. H. Allen, 30s. 1963.
Ævisaga og samtíðarlýsing. Merki-
leg bók*.
The Gypsies. Jean-Paul Clébert.
Vista Books, 42s. 1963. Charles Duff
þýddi og endurbætti þessa bók.
Saga sígauna, vel fram sett og ýtar-
leg.
England in the Eighteenth Century,
1689—1793. R. W. Harris. Bland-
ford 18s. 1963. *
Efnahagsleg eg andleg gróska ein-
kenndi 18. öldina á Englandi.
Propyláen Weltgeschichte. Bd. 3.
Griechenland, Berlin: Propyláen
Verzl. 1962.
Dessi mannkynssaga verður í 10
bindum. Út eru komin 1,2,8,9, og 10
bindi. Talin með betri veraldarsög-
um.
Der Zweite Weltkrieg in Bildern u.
Dokumcntcn. Jakobsen u. Dolling-
er. Bd. 2. Miinchen: Dresh 1962.
Síðasta bindið kemur út á þessu ári.
Þessi þrjú bindi verða um 1600
síður með rúmlega 2500 myndum,
uppdráttum og landabréfum, ýtar-
leg stríðssaga.
Geschichtsschreinbung der Schweiz
vom Spátmittelater zur Neuzeit. F.
Richard u. E. Bonjour. Bd. 1. Basel:
Schwabe 1962.
Bók rituð af miklum lærdómi um
heimildir að og um sagnfræði Sviss.
China und das Abendland. Wolf-
gang Franke. Göttingen: Vanden-
hoeck u. Ruprecht 1962.
Samskipti Evrópuþjóðanna og kin-
verja. Um þetta efni hefur fremur
litið verið skrifað af viti.
Jóhann Hannesson:
ÞANKARÚNIR
HOMO INTEGRITATiS
Mynd er dregin upp af stöðu mannsins í upphafi hinnar
helgu bókar: Maðurinn stendur þar undir Guði, sam-
hliða og samábyrgur náunga sínum og fær það hlutverk að
taka við umráðum yfir jörðinni og því sem á henni er. Margt
fleira er um manninn að segja, en útlínur stöðunnar eru þessar:
Undir Guði, meS náunganum, yfir dýrum, jurtum og hlutum.
Ekki er maðurinn Guð, en ber mynd Guðs, sem sýnir sig í kær-
leikanum til náungans. Fornir lærifeður nefndu þetta ástand
satus integritatis, þ. e. réttlætisstöðu, sakleysisstöðu, eðlilega
stöðu mannsins, eða með nýtízkulegra orðalagi: Mannsæmandi'
ásigkomulag, mannsæmandi stöðu.
Á eftir fylgir svo önnur saga, er hinu mannsæmandi ástandi
lýkur og við tekur spillt ástand, status corruptionis. Snýzt þai
allt við. Guð hverfur, maðurinn felur sig í nekt sinni fyrir hon-
um. — Síðar kemur brottreksturinn úr Paradís; framhald fylgir
í frásögunni af hinu fyrsta bróðurmorði, maðurinn leggur ok á
náunga sinn, einn ræður öðrum bana. Hlutirnir ná valdi yfir
manninum, gráðug skurðgos gína yfir honum og heimta manna-
blót. Undir valdi hlutanna stritar maðurinn, arðrænir og kúg-
ar náungann (konu og börn), en Guð er fjarlægur, gleymdur
og framandi. Þegar maðurinn leitar sambands við hann, hittir
hann öfl náttúrunnar og ægivald hlutaheimsins — eða annan
mann, óvin sinn.
Er þá homo integritatis — maðurinn í sínu mannsæmandi
ástandi — ekki annað en gamall draumur eða óskiljan-
leg persóna í eldgömlum heilögum sögum? Ef svoværi, þágætum
vér lifað líkt og ánægðar kýr (cöntended cows) á grænum töðu-
velli. En vitundin um mannsæmandi líf lætur oss ekki í friði —
og það er margfalt erfiðara að gera oss til hæfis en heilögum
nautum við Gangesfljótið.
Vér leitum hins mannsæmandi lífs með því að bera fram
kröfur á hendur öðrum mönnum. Ekki þarf annað en óskir
vorar og kröfur séu uppfylltar, og þá opnast leiðin til mann-
sæmandi lífs, er vér svo nefnum nú. Kröfur gerum vér til
barna vorra, að þau læri að haga sér eins og siðaðir menn og
taki tillit til óska vorra. Vér heimtum að virtur sé réttur vor,
kjör vor bætt, leyst séu vandræði vor, ef einhver eru, þjón-
usta veitt við vort hæfi, lífskjör stéttar vorrar „gerð mann-
sæmandi“. Vér óskum framhalds á því eftirlætisástandi, er vér
bjuggum við í bernsku, þegar bezt lét.
TT'n að vér höfum einhvern tíma þekkt „betri daga“, sýnii
sig einnig í öðru: Vér vitum hversu stjórna skal heim-
inum, hvernig koma má í veg fyrir öll vandræði í framtíð-
inni, styrjaldir, óeirðir, blóðsúthellingar, arðrán, kúgun og kyn-
þáttamisrétti. Ekki þarf annað en uppfylla óskir vorar og fara
í einu og öllu að vorum ráðum til þess að tryggja varanlegan
frið á jörðu og allsnægtir handa öllum mönnum. Þá mun endur-
heimt verða hin týnda Paradís, og ekki nóg með það, vér mun-
um umbæta hana stórlega. Um síðustu aldamót virtist mönnum
þessu líkt ástand vera skammt undan. Óskadraumurinn um al-
fullkominn heim er mannkyninu í blóð borin — og birtist í ýms-
um útópíum og öðrum gerðum sócialskáldskapar. Einn og einn
maður hefir jafnvel hugmynd um að æskilegt gæti verið að
verða sjálfur sannur maður.
Jafnhliða hinuhi hversdagslega raunveruleika — sem blöðin
draga upp daglegar myndir af — lifir hugmyndin um réttlæti
og fullkomleika í hugum vorum og hjörtum. Og lífið yrði dauf-
legt án hennar, þótt hún valdi oft ónæði. Hins vegar lækkar
flugið er vér minnumst þess að vér erum ekki ódauðlegir guðir,
heldur aðeins dauðlegir menn.
DenkwUrdigkeiten. Fridrich der
Grosee. Míinchen: Heyne 1963.
Friðrik mikli fékkst töluvert við
ritstörf, og nú hefur Heyne út-
gáfan gefið út helzta sagnfræðirit
hans „Denkwurdigkeiten“.
Die Russische Revolution. Rosa Lux-
emburg. Frankfurt: Europáische
Verlagsanstalt 1963.
Þessi fræga byltingarkona var að
ýmsu leyti á öndverðum meið við
Lenin.
Friedricli Ebert. Georg Kotowski.
Bd. 1. Wiesbaden: Franz Steiner
Verlag 1963.
Ebert var einn áhrifamesti stjórn-
málamaður Weimar lýðveldisins
framan af. Ýtarleg og vel rituð ævi-
saga.
Goethc — Sein Leben und seine
Zeit. Richard Friedenthal. Múnc-
hen: R. Piper Verl. 1963.
Virðist ætla að verða metsölubók í
Þýzkalandi.
50. tölublað 1963
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS R