Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1964, Blaðsíða 7
r—* j
1 j
& • í.; r w,
Leiktjöldin úr Hagaskóla, búningarnir úr Þj óðleikbúsinu — og allir skemmta sér vel.
k NEMENDAMÖTI MED
VERZLUNARSKÚLANUM
u
m þessar mundir eru
árshátíðir skóla og félagasam-
taka í algleymingi. Verzlunar-
skólanemar n^fna sína árshátíð
nemendamót, og er sú sam-
koma að sjálfsögðu merkasti
þátturinn í félagslifi þeirra,
endá jafnan beðið með mikilli
eftirvæntingu. Nemendamót
Verzlunarskólans var að þessu
sinni haldið í Sigtúni í 17. viku
vetrar.
Þegar okkur bar þar að
garði, var verið að sýna 1. þátt
inn úr Manni og konu. Leik-
endur, sem fæstir höfðu þjónað
Þalíu áður, fóru með hlutverk
sín af sýnilegri ánægju og virt
ust skemmta sér hið bezta,
ekki síður en þeir, sem á
Ihorfðu
Heimur íslenzkrar baðstofu-
menningar — í senn fjarlægur
og spaugilegur — birtist hér
Ijóslifandi: persónurnar ramm-
íslenzkar og skýrt mótaðar. —
Mesta kátínu vakti að sjálf-
sögðu gasprarinn Hailvarður
Hallsson; sömuleiðis Þura
gamla, þótt ungæðislegur mál-
xómurinn styngi óneitanlega í
stúf við allt hennar undarlega
aeði og ljóstraði á stundum upp
um aldurinn.
Meðan lófatakið dundi að
lokinni sýningu, brugðum við
okkur bak við tjöldin.
★
— Drekktu ekki sprittið
hans Klemma, segir einhver.
— Ertu frá þér, ég er að
losa mig við skeggið, segir
annar.
— Hver er Klemmi, spyrj-
um við.
Freyja Jóhannsdóttir og
Elisabet Bjarnadóttir, sem báð-
ar eru með hlutverk í leiknum,
verða fyrir srvörum:
— Hann er leikstjórinn okk-
ar, segir Freyja.
— Og Jóharrn Pálsson, —
hann hjálpaði okkur lika mik-
ið, bætir Elisabet við.
Við spyrjum, hvers tœgna
fyrsti þátturinn úr Manni og
konu hafi verið valinn. Freyja
svarar:
— 6. bekkingar hafa það fyr-
ir sið að sýna ailtaf þátt úr
gömlum íslenzkum leikritum.
í fyrra var t.d. sýndur þáttur
úr Lénharði fógeta.
— Búningarnir virtust vera
ósviknir.
— Þjóðleikhúsið lánaði okk-
ur þá.
— Leiktjöldin voru skínandi
góð.
— Þau fengum við að láni
hjá Hagaskóla, en þar var leik-
ritið sýnt í hittifyrra.
K,
Lynnir mótsins, Magnús
Gunnarsson, sem jafnframt er
formaður málfundal'élagsins í
skólanum, tilkynnir, að næsta
atriði sé þáttur 5. bekkjar og
gerist á árinu 2000. Síðan iyft-
ist tjaldið.
Á miðju sviði situr kínversk-
ur öldungur á stórum púða.
Hann er að horfa á sjónvarpið.
Brátt heyrisit rödd í sjónvarp-
inu, sem þeir þekkja vel, sem
hlusta á morgunútvarpið.
— Þetta er „Ice Television11
og Árni Múli Jónsson, segir
röddin í sjónvarpinu. Nú segir
Þórarinn Sigurðsson, jarðfræð-
ingiur, frá gosinu í Surtsey,
sem hófst árið 1!>83 og stendur
enn.
Þórarinn Sigurðsson tekur
til máls, ræskir sig en hefur
Guðmundur Lárusson, formað
ur skólafélagsins og nemenda-
mótsnefndar.
vart mælt þrjú orð, þegar
frekjuleg rödd grípur frammi
fyrir honum og segir:
— Cola Coka er svaladrykk-
urinn, sem gerir lífið ánægju-
legra. Drekkið Cola Coka ís-
kalt.
Þegar hér er komið sögu, rís
sá kínverski á fætur og skrúf-
ar fyrir sjónvarpið. Inn á svið-
ið brokkar nú karisauður með
bók undir hendi. Þetta er minn
ingabókin úr „Verzló“ frá ár-
inu 1964. Þeir taka að blaða í
Kr -
ðtl
bókinni og rifja upp giamlar
minningar frá skólaárunum. —
Um leið og þeir nefna persón-
urnar, birtast þær á sviðinu.
— Hver er þetta? spyr sá
kínverski og bendir á mynd í
bókinni.
— Þetta er hann Mási Gunn.
Hann er nú orðinn leikari í
HoJlivúdd.
Már Gunnarsson, nemandi í
5. bekk, gengur yfir sviðið, —
hnarreistur sperridyrðill í hvít
um stuttbrókum, með sólgler-
augu. Hann veifar yfirlætislega
til áhorfenda og mælir kveðju-
orð á enska tungu.
— En hver er þessi mmna?
— Þetta er hún systir Hildi-
gunnur.
Hildigunnur Ólafsdóttir, —
kiædd sem nunna, gengur yfir
sviðið með himinbornum há-
loftasvip.
Þannig heidur . leikurinn
áf rara. Hinar furðulegustu
fígúrur birtast á sviðinu við
mikinn fögnuð viðstaddra. —
Þarna mátti sjá reddara á síld-
arplani í Hveragerði, prófast í
Trékyllisvík, kaupfélagstjóra á
Grænlandi, sem bar út Tímann
til eskimóanna og svo mætti
lengi telja. Að lokum þramm-
aði öll hersingin syngjandi um
salinn. -
Höfundur þessa þáttar var
Ólafur Ragnarsson í 5. bekk,
mörgum kunnur undir heitinu
Kúnstner Hansen. Hann kom
fram í spurningaþætti skóla-
nemenda og vakti athygfli fyrir
öldungis góðan nútímalegan
kveðskap, sem þó var aðeins
skopstæling.
— Ég er Htt hrifinn af þess-
um svokallaða atómkveðskap,
segir Ólafur, og setti diktúr-
inn saman einungis til þess að
sýna fram á, að allir geta ver-
ið atómsikáld.
Ólafur er einn afkastamesti
blekiðjumaður skólans, hefur
sett saman smósögur og Ijóð,
og varla kemur svo út skóla-
blað að þar sé ekki eitthvað
úr hans penna. Við biðjum
Ólaf að segja frá hinu leik-
ræna hugverki sdnu. Hann
segir:
Þáttux 5. bekkinga í nemenda
mótinu hefur jafnan verið sá
að setja saman grínþátt um
fígúrur úr skólalífinu og þá
helzt okkar ágætu kennara. —
Að þessu sinni fjaliítr þáttur-
inn eingiöngu um nemendur 5.
bekkjar, og taka þeir allir þátt
í gríninu að fjórum undanskild
um.
— Hvaða hugsun Hggur til
grundvallar?
— Þátturinn er látinn gerast
árið 2000, og má segja, að hann
sé ofurlítill spéspegill, sem við
sjáum sjálf okkur í þá. Þátt-
takendurnir koma fram í edg-
in hlutverkum, sem eiga að
vera táknræn fyrir persónu-
leika þeirra.
— Hvað á kínverski öldung-
urinn að tákna?
— Kínversk áhrif á vestrasaia
heimsmenningu um þetta leyti.
Már Gunnarsson, Hollivúdd-
sjarmör og persónuleikabreið-
menni, segir okkur, að þetta sé
í síðasta sinn, sem 5. bekking-
ar eigi hlutdeild í dagskrá
nemendamótsins.
— 5. bekkur er erfiðasti
bekkurinn, og þar sem skóla-
tímabilið er mjög stutt verð-
um við að nota tímann vel í
þágu námsins og takmarka af-
skipti af félagsmálum.
— Við imprum á því við
Hildigunni Ólafsdóttur, að hún
beri nunnuklæðnaðinn með
miklum elegans.
— Fékkstu klæðin lánuð?
Háloftasvipurinn á andliti
stúlkunnar víkur fyrir brosi.
— Nei, ekki aldeilis. Þetta
er sambland úr gömium peysu-
fötum, „viskustykkjum“ og
hjúkrunarköppum.
— Ætlarðu að ganga í klaust-
ur?
— Ekki trúi ég á það, segir
stúlkan fallega.
— Það gerum við ekki held-
ur.
~k
IY uk: atriða þeirra, er 5,
og 6. bekkingar sáu um, var
sitthvað fleira til skemmtun-
ar: skólahljómsveitin lék og
fjórir piltar sungu. Féilu stæl-
ingar þeirra á hinum annáiuðu
furðuíuglum „the Beatles" í
góðan jarðveg, og ekki minnk-
aði hrifningin, þegar einn
þeirra félaga setti upp við-
eigandi hárkoilu. Þá flutti
skólakórinn lög úr söngleikn-
um „Soutih Pacific“ með góð-
Framhald á bls. 10.
Garðar Jóhannsson, Freyja Jóhannsdóttir, María Guðmundsdóttir, Benedikt Guðbjartsson, Sigurhjörg Haraldsdóttir, Elisabet
Björnsdóttir, Hjálmar Sveinsson. Á myndina vantar SigþrúðurZóphaníasdóttir og Pétur Björnsson.
8. tölublað 1964
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 7