Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1965, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1965, Blaðsíða 10
SÉMAVIDTALIÐ Jarðgörtg við Siglufjörð Ú r a n náIu m mi ða!d a Guðmundur Guðni Guðmundsson iók saman NÝJAR PLÖTUR. Ennþá haía komið nýjar plötur til HSH, Vesturveri. í>ar var um talsvert mikið af 33. snúninga plötum að ræða m.a. með hinum skemmti- Jega söngvara Jim Reeves. Litlar plötur komu all- margar. Þar er m.a. nýjasta piata The Animals ,,Don’t let me be misunderstood“ og „Club a-gogo“. Animals eru nokkuð góðir og sólósöngv- ari þeirra mjög góður sér- stakiega í síðara laginu. The Drifters, sem eru frá A.mer- íku, en Englandi eins og fíestir aðrir söngflokkar eða hljómsveitir þessa síð- uslu mánuði eru þarna með nýiegt metsölulag sitt ,,At the club“ nokkuð got lag. Þé er það nýjasta plata Roy Orbison, það heitir „Good- night“, það er hvergi nærri eins skemmtilegt og næsta plata hans þar á undan „Oih, pretty woman“, sem alls staðar náði metsöiu. Maður er búin að bjóða „Good- night“ góða nótt áður en þlötunni er lokið. „Only with you“ er „hitt lagið“ á þessari plötu og það er mun skemmtilegra. Nú hefur hon um Roy okkar blessuðum brugðizt bogalistin. Svo eru það ,,Ronettes“ með nýja lagið sitt, „Born to be to- gether“. Þetta er ein af þessum Phil Spector plöt- um, en Spector semur og út- setur og stendur fremst Bandaríkjamanna á þessu sviði í dag. En hann yfir- hleður, því undirleikur er erðinn svo margbrotinn að söngur heyrist varla og texti alls ekki. Lestina reka svo fjórar brezkar hljóm- sveitir. Gery and the pace- makers með sitt ágæta lag „Ferry cross the Mersey“. Þetta er skemmtileg hljóm- sveit, sem áreiðanlega á eft- ir að lifa lengi, jafnvel þó að beat-músikin haldi ekki velli. Þá er það Dave Clark Five, þeir eru með lagið „Come Home“, sem ekki seg ir mikið. Og heldur finnst mér þessari hljómsveit hafa farið aftur hvað söng og leik snertir, þeir hitta ekki eins oft í mark og áður. Svo er það hljómsveit sem ber nafnið The Beatles, ég gæti trúað að einhverjir kannist við hana. Hún er með tvö lö.g á plötu, „Eight days a week“ og „I don’t want to spoil the party“ en bæði þessi lög eru af síðustu stóru plötunni þeirra, og hafa ekki komið út á lítilli plötu. Fyrra lagið komst meira að segja í efsta sæti á vinsælda listanum í USA fyrir nokkru, án þess að hafa gert það í Englandi. Og auðvitað er þetta skemmtileg plata eins og flest sem komið hef- ur frá þessari hljómsveit frá því að henni fór að vaxa fiskur um hrygg. Lestina reka svo Peter og Gordon, þá er varla hægt að telja hljómsveit. Þeir syngja og ha.fa svo hljómsveit sér til aðstoðar. Þeir eru með lögin „I go to pieces" og „Love me baby“. Þeir eru miklu vinsælli i Ameríku en heimalandi sinu, Englandi enda vinna þeir nú orðið meira vestanhafs en í Bret- landi. Söngur þeirra er mjög góður og er skemmst að minnast hinnar ágætu plötu þeirra, „World without love“. Það er sems'agt nóg til af öllu hjá HSH Vestur- veri þessa stundina. 1280 Mongólar senda enn menn til Japans og krefjast þess að Japan- ir lúti yfirráðum Mongóla, en Japanir tóku sendimennina og drápu alla með tölu. 9-5. d. Magnús Hákonarson kon- ungur í Noregi og fyrsti konung- ur íslendinga. Eiríkur sonur hans er kallaður vár prestahatari, verð- ur konungur yfir ríki Magnúsar. Eirikur var þá 15 vetra og ríkti til 1299. Stofnaður háskóli I Portúgal, hann starfar enn og er næst elzti háskóli í Evrópu. ísland. Eoðinn-Leppur umboðsmaður konungs kemur til landsins og fer ásamt Jóni Einarssyni lög- manni um landið að taka hyll- ingareiða fyrir hinn nýja konung Eirik Magnússon. Útkoma Árna biskups og Jörund- ar biskups. 1281 Konungsvaldið í Noregi hefur sókn gegn valdi kirkjunnar sem alltaf var að færast í aukana. Martín IV verður páfi. Hann bann færði keisarann í Miklagarði, Mikael VIII, fyrir að styðja Karl af Anjou í valdabrölti hons á Balkanskaga. Kublai-khan sendir 150.000 manna lið frá Kóreu og Kína til Japan, en liðið var strádrepið eftir að íloti þess hafði verið eyðilagður á eynni Kyushu. Island. Meginhluti Jónsbókar lögtekin á Alþingi, en lögbókin Járnsíða þá numin úr gildi. 1282 Sikileyingar drepa alla franska menn á Sikiley. Wales sameinað Englandi. Þá fékk elzti sonur enska konungs- ins eða ríkisaríinn titilinn: Prins af Wales. Erkibiskupinn í Noregi og helztu fylgismenn hans gerðir útlægir úr Noregi af ráðuneyti Eiriks konungs, og flýr erkibiskupinn til Englands. Habsborgarar taka völd í Austur- ríki og réðu þar ríkjum til 1918. íslaitd. Utanferð Hraíns Oddssonar hirð- stjóra. 1283 ísland. Hrafn og Erlendur lögmaður Ólafsson kom frá Noregi með konungsbréf um að leikmenn taki aftur kirkjustaði. D. Þorgils skarði. D. Þórður Sturluson lögmanns Þórðarsonar, hirðprestur Magnús- ar lagabætis. EROS Eftir Ninu Björk Árnadótfur Eros við höíum barizt um bjartar sem dimmar nætur. Þú ert grimmur og gefur ei grið. í nótt höfðu vopnin mín falið si.g og ég lá varnarlaus. í nótt var fegurð mín sjúk og sigruð og þú brostir sælt. Eros hatur mitt er ekki hatur O'g brátt mun þinn sigui'söcgur duna í ungu blóði mínu. — Vegamálaskrifstofan. — Er Snæbjörn Jónasson, yf- irverkfræðingur við? — Augnablik. — Snæbjörn. — Góðan dag, þetta er hjé Lesbók Mbl. Hvað er efst á baugi hjá ykkur núna? — Undirbúningur undir sum arið stendur nú sem hæst. Fjög wra ára áætlunin hefur verið rædd í þinginu, o.g því að mikiu leyti ákveðið hvað verður unnið á þjóðvegunum á komandi sumri. Sýsluvegaáætlunin er í undir- búningi og á næstunni hefjast sýslufundir, en á þeim verður cmdanlega gengið frá henni. Gerð hafa verið kaup á vélum, efni keypt til brúa, eins og Ihægt hefur verið, áður en end- anlega var ákveðið, hvaða brýr yrðu. byggðar. Margt annað hef ot verið á döfinni, eins og á- kvörðun á legu veganna út iré Reykjavik í sambandi við svæðaskipulagið, Hafnarfjarð- arvegur um Kópavog og til- raunir með olíumöl á komandi sumri, svo að eitthvað sé nefnt. Stærstu verkefnin í sumar eru Reykjanesbraut, Siglufjarðar- vegur, Ólafsfjarðarvegur um Ólafsfjarðarmúla, ýmsar stór- framkvæmdir á Vestfjörðum, svo sem frá Patreksfirði að flugvelli, á Bíldudalsvegi, á Vestfjarðavegi um Breiðadals- heíði og .Bolungarvíkurveginn. Auk þess eru að sjálfsögðu fjárveitingar til fjölda nýbygg- inga víðsvegar um landið og ennfremur til brúa en um það er Árni Pálsson, yfirverkfræð- ingur, fróðari. Það verkefni, sem einna mest umtal hefur vakið, kannski að undantek- inni Reykjanesbraut, eru vafa- laust jarðgöngin á Siglufjarð- arvegi, enda er þar um fyrstu verulegu jarðgöngin að ræða hér á landi. Þau hafa nú ver- ið boðin út. Áætlað er að unn- ið verði við gröf’t gangnanna á Siglufirði, en gangnamunninn er um 314 kílómeter frá kaup- staðnum. — Hvað verða göngin löng? — Þau eru 782 metrar á lengd. — Hvernig er útboðinu hag- að? — Jarðfræðingar hafa gert ýt arlegar athuganir undanfarin sumur á gangnasvæðinu, og sú tilhögun að láta bjóða í tvær mismunandi gerðir er byggð á þeirri rannsókn Fyrri tilhög- unin miðast við að grafin séu göng fyrir eina akgrein og út- skot, en hin síðari miðast við að gera tvíbreið göng ef sýni- legt verður, þegar nokkuð er komið áleiðis með mjóu göngin, að slíkt sé framkvæm- anlegt ber.gsins vegna. Verkið var boðið út um síðustu mán- aðamót og á að skila tilboð- um fyrir 18. maí. — Hvað er að frétta af Kefla vúkurveginum? — Það er ekki ákveðið enn hvernig hann verður gerður. Fyrst var ákveðið að steypa hann, en síðan gerði Efnalhags- stofnunin tillögu um að mal- bika hann og lækka með því byggingarkostnaðinn. Er í at- hugun hvor leiðin verði valin. 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. tbl. 1965.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.