Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1964, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1964, Blaðsíða 5
Elzta túnlistarhátíð Evrdpu á 750 ára afmæli Wagners IWerkisár í Bayreuth. í íyrra voru liðin 150 ár frá fæðingu Richards Wagners, snillingsins mikla. Þess var minnzt með flutningi níundu 6infóniu Beetíiovens við opnun hátíðar- ii.nar í Bayxeuth. Að öðru leyti var verkefnaskiptingin lík og verið hefur, nema hvað þrjár sýningjar voru á stór- verkinu „Der Ring des Nibelungen“ í uppfærslu Wolfgangs Wagners í stað tveggja sýninga undanfarin ár. „Die Meistersinger von Numberg" var sýnt í nýrri uppfærslu Wielands Wagners. Fyrir nokkrum árum, þegar Bay- reuth-hátiðin var endurlifguð af Wagn- er-bræðrunum, sonarsonum tónskálds- ins, hneyksluðust margir gamlir aðdá- endur verka hans á nýtízkulegiri, já, næstum afstrakt uppfaarslu verkanna. Margir af ungu kynslóðinni höfðu ánægju af þessari tilraun með verk Wagners í þessum búningi. Segja mó að nú hafi til hálfs verið horfið frá þessari nýtízkulegu stefnu og farið skynsamlegt bil beggja. Tónlistin hefur auðvitað ætíð staðið óbreytt, en aftur á móti er gengið fram hjá mörgu því, sem Ric- liard Wagner hafði fyrirskipað um leik- stjórn og framkvæmd. Það vantar til dæmis marga hluti og dýra, sem sam- luæmt fyrirsögn hans eiga að vera á sviðinu. Kröfur tónskáldsins til leiksviðs búnaðar voru á sínum tima mjög mikl- ar, og ollu miklum framförum leiksviðs- tækninnar. í Bayreuth er fullkominn tækniút- búnaður fyrir hendi, en hann er nú notaður af ítrustu sparsemi. Enn eitt dæmi um frávik frá tyrirsögnum tón- skáldsins má tilfæra. Söngvurum er ætið skipað þannig, að þeir standa fram- arlega á sviðinu og syngja fram í sal- inn. Richard Wagner hafði aftur á móti óbeit á slíkum stellingum og la<íði því fyrir söngvarana að haga sér á sviðinu eins og engir áhorfendur væru. Allar þessar ráðstafanir beina athygl- inni meir að tónlistinni. Hún skipar aðalsessinn í Bayreuth, og hennar vegna er hátíðin í Bayreutih ár hvert mikill listviðburður. Meistarasöngvararnir frá Numberg. Hvað snertir upptfærslu Wielands Wagners á „Die Meistersinger von Niirnberg“ hefur nýtt hliðarspor verið stigið í tilraunaskyni, og sú tilraun hef- ur verið ákaflegia gagnrýnd af mörg- um. Sem endranær eru tónlistarflytjend ur lofaðir hástöfum. Það er leikstjórn Eftir Helga B Wielands, svo og leiktjöldin, sem ekki er gott að sætta sig við. í leikskrá skrif ar Wieland Wagner: „Sönn listaverk má útleggja á marga vegu. Já, þau krefjast sífellt nýrra tilrauna. Þessi sýn- ing leitast við að reyna nýjar brautir, sem Richard Wagner hefur sjálfur bent á.“ Reyndar tilfærir hann orð Richards Wagners sjálfs: „Eins og gamansamur satýraleikur fylgdi ávallt á eftir harm- leikjunum, datt mér einmitt á ferðalagi mínu í hug gamanleikur, sem gaati komið sem gamansamur satýraleikur á eftir Söngvarakeppninni á Wartburg, Tannháuser-harmleiknum. Einmitt þetta verk er Meistarasöngvararnir frá Nurn- berg.“ Fyrir þennan gamanleik Richards Wagners, sem af mörgum er álitinn sá gamanleikur heimsbókmenntanna, sem dýpst ristir, byggir Wieland upp mið- aldalegt Shakespeare-leiksvið, og lætur það líta út eins og leikhús í leikhúsinu. Hann gerir verkið að farsa, að gaman- leik handverksmanna, lærlinga, ung- pía, riddara og næturvarða. Þetta setur ákaflega grófan blæ á verkið. Slags- málaatriðið í lok annars þáttar, og hegð- un lærlingarma í öllum atriðum leiks- ins, var svo gróf og yfirdrifin, að það truflaði tónlistina stónun, jafnvel þótt hinn un,gi amerísld hljóm- sveitarstjóri Thomas Schippers reyndi oft að laga sig að grófleikanum. Síðara atriði þriðja þáttar er hátíðavellimir við Núrnberg miðaldanna, og stéttimar eiga að marséra í hópum inn á sviðið. Þessu álirifamikla atriði gjörbreytir leikstjór- inn, því hann lætur vellina vera fulla af dansandi fólki og breytir atriðinu þannig í ballettsenu. Varla hefur leik- stjórinn hugsað sér þetta til þess að fjarlægja sig sem mesf frá fjöldasýn- ingum ákveðins stjórnmálaflokks á flc.kksþingum í Nurnberg fyrir 2—4 áratugum. Sá flokkur sótti margar hug- myndir í verk Wagners og dáði hann sem mestan allra listamanna. Sú að- dáun olli því, að sumir settu verk Wagners í samband við óþægilegar end- urminningar, og því voru verk hans lítið leikin á fyrstu árunum eftir stríð. Nú er Wagner viðurkenndur einn mesti listamaður, sem Þýzkaland hefur átt. — Vrnsældir hans eru öUu meiri utaxi Sæmundsson Ýmsir hafa legiö mér á hálsi fyr- ir aö fara miöur viröulegum oröum um Alþingi íslendinga, þá sagn- helgu stofnun, í síöasta rabbþœtti. Því er jafnvel háldiö fram af sum- um, aö með sliku háttalagi sé ver- iö aö grafa undan lýörceöinu, sem byggist aö verulegu leyti á trausti og viröingu álþjóöar fyrir löggjafar- váldinu. Þetta sjónarmið get ég ekki tek- ið gilt af þeirri einföldu ástœðu, að ■H ■■ ég tel enga op I inbcra stofn- I un eiqa sjálj- B gefinn rétt á I gagnrýnis- I lausri virð- I ingu lands- I manna. Það er hwttuleg- I ur misskiln- I | I ingur. að virðu legustu stofn anir þjoöarinnar, svo sem Alþingi, ra hœstiréttur eða þjóðJcirkjan, eigi tilkall til skilyrðislausrar lotningar eða hollustu íslendinga. Sú virðing sem þessar og aörar hliöstæöar stofnanir njóta, Jilýtur aö grund- váUast á hœfni og heiöarleik þeirra manna, sem að þeim standa. Bregð- ist þeir með einhverjum hœtti hlut- verki sínu, varpa þeir rýrð á nefnd- ar stofnanir, minnJca þœr og draga úr áhrifavaldi þeirra. Lýðrœðinu í landinu stafar að mínu viti lítil sem engin hœtta af opinskárri eða vœgðarlausri gagn- rýni, heldur stafar hœttan af þeim siðferðilega slappleik, kœruleysi og ósjálfstceöi, sem virðast vera að ná vaxandi tökum á öllu opinberu lífi hérlendis. Eitt einkenni þessa slappleika og ósjálfstæöis birtist í stvaxandi valdi stjórnmálaflokkanna á öllum svið- um þjóölífsins, ékki sízt t menn- ingarmálum, en af þessu valdi Teiö- ir, að til áhrifastarfa í þjóöfélag- iww veljast hélzt atvceöaZitlir já- menn, sem eru þægir þjónar floTck- anna, en vilja hvorki né geta tekið persónulega afstöðu til mála eða markað sjálfstæða stefnu. Að þessu leyti viröist mér Alþingi fslendinga tiafa hnignaö síöustu 50-60 árin: þaö er ekki lengur skipað raunveru- legum leiðtogum þjóðarinnar eins oq áður var. Þessi þróun vaxandi flokksválds er enn lengra lcomin í einrœöis- ríkjunum, ekki sízt austan jám- tjalds, oq okkur þykir flestum sjálf- sagt aö fordæma hana þar, en hverniq getum viö þá möglunarlaust sætt okkur við hana hérf Stafar þaö ékki af kæruleysi og allsherjar- slappleik þjóðarinnar? „Noblesse oblige“, segja Frakkar, og íslenzJcir álþingismenn mœttu gjama vera þess minnugri en þeir eru, að starf þeirra er vandasöm veqsemd, og þeir hafa enqan viö aö sakast nema sjálfa sig. ef hiö virðulega Alþingi setur ofan í hug- um landsmanna. s-a-m. 8. tölublað 1964 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.