Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1965, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1965, Blaðsíða 15
Framhald af bls. 13. aná Im.þynnum, og með bláan depil á r.efinu („á sumrin er ég Herm.es ekiki eíður en Harlequin). Dali er ekki len.gur súrrealisti og h;.nn er langt frá því að vera brjálaður. Kpurningin er aðeins, hvað hann eigin- lcga sé? í no'kkur ár hefur han.n unnið að stórum, trúarlegum, dulrænum og eogulegum myndum ,sem allar eru feikn armikil verk og un.nin af mikilli tækni, en sem eru á engan hátt í þeim stíi, sem sioasta kynslóð þekkti Dali af eða sem inargir héldu að snilligáfa hans fælist í. Dali talar af mikilli mælsku sér til varnar. Að hans áliti var hann eini súrréalistinn, sem á rökréttan hátt gekk stig. súrrealismans á enda með því að ná hámarki afskræmingarinnar í verk- um sinum og þróast þannig frá súrrea- lismanum til hins dulræna og sígilda. ..Þar sem ég sá áður ófreskjur sé ég nú engla -— og þeir eru æðri í virðinga- stiganum.“ Listamaðurinn, sem varð frægur fyrir að hagnýta sér hin ægi- legu umbrot undirmeðvitundarinnar, ásalar listamönnum nútímans fyrir að aðhytlast hið ljóta. l^í ér virðist breytin.gin í verkum Ddli vera alger. í grundvallaratriðum er breytingin sú, að hann hefur hætt að mála fyrir sig sjálfan og málar nú fyrir opinbera aðila. >eir dagar eru taldir, þegar hann skrifaði (árið 1930) að marlc mið hans væri að „hjálpa til að koma óorði á heim raunveruleikans.“ Og- þetta er fjarlægt Dali nútímans, sem hefur af fyrirlitningu verið likt við Annigoni og John Metron og lýst sem þeim, er reyni að kíkja eftir stíl Raphaels. Þegar minnzt er á Raphael hlýtur hugurinn að hvarfla að hinni rómuðu tækni Dali. Menn hafa alltaf dáðst að hinni nákvæmu tækni hans og hún á vissulega þá aðdáun skilið. En hann hef ur alltaf notað hana til að þjóna hug- myndaflugi sínu. .Það að mála hefur aldrei verið tjáning út af fyrir sig í augum Dali eins og það var hjá Van Gogh og impressionistunum eða hjá Rembrandt og Goya. Myndir Dali hafa ekki skynræna eiginleika. Þær eru til að lýsa einhverju. Málverk hans sýna betur en nokkur Ijósmynd hefði getað, hvaða fyrirbrigði birtust í huga hans. Dali hefur aldrei afs;kræmt raunveru- leikann og hann heldur því mjög ákaft fram. Hann he-fur fest 'á lére-ft, eins ljós- lega og unnt hefur verið, það sem hugur hans he-fur sagt honum að væri raun- verulegt. Það er þetta, sem hann álít-ur að vera að mála, og það er þess vegna sem honum finnst Cézanne vera klunna legur listamaður. í stuttu máli sagt gaf Þetta er bókaherbergi Dalis. Dali okkur stæ-kkaða en nákvæ-ma lýs- ingu á sínum eigin brjálæðiskenndu í- myndunum. Á líkan hátt lýsir hann því fyrir okkur í dag, sem honum finast vera fagurt, Sem listmálari he-fur han-n ek-ki í rauninni tekið neinum framförum frá því hann var súrrealisti. Það er hugar- ásiand hans sem hefur breytzt. 14. tbl. 1965. LESBOK MORGUNBLAÐSINS 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.