Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1965, Blaðsíða 9
egar maður skrifar svona
spjall viku eftir viku, þá byrjar mað-
ur að ganga með blýant upp á vas-
ann og snyrtilegt blað, því að allt í
einu getur hrokkið upp úr mönnum
viskukorn sem maður átti ekki von
á úr þeirri átt, eða skarpleg athuga-
semd ura lífið og tilveruna sem er
þess virði að hún sé höfð eftir, eða
hnyttilegur dómur um menn og mál-
efni sem gott er að eiga í pokahorn-
inu þegar sá gállinn er á manni. Sum
ir menn eru náttúrlega því miður
þannig af guði gerðir að maður get-
ur gapað upp í þá til eilífðarnóns
með blýantinn og blaðið á lofti, og
aldrei hrekkur af vörum þeirra eitt
aukatekið orð sem er þess virði að
það sé bókað. Þannig menn man
maður af einskæri tilviljun ef maður
man þá á annað borð: þeir höfðu
minnisstæðan kæk skulum við segja
ellegar þeir duttu einlhverntíma
skemmtilega á magann þar sem mað-
ur var nærstaddur ellegar maður
man eftir þeim af því þeir höfðu til
dæmis svarta vörtu á handarbakinu
eða óvenjulega glæsilegt brennivíns-:
nef eða ferlegustu lúkurnar sem mað
ur þykist hafa séð vestan Þjórsár.
Aftur á móti er líka til allrar guðs
lukku til slangur af fólki sem hefur
brjóstvit eða kýmni eða líísgleði eða
þá bara lífsreynslu aí því tagi eða
þesskonar hugarfar sem manni gleym
ist ekki gjarnan aftur. Þetta fólk
man maður lika stundum út af einu
atviki eða einu orði, rétt eins og
glópana. Það verður kjarninn í minn-
ingu manns um góðan mann eða góða
konu sem maður sat hjá eina kvöld-
stund, varð samferða yfir eitt haf,
vann með einn mánuð í síldinni. Allt
í einu skýtur orðinu eða atvikinu
upp í huga manns, og samstundis
stendur konan eða karlmaðurinn ljós
lifandi andspænis manni, Man ég
þannig glögglega góða og gæfusama
indæliskonu sem verður að vera
nafnlaus að sinni og sem einu sinni
sem oftar var mikið, mikið þreytt
eftir langan og strangan vinnudag.
„Nú hlýturðu þó að vera þreytt“,
var sagt við hana. En þá svaraði hiún:
„Nei, maður má ekki vera þreyttur.
En ansi er ég hrædd um að ég sé
orðin ansi syfjuð.“
M
mennskuna, og aldrei hef ég haft
betri blöndu með neinu rommi nokk
urstaðar í veröldinni en katffið í fant
inum mínum þarna í skonsunni og
svo hugarfar mannsins sem var veit-
andinn. Síðan hefur minningin um
hann hringsólað kringum þetta atvik,
sem þó var aðeins augnablik af kynn
um okkar þetta sumar. Það er kveikj
an sem kveikir í endurminningunum
um góðan félaga; og þó þykist ég
ekki meiri rommsvelgur en gengur
og gerist — og ef ég man rétt vorum
við þar að auki báðir rassblautir.
Það gefur að skilja að sitthvað af
gengu út úr skritfstotfu nokkurri í
Reykjavík þar sem ég var nærri.
„Snýttu þér, skepnan þín,“ sagði
hann. Ég flýtti mér líka að skrifa
hjá mér ummæli bankastjórans á
dögunum sem taldi upp fyrir mig
fjórar stéttir manna sem hann kvaðst
helst aldrei láta koma til sín erindis-
leysu — „því allur er varinn góður“.
Þessir menn voru: ritstjórar, lög-
regluþjónar, fangaverðir og ráðsmað-
urinn á Kleppi.
Jr að væri gaman að geta birt
nafn þessa manns, þvi að embættis-
menn sem þora að hafa kýmni eru
því miður ekki á hverju strái, en
það er sitthvað að hafa eyrun opin
eltegar hlaupa með sögur. Það væri
heldur ekki drengilegt að ljóstra upp
nafni mannsins sem skipaði systur
sinni að verka á sér nefið. Sömu-
leiðis er best að láta manninn vera
nafnlausan sem ég var svo öheppinn
að heyra í um daginn. Hann var að
VINSAWUéASf
Tak\í> yKicoR
SToOO \ IXÍLA
WA6SÚ6SANP-
WglN0Í
?.S.- STOflA,
VÍNA AND0YW9
\RSÍA$FSFOLK
an ég líka samanrekinn og
góðlegan mann sem tók mig einu
sinni inn í skonsuna sina í slagviðri
og dró lykil upp úr vasa sínum og
opnaði kistuna sína og tók
rommflösku upp úr henni og
skenkti út í kaffið mitt og
kaffið sitt og boraði flösk-
unni að svo búnu aftur ofan í kist-
una og læsti og stakk lykiinum á sig
aftur. Þá var törn og maður var orð-
inn syfjaður ef ekki þreyttur. Ég hef
stundum drukkið meira af rornrni
með meiri viðhöfn í einni setu. En
aldrei hefur rommdi-ykkur hysjað
jafn rækilega upp um mig karl-
SKvRINtSAR: A- 'MIWISANDI
DYRWÖROUR. B - EKKl GESTÍR.
C-?E9L\N60R Á GOGGSXÓYi.
þvi sem maður hripar hjá sér á hlaup
um stendur ekki undir sér sjálft og
einsamalt. Það er bara ögn af mósaik
hversdagslítfsins. Hvernig á ég að
nota sem uppistöðu í sunnudagspistil
I Lesbók fyrirmælin sem ég heyrði
þjóðkunnan mann miðaldra gefa
eldri systur sinni um leið og þau
flytja ræðu. Það er orðið aivoru-
mál hve margir íslendingar kunna
alls ekki íslensku. Ég drap á þetta
sem snöggvast um daginn í sambandi
við óttalega lágkúrulega skáldsögu.
Eg læt vera þó að menn sem flytja
ekki ræður kunni ekki móðurmálið,
því að þeir virðast þó hafa vit á því
að þegjá. En jafnskjótt og maður stíg
ur i pontuna og byrjar að tala, þá
hættir hánn að vera friðhelgur. Þá
má skjóta á hann.
Þessi framámaður var að hæla
vissum-hópi íslendinga sem hann til-
greindi, og hann taldi hæpið (sagði
hann) að nokkrir menn íslenskir
hefðu átt „eins miklu ástfóstri að
fagna“! Hvað vill svona maður upp
á dekk? Ég var líka um daginn að
lesa grein eftir stjórnmálamann, og
les ég mig ekki allt í einu fram á
eftirfarandi gullkox-n: „Eykur það
ójafnvægi í byggð landsins“! Það er
svo komið að maður þorir naumast
. að opna dagblað; og má ég bæta því
við (með tárin í augunum) að höf-
undarnir sem vitnað er í eru báðir
langskólagengnir.
Þegar maður skrifar minnisblöð 3
daginn, þá er viturlegast að hrein-
skrifa þau strax á kvöldin. Það vill
verða fljótaskrift á þessu sem von-
legt er, einskonar hraðritun. Maður
skyldi þó ekki látast vera að halda
dagbók. Það eru ævagömul sannindi
að jafnskjótt og maður byrjar að
kalla minnísblöðin sín dagbók, þá
gefst maður upp. Dagbók er bók sem
allir byrja á en engum tekst að ljúka.
Einungis ofvitar eða fávitar halda
herkjunni, og svo tfáeinir heims-fræg-
ir stjórnm-álamenn að sagt er, þó að
ég hafi þá flesta ef ekki alla grun-
aða um að skrifa dagbækurnar sínar
mörgum, mörgum árum eftir atburð-
inn. En minnisblöð eru þarfaþing,
þó að nafnið sé ekki merkilegt.
Stundum má meira að segja nota þau
hrá, og hér er eitt lítið dæmi:
JT ór í bíó. Hýmdi eins og illa ,
gerður hlutur í litla dragsúgsan-ddyr-
inu fyrir framan stóra anddyrið þang
að til hleypt var inn. Stóru, íburðar-
miklu anddyrin í íslenskum bíóum
einungis til að glápa á gegnum gler.
Litla dragsúgsanddyrið til þess að
tryggja að fólk standi í þvögu. Dyra-
vörðurinn með misvísandi kastskeyti
eins og Friðrik kóngur. Derið ekki
í sömu stefnu og nefið. Höndlaði við
stúlkun-a í sælgætisbásnum: gult hár,
gulur kjóll, gult tyggigúmmí. Varð
starsýnt á fimmtán sextán ára peðl-
ing i einskonar reiðbuxum sem þó
voru víst alls ekki reiðbuxur. Sítt
hrokkið hár, hneppt skræpótt leð-
urvesti, goggskór. Skítugur frá
hvirfli til ilja og tottaði stórsígarettu.
Gekk í salinn, settist og mændi á
hnakkann á konunni fyrir framan
mig. Þetta bíó ágætt fyrir blinda, a-f-
leitt fyrir sjáandi, og er þó nýtt.
Hófst sýningin og nærri því á samri
stundu háreysti með á-horfendum.
Hugsaði með mér: Ekki á þessi lýður
von á góðu, því nú keraur bíókall-
inn ábyggilega hlaupandi og byrstir
sig. En ekki aldeilis. Garg og ráp og-
skvaldur sýnilega í stakasta lagi í ís-
lenskum bíóum. Hellti mér yfir ó-
eirðasegg fyrir aftan mig, fékk það
óþvegið aftur. Komst í illt skap að
hafa borgað 45 krónur fyrir að sita ■
innan um fólk sem ég mundi ek-ki
sUa.. innan um aftur fyrir borgun.
Ákvað að gera dyraverðinum tiltal
um leið og ég gengi út, en hann var
þá horfinn með kastskeytið.
Bað bíóköllum bölbæna og fannst
sjónvarpið rétt mátulegt á þá.
Þið báruð merkið hreint í ykkar hendi
og. heilum knerri skilið upp í naust,
®g sælt er nú við samvinnunnar endi
«ð sjá hive allt var heilt og brotalaust.
IÞ.ví drenglund sanna báruð þið í brjósti,
og brugðuð ekki huliðsslæðum neitt.
|»eir, munast vel sem fleyttu heilum
’farmi
og fengu öðrum holl-um bjargir veitt.
Þið sóttuð djarft og feldinn aldrei
fellduð
og tfóruð heil m-eð tímans auð og völd.
í tugi ára hæst í veðrið hélduð
og hófuð merki fyrir nýrri öld.
Þið stóðuð fast þótt stormur feykti
öldum,
þit' stóðuð fast í hverri æfiraun
og hafið lengi haldið sveitarvöldum
og hlotið sænidir fólks í verkalaun.
Hin liðna tið er sjálfum ykkur saga,
er sveipar lofi giftudrjúgan höld
og heiðrík krýnir húsfreyjunnar daga,
er hóf með göfgi æfi sinnar völd
og henni enginn hugarorku frýði ’
og hennar forsjá dýra giftu ól,
Framhald á bls. 14
17. tbl. 1965
. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 9