Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1964, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1964, Qupperneq 4
*r ótt saga leiklistarinnar hér á landi sé ekki ýkja löng eða margþætt, þá er þar margs að minnast, margra góðra manna og kvenna, sem lagit hafa þar hönd á plóginn, og margra atburða, smærri og stærri, sem skapað hafa þá merkilegu sögu. Nú er það svo að oft er erfitt eða næsta ógerlegt að gera sér ljósa grein fyrir mikilvægi atburð- anna á því augnabliki, sem þeir gerast. Slíkt kemur ekki í ljós fyrr en eftir á, oft löngu síðar, 1 Ijósi sögunnar. Ein- stakir atburðir eru þó í eðli sínu og framkvæmd svo áberandi og gildi þeirra fyrir framtíðina svo augljóst, að þeir teljast strax til stór-viðburða, sem marka muni djúp spor og jafnvel tímamót. í sögu og þróun leiklistarinnar hér í höf- uðstaðnum eru í þessu tilliti t.d. tveir atburðir, sem ber hæst. Það er bygging Iðnaðarmannahússins (Iðnó) og stofn- un Leikfélags Reykjavíkur 1897, og svo bygging og stofnun Þjóðleikhússins 1950. Þessir tveir stór-viðburðir eru stærstu sporin, sem stigin hafa verið fram á við í leiklistarmálum þjóðarinn- ar, og marka skörp tímamót í sögu þeirra mála. Svo eru ýmsir aðrir at- burðir, sem gerzt hafa og eru enn að gerast, sem láta svo lítið yfir sér, að þeir vekja tiltölulega litla eftirtekt, og gildi þeirra og mikilvægi fyrir fram- tiðina fer fram hjá flestum eða öllum. Það er ekki fyrr en slíkir atburðir vaxa í lifandi starfi og þroska ár frá ári, að hið raunverulega gildi þenra kemur í Ijós. T ilefni þessa greinarstúfs er ein- mitt einn slíkur atburður, sem átti sér stað á leiksviðinu í Iðnó fyrir réttum 40 árum, nánar tiltekið þ. 28. febrúar 1924. Það kvöld lék Indriði heitinn Waage sitt fyrsta hlutverk hjá Leik- félagi Reykjavíkur, „Valentin“ í „Ævin- týrinu“, frönskum gamanleik. Hann hafði að vísu komið á „fjalirnar“ áður í nokkrum barnahlutverkum og með knattspyrnumönnum, er þeir sýndu Skugga-Svein, en það heyrir ekki und- ir hið eiginlega leiklistarstarf hans og telst því ekki með í þeim skilningi. Ég sá ekki Indriða í þessu hlutverki (en það er líka eina hlutverkið, sem hann lék og ég ekki sá hann í), en Indriði Waage. mér var sagt, að hann hefði leyst það mjög vel af hendi, en án þess þó að vekja neina sérstaka eða almenna at- hygli, enda varð fremur lítil aðsókn að leiknum. En í hópi kunnugra og áhuga- manna um leiklist hlýtur þessi atburð- ur að hafa vakið nokkra forvitni og athygli, þegar sonur Jens B. Waage, eins ágætasta leikara og mætasta leik- húsmanns, sem við höfum átt, og dóttur- sonur Indriða Einarssonar, þess alkunna leikhúsfrömuSar, þreytti sína fyrstu prófraun á leiksviðinu. En þo þessi atburður hafi þannig vakið nokkra eít- irtekt, og jafnvel miklar vonir við hann bundnar hjá einhverjum, þá held ég þó, að enginn hafi á þeim tima rennt grun í hið geysimikla- mikilvægi hans fyrir allan vöxt og viðgang leiklistarinnar hér á landi næstu fjóra áratugina, og án efa lengur. Með honum hefst hinn langi og stórmerki leiklistarferill Indriða Waage. S á, sem þessar línur ritar, átti Þetta fann hann líka og vissi með sjálf- um sér. Hann sagði mér einu sinni frá því, að þegar hann rúmlega tvítugur ákvað að snúa sér fyrir alvöru að leik- listinni og helga henni krafta sína og hæfileika, þá hafi það eiginlega komið aí sjálfu sér, eins og hver annar sjálf- sagður hlutur, sem maður gerir. En áður en hann haafist handa í þeim málum, vildi hann afla sér meiri þekk- ingar og þroska og auka á víðsýni sitt. Þeirra erinda fór hann utan og dvald- ist árlangt í Þýzkalandi, aðallega í JBerlin. Þar kynnti hann sér alla leik- hússtarfsemi svo sem bezt voru föng um var ætlað stærra og mikilvægara hlutverk í leiklistinni. Strax um haust- ið sama ár varð hann aðal- (og eini) leikstjóri (eða leiðbeinandi, eins og það þá hét) hjá Leikfélagi Reykjavikur, og það var hann næstu 3—4 árin og síðar að meira eða minna leyti, þar til Þjóð- leikhúsið tók til starfa. Með leikstjórastarfinu og formennsku í félaginu, sem hann tók við árið eftir, þá aðeins 23 ára gamall, hefst forustu- hlutverk Indriða í leiklistarmálum okk- ar, sem hann gegndi á einn eða annan hátt um nærri 40 ára skeið, eða meðan líi og heilsa entust, en síðustu ár ævi Brot úr sögu leiklistarinnar: Indriði Waage, leikari og leikstjóri því láni að fagna að vera nemandi og náinn samstarfsmaður Indriða öll þessi ár og eiga einlæga og trausta vináttu hans. Ég fylgdist með öllu starfi hans og lífi svo að segja dag frá degi. Og þegar ég nú eftlr á hugleiði með sjálf- um mér allt hans leiklistarstarf og aðdraganda þess, þá finnst mér sem for- sjónin sjálf hafi frá uppbafi útvalið hann til að gegna því mikilvæg^ og sérstaka hlutverki í leiklistarmáluim þ>óB arinnar, sem hann vissulega innti af bendi. í æðum hans rann blóð óvenju- listfengra og gáfaðra forfeðra og mæðra, þar sem tónlist og sönglist skip- uðu öndvegi. Sjálfur hlaut hann ríka leiklistargáfu og hæfileika í vöggugjöf. Heimili foreldra hans var eitt af höfuð- vígjum leiklistarinnar í bænum, og sama máli og ekki síður gjegndi um heimíli afa hans og nafna. Segja má með sanni, að öll bernskuár sin og æsku hafi hann lifað og hrærzt í leiklistinni. Meðvitað og ómeðvitað drakk hann í sig andrúmsloft og innsta eðli hennar, þar til hún var orðin hluti af honum sjálfum, sem hann gat ekki án verið. á, las leikbókmenntir og sótti leikhús af keppi. Það var ekki heldur í kot vísað að koma til Berlínar þeirra erinda á þessum tímum, því að þýzk leiklist stóð þá með miklum blóma og reis ef til vill hærra en nokkru sinni fyrr eða síðar. Að lokinni þessari mjög svo gagnlegu i-ÓKr^dvöl erlendis snýr Indriði svo heim aitur fullur áhuga, bjartsýni og stór- hugar, staðráðinn í þeim ásetningi að freista þess að verða íslenzku leiklistar- starfi að liði, sem hann og sannarlega efndi. En fyrst varð að hugsa fyrir dag- legum þörftun, en því hlutverki var leiklistarstarfsemin ein ekki vaxin í þá daga. Hann gerðist þá starfsimaður í Islandsbanka og vann síðan þar og síð- ar við Útvegsbankann samhliða leik- starfinu alla tíð til ársins 1950, er hann var fastráðinn sem leikari og leikstjóri við Þjóðleikhúsið. F yrsta verkefni Indriða var eins og fyrr segjr hlutverk Valentins í ,,Ævintýrinu“ í ársbyrjun 1924. En hon- sinnar átti hann við mikla vanheilsu að stríða, sem hafði mjög lamandi áhrif á starfsorku hans og líkamsþrek. Að rekja alla þá sögfu yrði bæði langt mál og margslungið og mér ef til vill of nátengt til þess að ég sé rétti mað- urinn til þess. Hér verður því aðeins stiklað á stóru, en sem þó kann að veita öðrum nokkra innsýn í hið geysi- mikla og merka starf, sem eftir Indriða hggur í þessum málum. Arið 1925 var hann kosinn for- maður Leikfélagsins og var það til árs- ins 1928. Aftur var hann formaður þess 1940—1941. Árin 1930—33 var hann einn af' þeim sex mönnum í Ábyrgðarmanna- félaginu, sem önnuðust starfsemi félags- ins fyrir eigin reikning. í mörg ár var hann í leikritavalsnefnd félagsins, eftir að hún komst á, og var reyndar alia tíð einn helzti ráðamaðux um leikrita- val, því að í þeim efnum var hann allra manna bezt að sér, átti t.d. mikið og gott safn leikrita og annarra leikbók- mennta, sem hann stöðugt jók við. Þar Framhald á bls. 14, 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 8. tölublað 1964

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.